Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1964, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1964, Qupperneq 7
Sumaríeyfisdvöl á islandi Spjallað viB fjóra bandaríska unglinga sem dvöldu hér í sumar m ^ American Field Service á íslandi hefur um langt árabil haft milligöngu um »3 sjá íslenzkum ungling- um fyrir námsdvöl í Banda ríkjunum. Nýlega fóru á vegum stofnunarinnar 16 íslenzkir unglingar til árs- dvalar í Bandaríkjunum, þar sem þeir munu stunda nám við svokallaða ,,high- schools“ víðsvegar í Banda- rikjunum. Undanfarin 4 sumur hafa bandarískir ung lingar heimsótt ísland á vegum stofnunarinnar og dvalizt hér tvo mánuði í senn. Við hittum hina bandarísku unglinga að má:i, skömmu áð- James L. Nihiser ur en þeir héldu utan eftir tveggja mánaða dvöl hérlend- is. Þetta voru hýrir unglingar, þrir piltar og ein stúlka, og sýnilega mjög ánægð með dvöl sína hérlendis. Tvö þeirra dvöldu í Reykjavík, einn í Borg arfirðinum og einn á ísafirði. Þau sögðu okkur, að Ameri- can Field Service í Bandaríkj- unum hefði milligöngu um nemendaskipti til um 60 landa um viða veröld. Þau hefðu ekki Katherine Elizabeth Bouton ráðið því sjálf, hvert ferðinni var Heitið. Það hefði þeim ver ið tjáð, þegar þeim var til- kynnt, að þau hefðu hlotið styrk á vegum stofnunarinnar. — Vissuð þið mikið um ís- land, áður en þið komuð hing- að? — Það var nú skelfing lítið, sagði Jim Nihiser frá Detroit. Ég vissi að höfuðborgin hét Reykjavík og að ísland væri í námunda við Grænland. — Ég ímyndaði'mér, að hér væri hræðilega ka.t, sagði ung frú Kathy Bouton, falleg, ljós- hærð stúlka frá New York, — en ég komst fljótlega á aðra skoðun, þegar ég var komin hingað. Loftslagið hér hefur verið hlýtt og gott allan tim- ann, nema kannski siðustu dag- ana. — Hér er svo fjö'breytiiegt og undariegt landslag. Hraun- ið minnir mann stundum á tunglið, sagði. Jim Richai;dson frá Oonnecticut. — Eða hverirnir, sagði Kat- hy. Þeir voru stórkostlegir. — Við höfum lika tekið mik ið af myndum, sagði Chuck Erwin frá Oregon. Ég hef tek- ið um 200 myndir. —Og ég hátt upp í 300, sagði Jim Nihiser. — Það fylgir ferðalaginu að segja frá íslandi í skólanum, þegar við komum heim. Þá er gott að hafa mikið af mynd- um, sagði Chuck. — Við erum öll í „high school“, sagði Katihy, og eigum eftir einn vetur. Þá verðum við sem kallað er „Seniors“. Við getum þá haldið áfram námi í „college“, §em mun svara til efstu bekkja Menntaskóla og fyrstu bekkja Háskóla hér á íslandi. — Þurfa ekki ungu menn- irnir að faia í herinn? spyrjum við. ^ — Ekki þeir, sem skara fnaim úr í námi — eða giftast. — Er þá ekki ráðlegt að ganga í hjónaband? — Nei, við viljum heldur læra, segja piltarnir einum rómi. Stúlkan brosir og leggur ekkert til málanna. — Hvað þurfa ungir menn annars að gegna herskyldu í langan tíma. — Það er nokkuð misjafnt Yfirleitt fjögur ár. Chuck Erwin — Hverjir 'hafa séð um mót- töku ykkar hér? — íslenzkir unglingar, sem dvalizt hafa við nám í 3anda- ríkjunum á vegum A.F.S. — Þetta er orðinn álitlegur fjöldi, sem tekið hefur þátt í skiptiheimsóknum milli ís- lands og Bandaríkjanna á veg um þessarar ágætu stofnunar? — Jú, það munu vera alls um 121 unglingur. — Hefur móttökuliðinu tek- izt að gera dvöl ykkar eftir- minnilega? — Já, mikil ósköp! Við höf- um ferðazt mikið um landið í fylgd íslenzkra vina okkar, og þeir hafa greitt götu okkar á allan hugsanlegan hátt. Já, móttökurnar hafa verið stór- ■ kostlegar. — í gær var okkur boðið í flugferð með Landhelgisgæzlu flugvéiinni Sif, sagði Chuck. Við vorum allan daginn á lofti og flugum vítt og breitt með- fram ströndinni og yfir land- ið. Við flugum meðal anmars yfir nýju eyjuna og gátum greinilega séð glóandi hrauii- leðjuna vella í sjóinn. Þetta var nokkuð, sem maður sér ekki nema einu sinni á ævinni. — Þessi dvöl á íslandi verð- ur okkur öllinn ógleymanleg, sagði Kathy. Það verður svo sannarlega frá nógu að segja, þegar við komum heim! Jamcs P. Richardson rillllllllllilillllllllllllllllllllllllllI!lllll!llllllllllll!lll!IIIIIIIIIUI(!llllllll!inilll!!UIIIIUIlllllllilllllllimiimillllllllll!lllliimi!IIIUIIinilll!llllllllll!lllimillllllllllllllIIMIIll1III!iIlilill!!llllll!lll!IIIIIIIIHII!llll! !lll!llllllilimillllllllllllllillllimilllllIlimi!lllll!l!lllllllllllll!Ul<m!l!ll!il!lIII!!1lllll1llT Tvö Ijóð I Effir Þórhildi Sveinsdótfur Til œskustöBva Ættarbyggðin aldna mín á þér hefi ég mætur. Lækur þylur Ijóðin sín, ljóð sem hlær og grætur. Þetta er ort til þín og mín, þoka dreifist, sólin skín. Manstu fegri fjallasýn, fegri júlínætur? Þegar glugga fönnin fól feiknir þjáðu sinni. Auðnin ríkti, ekkert skjól, aðeins dauðakynni. x Þá er gott að eiga óð, ofurlítinn varasjóð. Þá var Saga þörf og góð, þá var sumar inni. Ættarbyggðin aldna mín út við flóann breiða. Enn er fögur ásýnd þín, ótal raddir seiða. Hlusta þú á svanasöng sumarkvöldin björt og löng, ef að byggðin yrði þröng enn er rúmt til heiða. Hin litlu spor Þau liggja frá bænum hin litlu spor. Það er liðið á dag. Og bergvatnsáin aldregi söng svo undarlegt lag. En enginn heyrir, og enginn skilur þann örlagabrag. Þau sjást ekki lengur hin litlu spor, það er leitað samt, svo árangurslaust þá löngu nótt og langt yfir skammt, en móðirin hrygga hugboð fær, slíkt er hjartanu tamt. Hér liggur hann sem þeir leituðu að eins og lítið blóm sem brosti mót sól en frostnótt fann og felldi sinn dóm. Þú undrast og spyrð: Er almætti guðs aðeins innantómt hjóm? Þér er svarað: Öllu er ráðstafað rétt þar sem ranglæti ei finnst, en ekkert glatast og allra sízt það sem yngst er og minnst. Og hann sem aldrei hafði syndgað né heiminum kynnzt. Ó, efastu ei framar um ástríki hans sem allt getur bætt, í fegurð er sorginni bitru breytt sem um brjóst hefur nætt. Þau liggja til drottins hin litlu spor, nú er leitinm hætt. 2a. tibL 1964 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.