Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1972, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1972, Side 2
Staðladur heimur handa Svenson athugavert við það; íbúð- ir, sem félagslegt framtak byggir, eiga vitaskuld að vera ódýrar, hagkvæmar og án prjáis. Um þá hlið mannlífs í Svíþjóð er gott eitt að segja. Hins vegar setur að manni hroll, þegar sá grunur fer að verða áleitinn, að fólk meðtaki líka staðlaðar skoðanir. Af sam tölum við alls konar fólk, hing að og þangað, magnaðist sá grunur mjög og er nokkuð ljóst að skoðanamatreiðsla rikisins, sjónvarpið, á mestan þátt í því. En að þvi kem ég síðar. Sú skoðun virðist útbreidd, að velferðarbagginn sé of þungur; að þrátt fyrir allt hafi maður of litla peninga til frjálsrar ráðstöfunax. Þess vegna hugsar fólk sig um tvis- var áður en það kaupir; það verður að fara varlega með fé, og leggur á sig nokkurt ómak að bera saman verð. Ef til vill er vöruverð ekki eins hátt og við mætti búast; fatnaður er á mjög svipuðu verði og í ís- lenzkum verzlunum. Matur er eitthvað dýrari, húsaleiga miklu hærri og sama er að segja um verðlag á íbúð- um. Það er frá 50% og allt upp í 100% hærra en verið hefur hér að undanfömu. Hins vegar eru bílar ódýrari. Það er sízt af öllu einfalt mál að bera saman raunveru- leg lífskjör; svo margs þarf að taka tillit til. Og það er vita þýðingarlaust að einblína á tímakaup eða umsamin mánað- arlaun; ekki sízt í iandi þar sem skattpínisla gengur úr hófi fram. Kostir veiferðarinnar Svíar búa við staðgreiðslu- kerfi á sköttum og menn hugga sig við, að þeir eigi það sem þeir fá. En þegar skattheimt- an hefur tekið sinn hlut, virð- ist meðalmaðurinn naumast vel haldinn. Það lætur nærri að miðlungstekjur séu uppá 2.500 sænskar krónur á mánuði. Má gera ráð fyrir að þriðjungurinr þar af, eða um það bil 750 kr. fari í skatta. Eftir eru þá 1750 (31.500 ísl. kr.). 1 úthverfum Stokkhólms gæti verið að helm ingurinn af þeirri upphæð færi í húsaleigu og enda þótt ríkið taki þátt í þeim kostnaði með húsnæðisstyrk, er þó aðeins eft ir fyrir brýnustu nauðþurftum. Húsnæðisstyrkurinn fer eftir tekjum og aðstöðu, en að auki greiðir ríkið 100 kr. á mánuði með hverju barni. Segja kunn- ugir, að sú upphæð nægi til að klæða barnið. Staðgreiðsla á sköttum hefur ugglaust einhverja kosti og nú er talað um, að við þurfum að taka upp þesskonar kerfi. Skattgreiðandinn finnur þó að sumu leyti óþyrmilegar fyrir sköttunum sínum. Þar sem stanzlaus verðbólga ríkir eins og hér, greiða menn skattana sína árið eftir með talsvert verðminni krónum en álagning- arseðillinn gerði ráð fyrir. Skatteljördan TECKNINO »v EDW. LINDAHL Láttu asnann þefa af byrðinni, þá sættir hann sig við hana. Skopinynd af Stráng, f jármála- ráðherra Svía í sambandi við nýju skattaákvæðin. tJr sænskri hjólbarðaverk- smiðju. Mjög er nú á dagskrá, að verksmiðjurnar séu ömur- legar tii að eyða ævinni í og unnið er að því að afnerria ákvæðisvinnu. I tröppunum hjá Sergelsiorgi: Ungur maður tekur upp sprautu og fær sér eitt „skot“ í handlegginn. Kan snus göra mig impotent? Vechans hrevfrága: PROBLEM■ Jag arfruktans várl ensam. Gifte mej nár jag var 30 ár just Jör atljag var sá ensam. Vi var bara Jafníramt því, sem kynferðis- mál eru á dagskrá skólanna, eru miklar umræður um þau mái og blöðin birta feikn af fróðleik og svara hvers konar fyrirspurnum frá lesendum, svo sem: Getur maður misst kyngetuna af neftóbaksbrúk- un? I Sviþjóð hefur skattpínslan stundum neytt menn til að taka örlagarík skref. Frægt dæmi eru bræður tveir, hinir mestu dugnaðarforkar, sem keyptu niðumíddan búgarð á Skáni. Með mikilli elju unnu þeir að því árum saman að breyta kot- inu í stóran fyrirmyndar bú- garð. Þá vildu þeir gjarnan fara að búa hvor fyrir sig og til þess þurftu þeir að selja bú- garðinn. En þeim var ljóst, að slík sala væri nokkurnveginn það sama og að afhenda rikinu afrakstur áralangs erfiðis. Þeir seldu samt; fengu peningana út i hönd og i fyrstu var þeim smyglað yfir til Danmerkur. En bræðurnir tóku saman sitt haf- urtask; flýðu land og léttu ekki fyrr en í Vancouver i Kanada. Þar hafa þeir nú keypt sinn hvorn búgarðinn. Nýgift hjón eða trúlof- að fólk með börn á framfæri, getur fengið vaxtalaust lán til húsgagnakaupa; lánið er til átta ára. Hvers kyns. sambúð er lögleg, svo framarlega sem viðkomandi aðilar hafa kosið hana sjálfir. Öryrkjar, sem orðnir eru sextán ára eða meira, eiga rétt á sömu greiðslu og eftirlaunafólk fær. Andlega og likamlega bæklað fólk fær um- sjón og skólagöngu án endur- gjalds. En slíkt fólk, sem nær þvi stigi að geta séð um sig sjálft, getur fengið háan styrk til heimilisstofnunar. Velferðar netið er þétt riðið og kemur fjölda fólks vel, en er auðvit- að misnotað að einhverju marki. Þó er aukið eftirlit til að koma í veg fyrir slíkt. Menn geta til dæmis ekki leng- ur verið á endalausum nám- styrkium án bess að koma í skóia eða taka próf. Þrátt fyrir velfe.rðarkerf- ið eru vanda»~iál gamla fólks- ins mikið til bau sömu og ann- ars staðar. Rtkið hefur tryggt fjárhagsafkomu þeirra sem orðnir eru (57 ára. En íbúð hinnar veniulegu kjarnafjöl- skyldu i Svíb.ióð er svo litil, að þar er ekki húsrými fyrir afa og ömmu. Það er mikið rit- að og rætt um ensamhet, ein- manaleik þessa fólks, annað hvort, á elliheimilum eða annarsstaðar. Fjárhagsaðstoð velferðarríkisins hefur ekki bætt úr því sem kannske skort ir mest: samband við fólk og tiifinningu fyrir því að lífið hafi einhvem tilgang. Hin auðuga heild Á þeirri 500 km leið sem er frá Skáni og norður til Stokk- hólms er ekki margt að sjá nema skóginn. Jafnvel á þessu frjósama svæði eru geypilega stórir óbyggðir flákar. Samt er það svo að mikill meiripartur þjóðarinnar býr í landinu sunnanverðu og næstum ótrú- lega stór hluti á svo sem 100 km radíus út frá Stokkhólmi, Gautaborg og Málmey. Um jafn vægi í byggð landsins er ekki hægt að tala; þó hefur þróun- Sænskur verkalýður ber eftir götuni Stokkhólms spjöld með „Jámlikhed“ — jafnrétti — slagorði sósíaldemókrata, sem siimnm finnst tákna um of, að menn eigi ekki bara að vera jafn réttháir, heldur einnig all- ir eins. »HIWt M LHV.IVKH LIVE SH0WS £ \ 1 MED NYA FRASCHA ARTISTER I * SH0WTIME15 • 18 • 21 • 24* LESBIAN SHOW 17 • 2S . PETTING MED PUBUKEN 15, 1í, 17, 20. 22 SEXLOTTERI: 17 • 20 • 25 Ooitulom tom vonllgt Strlp-Teaia varje timme OCh colour-sexfilmt. PQSERING 1 myilga rum. OBS! HEIA PROGRAMMET ENDAST 20:-! I! Somma priier hela dagon och kvöllen! Kom tlll ost alla dagar 12—OJ. Obol Sönd. ðpp. 1J—OJ Mycllol controll 100 m Ir. Kungtg. o, Vaiag. DUkr. ingang i portcn. Sexpretenlor tlll ollal 20 KURfl HORRA KYRKOGATA 70, iNANAH fpOppet fr. 10.00. Ccntralt! Dlikratl NANASS Dagcna proxram color Ijuddlin, j I kvdllcns pr Rila do lopoz Vildo bogar (med publlken) lotbian love Eftir fræga viðdvöl í Danmörku reið klámbylgjan yfir Svíþjóð og er nú mikii gróska í klám- ritum þar ásamt porno-sýning- um hvers konar og sex-sjopp- um. Heiiar síður eru í dagblöð- iinum, þar sem klámstaðir borgarinnar auglýsa fjölbreyti- ieg prógröm. in upp á síðkastið orðið sú, að fækkun hefur orðið í Stokk- hólmi og nágrenni. Fólk flytur þaðan í burtu. Óneitanlega ligg ur mikili styrkur í því uppá framtiðina, að landið er litt byggt á stórum svæðum. Þótt hinn venjulegi Sven- son, sem maður hittir á förn- um vegi, barmi sér ákaflega, eru Sviar sem heild prýðilega rikir. Svíþjóð er svo stöndugt heimili, að einungis Bandaríkja menn teljast ríkari. Þjóð- arframleiðsla Svía árið 1968 var 1350 sterlingspund á íbúa, næst á eftir þjóðarfram- leiðslu Bandaríkjamanna, sem var upp á 1791 sterlingspund á mann. Kaupgeta og neyzla er meiri í þessum löndum en ann- ars staðar. Til dæmis eru 49,9 símar á hverja 100 íbúa i Sví- þjóð, en 54,1 i Bandaríkjun; m. 296 sjónvörp á hveria búsi td íbúa í Svíþjóð, en 409 í Banaa- ríkjunum og þannig mætti lengi telja. Það virðist mótsagnakennt, að stórkapítalistar þrifast vel í háþróuðum sósíalisma sænsku kratanna. Þó er á því skýring og kem ég að henni siðar. Sagt hefur verið að örfáar fjöl- skyldur „eigi Sviþjóð“. Þar af eru fjórar gífurlega auðugar. Samtals eru 32 firmu svo stór, að þau hafa árlega veltu upp á 11 milljarða ísl. króna (ell- efu þúsund milljónir). Mörg þessara fyrirtækja framleiða heimskunna — og frekar dýra — gæðavöru. Sviar eru að minnsta kosti vissir um, að aðrir framleiði ekki neitt betra. Þeir eru mjög hollir sín- um iðnaði. Allar líkur eru á því að hr. Svenson aki annað hvort á Volvo eða Saab; í bað- herberginu hans eru tæki frá Gustavsberg eða IFÖ, konan eldar matinn á Husquarna eldavél og daglegt líf Sven-sons rúllar á kúlulegum frá SKF. Þrátt fyrir þessar fallegu tölur virðist svo sem venjulegt launafólk hér á Islandi hafi úr meiru að moða; búi glæsilegar og leyfi sér að fara mun ógæti- legar með peninga. Þegar íbúð- arhúsnæði er athugað, fer ekki á milli mála, að Svíar búa þrengra og hafa mun minni íburð. I sambýlishúsum er all- ur frágangur staðlaður og sér- smíði á innréttingum ekki til. JTanilikhed og umhverfi manneskjunnar Frágangur á sameicrinlegum forstofum sambýlishúsa mundi þykja óframbærilega fátækleg ur hér; veggir grófpússaðir eða oftar úr stöðluðum eining- um og riflað asbest í loftum. 1 sænskum sambýlishúsum er fyrst og fremst lögð áherzla á það hagkvæma. Hurðir eru mál aðar, sömuleiðis eldhúsinn- réttingar. Harðvið mun erfitt að finna. Engu að síður eru þetta vel skipulagðar íbúðir og vistlegar þegar á allt er litið. Það liggur 1 landi, einkum í Stokkhólmi, að krossbölva blokkabyggingum; slíkt „miljö“ sé ekki fyrir manneskjur. Mik- il ramakvein hafa verið rekin upp í blöðum að undanförnu og meðal annars sagt að í blokkahverfunum verði til ný manntegund, grimm og áreitin, og að á leiksvæðum barrianna ríki lög frumskógar- ins, þar sem sá sterki blívur. Blöðin sögðu: Niður með hverfi eins og Skargarden og Tensba. Látum það aldrei henda framar, að slikt umhverfi verði skap- að af mönnum og fyrir menn. En aðrir hristu höfuðin yfir þessum bækslagangi og kváðu naumast nýtt að krakkar flygj- uist á og að einn yrði sterkari en annar, þar sem gatan er leikvöliur. Franihald á bls. 8. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. mai 197i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.