Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1964, Blaðsíða 10
---:------- SÍMAVIÐTALID
Minnkandi skipti v/ð SVR
vegna einkabíla og sjónvarps
að margir eru farnir að skilja
þetta vandamál og víkja fyrir
vögnunum. Tíminn er þegar
orðinn knappur á mörgum leið
um strætisvagnanna, einkum
vegna lækkandi aksturshraða
niður Laugaveg. Vildi ég láta
banna öll bílastæði á Lauga-
vegi. Einnig gæti komið að því,
eftir nokkur ár, að skynsamleg-
asta lausnin á umferðarvand-
anum í miðbænum verði sú, að
banna akstur um kjarna hans,
hafa stór bílastæði t.d. sunnan
Hringbrautar, en liaida uppi
tíðum strætisvagnaferðum það
an um miðbæinn.
N ¥ J A R
THE SHADOWS: Theme
for young lovers/The Hamm
er. OG mitt í öllum þessum
Beatles, Dave Clark Five,
Rolling Stones, 31ue Jeans
og Searches hávaða þá
gleymum við hreinlega Sha-
dows. Hljómsveitinni, sem
ruddi brautina fyrir allar
hinar ensku hljómsveitirn-
ar, sem nú eru orðnar heims
frægar.
Þetta er fyrsta platan í
langan tíma með Shadows.
Fyrra lagið er úr kvikmynd
inni „Wonderful life“. Ró-
legt lag, sem er útsett í hin-
um auðþekkta Shadows-stíl
Nokkuð gott lag, sem áreið-
anlega getur orðið vinsælt. í
síðara laginu verður piltun-
um það á,.að syngja, en það
hefðu þeir átt að láta ógert.
Ekki vegna þess að söngur
þeirra sé slæmur, nei, hann
er mjög góður. En þeir
hefðu átt að leyfa hinum
að spangóla og halda sétr
heldur að því einu að spila.
Þetta er annars ágætasta lag,
gamalt etf ég man rétt og
gæti ég svo sem vel trúað
því, að þessi nýja Shadows
plata ætti eftir að verða vin
sæl hér á landi. Því hér áttu
The Shadows stóran hóp að
dáenda áður en nokkur
vissi hverjir The Beatles
voru.
essg.
22180.
— Strætisvagnar Reykjavik-
ur. Góðan dag.
— Góðan dag. Þetita er
hjá Lesbók Morgunblaðsins. Er
forstjórinn við?
— Augnablik.
— Eiríkur Ásgeirsson.
— Hvað er að frétta af
tekstri strætisvagnanna?
— Allt ágætt, farþegum fer
fæikkandi og tekjur minnk-
andi. Það er að segja, þetta er
ágætt, ef það ber vott um ört
vaxandi velmegun borgarbúa.
Einkabifreiðum hefur fjölgað
um þrjú þúsund á síðustu
tveimur árum. Ég tel reyndar
vist, að ástæðurnar séu fleiri.
Batnandi aðbúnaður á vinnu-
stöðúm og auknar fjarlægðir
valda því, að æ færri fara heim
til hádegisverðar. Ég leyfi mér
að minnsta kosti ekki að ætla
að forsendurnar séu versnandi
matur heima fyrir eða ósam-
komulag við eiginkonur. Sjón
varpið heldur fólki heima á
kvöldin og síðast en ekki sízt
var stofnað kransæðastiflufé-
lagið, sem eggjar menn til
gangs. Allt miðar að því að
drepa okkur.
— Fáið þið styrk frá opin-
berum aðilum?
— Já, að vísu. Reykjavíkur-
borg hefur um nokkurt árabil
lagt af mörkum fjárhæð, sem
svarar 10% af brúttótekjum
SVR. Er ætlazt til að við not-
um það framlag til kaupa á
vögnum á nýjar leiðir, til
byggingar nýs verkstæðis og
biðskýla. Hin síðastnefndu hafa
einkum verið skotspónn grjót-
kasts götustráka.
— Það er algengt í Evrópu-
löndum, að veitt sé cif al-
mannafé til reksturs strætis-
vagna. í Bandaríkjunum hafa
jafnvel samtök kaupmanna
hlaupið undir bagga með
einkafyrirtækjum, sem þar sjá
um strætisvagnaferðir. Ég
var að lesa í bandarísku stræt-
isvagnatímariti frásögn af
tveimur einkafyrirtækjum,
sem ráku strætisvagna
sitt í hvorum smábænum,
skammt frá Cbicago. Annað
FISKRÉTT URINN
Fiskiréttur fyrir sykursjúlta.
120 hitaeiningar, 2.4 gr.
carbonhydrat, 5 gr. fitu-
einingar, 16.3 gr. protein.
80 gr fiskiflök
10 gr gulur ostur
% teskeið hveiti
% matsk. smjörlíki
eða smjör
2 matskeiðar mjólk
1 tómatsneið .
1 lauksneið
salt, mustarður eftir
smekk.
Saltið fiskinn og stráið
litlu af mustarði yfir hann.
Setjið lauksneiðina á fiskinn
og því næst tómatsneiðina.
Búið til sósu úr smjörlíkinu,
hveitinu og mjólkinni og
sjóðið hana. Hellið henni
yfir fiskinn, stráið rifnum
ostinum yfir réttinn og bak-
ið í ofni í um það bil 20 mín.
Fiskiflök Procencala.
1 pakki af frosnum
fiskiflökum
% meðalstór laukur
1 grænn pipar, niður-
saxaður
1 meðalstór tómatur,
niðursaxaður
2 teskeiðar matarolía
2 teskeiðar sítrónusafi
salt og pipar og pf til vill
lítið eitt af blóðbergi.
Þíðið frosinn fiskinn og
skerið í sex bita. Setjið
hvern bita á aluminium-
pappírs-ferhyrning. Þeytið
efnishlutana, sem eftir eru,
þar til þeir eru orðnir að
sósu og setjið hana með
skeið yfir fiskinn. Brjótið
hornin saman á aluminium-
pappírnum þannig að þetta
líkist umslagi svo að sósan
renni ekki yfir barmana.
Steikið við 175 C oínhita í
15 mín.
Fiskiflök á la King
% kg fiskiflök (þorskur
eða ýsa)
1 bolli af mjólk (heit)
eða rjómi
2 matsk. smjör
2 matsk. hveiti
salt og pipar eftir smekk
1 teskeið Worchestersihire
sósa
2 st. grænn pipar
1 rauður pipar (gamba)
100 gr. sveppir.
Notið afganga af steiktum
fiski eða sjóðið hæfilegt
magn fyrir þennan rétt.
Saxið niður sveppina og
kljúfið rauða og græna pip-
arinn (ef hann er notaður).
Bræðið smjörið, bætið • við
þetta hveitinu, sveppunum,
salti og pipar og sjóðið þar
til þetta er þykkt ásamt
mjólkinni. Bætið við þetta
fiskinum og þeim efnishlut-
um, sem eftir eru, og sjóðið
í þessari sósu þar til réttur-
inn er vel gegnum heitur.
Berið á borð heitt með rist-
uðu brauði. Þér getið bætt
við 4 matsk. af hvítvíni við
sérstakt tækifæri. *
gekk þolanlega, en hitt á aftur
íótunum og varð að leggja upp
laupana. Þegar strætisvagna-
ferðir höfðu legið niðri um
skeið á síðarnefnda staðnum,
uppgötvuðu kaupmenn í mið-
bamu.m það, að sölu í búðum
þeirra hrakaði til muna. Þeir
þurftu að senda vörurnar sam
kvæmt pöntunum í úthverfin,
en áður höfðu húsmæðurnar
gert sér ferð inn í bæinn og
ævinlega komið heim aftur
með allskonar varning, sem
þær ætluðu ekki að kaupa, er
þær lögðu af stað að heiman,
en höfðu séð í búðargluggum.
Kaupmennirnir í miðbænum
buðu því fyrrnefnda aðilanum
að halda uppi strætisvagna-
ferðum í þessum bæ einnig og
afhentu . honum framilag,
tíu þúsund dollara. Tók hann
boðinu og strætivagnar fói*u
aftur að ganga í bænum.
— Hvenær tókst þú við
starfi þínu, Eiríkur og hvernig
fellur þér það?
— Ég byrjaði í maí, 1951, og
líkar mjög vel; einkum vegna
þess, hve ég hef gott starísfólk.
Þegar öll starfsemi fyrirtækis-
ins er undir verkum mannanna
komin, en ekki sjálfvirkra
véla, þá ríður á, að hver standi
í sinni stöðu, enda ganga stræt-
isvagnaferðirnar um bæinn
eins og vél með vel smurðum
tannhjólum.
— Hvað vilt þú segja að lok-
um um framtíð strætisvagn-
anna með tilliti til aukinnar
umferðar?
— Ef við tökum fyrst fjár-
hagshliðina, þá er það áreiðan
lega hégómi, sem borgarstjórn
veitir til SVR, miðað við það,
sem ef til vill verður, þegar
dregur úr ökuhraða vagnanna,
vegna umferðaraukningarinn-
ar. Til dæmis minnkar nýting-
in um 50%, ef vagnar verða 45
mínútur á leið sinni í
stað hálftíma. Svo finnst
mér, að taka verði jafnt
tillit til allra borgara, og því
er slæmt að sjá 80 manns í
strætisvagni bíða við að-
albraut eftir einum eða
tveimur mönnum í einkabil. Að
vísu er mér skylt að geta þess,
IQ LESBÖK MORGUNBLAÐSIJNS
17. tölublað 1964