Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1964, Qupperneq 7
ótt hann sé aðeins
14 ára að aldri hef-
ur hann látið talsvert af sér
•
kveða í leiklistarlífi höfuð-
borgariimar. Þeir, sem
hlýtt hafa á framhaldsleik-
rit útvarpsins, Oiiver Twist,
þekkja röddina hans, en
þar leikur hann titilhlut-
um það bil hálfnað núna. Það
á svo sem ýmislegt eftir að
gerast, og núna fer einmitt
ýmislegt markvert að kom^a
íram.
Æfingar á leikriti með f'lutn
ing í ^varp fyrir augum, svo
og sjálT upptakan, hlýtur að
vekja forvitni margra, og þess
vegna biðjum við Stetfán að
segja okkur eitthvað um þá
hlið málsíns.
Sigfús Karlsson og Jóhannes J». Guðmundsson í hlutverk-
um sí num.
verkið. Hann heitir Stefán
Thors.
Foreldrar Stefáns eni Helga
Valtýsdóttir, leikkona, og
^Björn Thors, bluðamaður á
Mbl. Kjartan, bróðir Stefáns,
hefur einnig getið sér góðan
orðstír á leiksviðinu, — hann
lék í vetur aðalhlutverkið
í Imyndunarveikinni, sem
menntaskólanemar sýndu.
S tefán hefur stundað
nám í 2. bekk Miðbæjarskólans
í vetur, en situr nú yfir skóla-
bókunum að lesa fyrir ungl-
ingapróí. Ýmsir munu eflaust
draga í efa, að leiklistin og
skólabækurnar eigi samleið,
en Stefán segir okkur, að leik
listin hafi ekki tekið mikinn
tíma frá náminu.
— Auðvitað er þetta dálítið
erfitt núna, segir hann, meðan
prófin standa yfir, en það vill
svo vel til, að ég kem minna
við sögu í nsestu þáttum í
OJiver Twist — eða fram að
tveim síðustu þáttunum.
— Hvað eru þættirnir marg-
Ir?
— Þeir eru tólf. Þetta er
— Þegar við fáum handrit-
ið í hendurnar, segir Stefán,
lesum við það einu sinni yfir
í sameiningu. Upptakan stend-
ur svo yfir í nokkra daga, og
þá eru teknax fyrir 15 til 20
blaðsíður í hvert skipti. Upp-
takan gengur stundum seint
fyrir sig, því að það er ýmis-'
legt, sem þarf að taka með í
reikninginn: fjarlægð frá hljóð
nemanum, effektar — eða
ýmiskonar hljóð, sem eru á
plötum. Þetta merkjum við
allt í bækurnar hjá okkur. Svo
er tekið upp, hliistað, og
kannski tekið upp aftur, ef ár-
angurinn er ekki sem sikyldi að
dómi leikstjórans.
E inhvers staðar höifum
við líka séð þig á leiksviðinu,
getúr það ekki verið?
— Jú, ég hef verið með í
tveim sýningum Þjóðleikhúss-
ins, gamanleiknum „Hún
fra^ika mín“ og íslenzka leik-
ritinu „Dimmuborgir“.
— Voru það stór hlutverk?
—■ Já, talsvert.
— Hvað varstu gamall þá?
— Ég var tólf ára.
— Ætlarðu að halda áfram
á leiklistarhrautinni seinna
meir, Stefán?
Svarið var nei — sagt
með miklum áherzluþunga.
ÍScobóh
Ovíst er nú samt, hvort
Stefán reynist sannspár í þess-
um efnum. Þegar tilskildum
prófum er náð, ætlar hann
í Menntaskólann. Þess vegna
teljum við víst, að við eigum
eftir að sjá hann spranga um
leiksviðið á Herranóttiniu
eftir nokkur ár!
ai.
Aður en sýning nemenda I
Mióbæjarskólanum á þætti úr
Pilti og stúlku hófst, flutti SteÆ
án Thors í 2. bekk A svoiát-
andi prologus, sém einn af
kennurum skólans, Ragnar Jó-
hannesson, hafði samið fyrir
þetta tækifæri:
Vér sýnum nú lífið á liðnum
dögum,
sem lýst er í gömium
skemmtisögum.
Þannig var öld vorra áa sén
af afa hans Gunnars
Thoroddsen.
Þeirra líf var allt annað en
okkar;
engir voru þá stjórnmála-
flokkar.
Þjóðin var alveg aura-lens,
enginn ók þá í Mercedes Benz.
Þeir komust um landið á
klárunum snjöllu,
og körlunum fannst þeir bera
af öllu.
Stefán Thors flytur prologus
vi'ð Pilt og stúlku.
Graut sinn í þann tíð menn átu
úr öskum
— mjöður á kútum — fremur
en flöskum.
Fátæktin bjó á flestum bæjum,
f felli menn nærðust á rótum
og tægjum.
Af því varð hann Bárður svo
nízkur og aumur,
og hagur Gróu svo ósköp
aumur.
A landinu öllu var enginn
skóli,
svo aumingja Gvendur varð
fifl og fóli.
— Þá var ekki rafmagn í
kimum og krókum,
við kolur menn lásu í gömluim
bókum.
..... En þrátt fyrir skortinn
i- menn áttu sitt yndi,
ef nóg var í aski, þá lék allt
í lyndi.
Menn kunnu ekki að tvista
og kunnu ekki að rokka,
en kváðu á vökunni rímna-
flokka.
Þeir héldu til kirkju á helgum
dögum,
og kunnu ógrynni af kvæðum
og sögum.
Sú tilvera finnst okkur
fátækleg
og fábreytt lifið við þjóðar veg.
En athugum þetta, þú og ég:
að þarna sjáum við feður og
mæður
okkar, sem lifum á landinu nú
við Ijósari tíma og bjartari trú.
Sjáið hér öldina og aldar-
háttinn!
— Upp með tjaldið! Nú byrjum
við þáttinn.
Miðbæjarskólinn er ein elzta stofnun borgarinnar og langelzti barnaskóliun. Hann starfar
í gömlu og virðulegu húsi við Tjörnina, rétt í hjarta hæjarins, og verður við bæjarvegg
Ráðhússins, þegar það verður reist. — Enn gegnir hann me'ð sóma lilutverki sinu sem
barnaskóli, en undanfarin ár hafa Iíka verið þar framhaldsdeildir, eins og nú er farið að
tíðkast við ýmsa stærri skóla. Félagslíf er þar auðvitað talsvert, og skömmu fyrir páska
'héldu gagnfræðadeiidirnar ársháti'ð sína. Ýmislegt var þar tii skemmtunar, en helzta
skemmiiatriðið var leikþáttur úr Pilti og stúlku, og tók Sveinn Þormóðsson, ljósmyndari
Mbl. þessar myndir á þeirri sýningu. Myndin liér að ofan er af leikendunum.
17. töiublað 1964
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 7 .