Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.1973, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.1973, Síða 13
Hinir frægu AM Stars í París 1949: Frá vinstri: Cozy Cole, Jack Teagarden, Lonis Armstrong, Arwell Sliaw, Barn ey og Earl Hines. Gamall maður hlýtur blessun páfans í Róm. Louis Armstrong Að neðan: Mikið vandamál alla ævina: Varirnar, sem vildu springa og mer.jast undan trompetinu. Til vinstri: Komið að leiðarlokum. Louis og Lucilie Armstrong í garð- inum heima hjá sér síðasta sumarið sem hann lifði. Eitt sinn var Luciile fjörugasta dansmeyjan á Cotten Club í New York, en nú hefur hún bætt við sig nokkrum pund- um. 20 ára aldursmunur var á þeim hjónum. Með Barhra Streisand í Hello Dolly. V -r.-=: ....J Að vilja, veljaog vera ÞEGAR ég rekst á gamlar námsbœkur frá menntaskóla- árunum í bókahillunmi, sé ég, að ekki er óalgengt að á tistil- blaðinu standi eitthvert mottó auk nafns eigandans eða rétt- ara sagt nafna, því að algengt var, að bækur þessar gengju frá manni <til manns. Auðvitað notaði maður latínuna eins og hægt var, t.d. var algengt mottó: „Per aspera ad astra“ (Gegnum erfiðleikana tril stjarnanna), en franskan var heldur ekki spöruð og vinsælt mjög var „Vouloir c’est pou- voir“ (Vilja er að geta). Já, við vildum verða svo margt og mikið í þá daga, — en hefðum náttúrlega alveg eins getað notað íslenzka máls- háttinn: „Viljinn dregur hálft hlass“ til þess að stappa i okkur stálinu. \ Þegar út úr menntaskólan- um kom, fóru margir í há- skólann til að verða það, sem þeir vildu. En auðvitað urðu allir einnig að ganga í skóla lífsins — og þá kom ýmislegt annað til sögunnar. Nú var ekki nóg að vilja, nú þurftu margir að velja — og ekki var það sízt kvenfólkið. Ekki var á þeim tímum búið svo vel í haginn af þjóðfélagsins hálfu (og er víst ekki enn), að sú kona, sem t.d. vildi verða lœknir, gæti gengið þá braut beint, ef hún vildi líka gifta sig og eignast sín börn á góð- um aldri. Margar urðu því að velja um þetta tvennt, þó að einstaka dugnaðarforkur gerði hvort tveggja, þá oft með aðstoð cettingja. En eiga þœr þá ekki ósköp bágt þessar konur, sem ekki gátu látið framadrauma sína rœtast? Það er undir þeim sjálfum komið, þœr völdu og fólk velur alltaf það, sem það Vill heldur. Þeir, sem eru sí- stritandi og púlandi eru að því, vegna þess að þeir taka það fram yfir eitthvað annað, og þeir sem sífellt eru að fóma sér fyrir aðra, gera það vegna þess, að annars líður þeim sjálfum ekki vel. „Hver er sinnar gœfu smiður“ held ég að sé einn sannasti og bezti málsháttur okkar. En þó að mð höfum viljað og valið, er ekki allt búið enn. Eitt er eftir og undan því kemst enginn. Það er að vera. Auðvitað eru margir óánœgð- ir með störf sín og stöðu í líf- inu, mörgum finnst hlutverk sitt ekki nógu stórt eða gott. En aðalatriðið er að gera hlutverkiinu nógu góð skil, — að vera glaðlegur og jákvœð- ur er miklu meira atriði en flesta grunar. Ég vil draga það í efa, að meira sé að vera grútfúll læknir en glaðleg þvottakona. En auðvitað eru líka til glaðlegir lœknar og grútfúlar þvottakonur. Eflaust liafa allir tekið eft- ir því, hvað manni liður mis- jafnlega vel eftiir að hafa tal- að við fólk. Sumir eru sífúlir og kvartandi yfir sínum að- stæðum eða sískítandi út ann- að fólk og maður getur verið lengi að ná sér eftir að tala við þvílíkt fólk. Aðrir eru hressir, kátir, víllausir og já- kvœðir og lífið verður allt léttara eftir viðtal við slíkt fólk. Svo eru þeir, sem eru síelskulegir og kátir við ná- ungann, en sýna eigin fjöl- skyldu aldrei annað en tóm- lœti og fýlu, nota hversdags- viðmótið heima, en sparivið- mótið út á við. Kannski er okkur húsmœðrunum hœtt við. Kannski er okkur hús- mœðrunum hœtt við hinu síð- astnefnda? Nei, enginn kemst undan hlutverkinu að vera og raun- verulega er það aðalhlutverk lífains, hvert sem starfsheitið er. Anna María Þórisdóttir. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.