Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Blaðsíða 9
samtals 102. Þar af eru 57 á
fyrsta og öðru ári, eða í For-
skóla I og II, þar sem lögð er
stund á þau undirstöðuatriði,
sem koma að notum í öllum
sérgreinum. t kennaradeild og
öðrum sérdeildum eru 45 nem-
endur; viðfangsefni þeirra er
einhverskonar myndsköpun
allan liðlangan daginn, nema
seinnipart vikunnar. Þá er
gluggað f bókleg fræði, list-
sögu, ensku og móðurmálið.
En að auki er mikið lff og
fjör á kvöldnámskeiðum skól-
ans og hvorki meira né minna
en 350 manns, sem sækja þessi
námskeið. Þar af eru rúmlega
50 úr fimmta og sjötta bekk
menntaskólans f Reykjavík;
nemendur sem hafa byggingar-
listog myndlistsem valgreinar.
1 þessu atriði kemur Myndlist-
arskólinn hinu almenna skóla-
kerfi til hjálpar.
A eftirmiðdags og kvöldnám-
skeiðunum er teikning og mál-
un f barnaflokkum á verkefna-
skrá; einnig fyrir fullorðna.
Sjöfn Haraldsdóttir út-
skrifaðist í frjálsri myndlist r
vor. Er nú i akademíinu
Þar að auki bókband, tauþrykk,
almennur vefnaður, myndvefn-
aður og upprifjunarnámskeið
eru haldin þar fyrir eldri nem-
endur skólans. Svo mikil aukn-
ing er f þessum kvöldnámskeið-
urn, að búizt er við öðrum álíka
hópi á námskciðin sfðari hluta
vetrar, sem hefjast eftir 20.
janúar. Má lfta svo á, að hér sé
um veigamikinn þátt í mennt-
un fullorðinna að ræða.
— 0 —
Áður var fjöldi nemenda meiri
og meðalaldurinn lægri; þá gátu
allir komizt inn, sem vildu. En nú
hefur önnur leið verið valin:
Inntökupróf er látið skera úr og
þar er sigtað miskunnarlaust úr.
Og inntökuprófið hefur ráðið úr-
slitum um, að meðalaldur nem-
enda hefur hækkað verulega. Með
altalið við inngöngu í skólann er
nú 21 ár. Afleiðing þessarar
breytingar er meðal annars sú, að
skólinn hefur fengið betri og
þroskaðri nemendur. Síðastliðið
haust sóttu 87 unt skólavist, 67
mættu til prófs og33 stóðust próf-
ið. Þarna er undirbúningur, geta
og hæfileikar hinna væntanlegu
nemenda kannað rækilega.
Fyrsta dag prófsins eru umsækj-
endur látnir teikna einhvern ein-
faldan hlut. Annan daginn er
gerð mynd í sambandi við tlltekið
verkefni, til dæmis sumarleyfið,
landhelgina, herbergið mitt,
o.s.frv. Þriðja dag prófsins er
módelteikning eftir lifandi
módeli, fjórða daginn svonefndur
línuleikur, óhlutlæg litameðferð.
En fimmta og síðasta dag prófsins
er almenn þekkingarkönnum;
umsækjendur eru spurðir um
heiminn og atburði samtímans.
Að iokum skrifa þeir ritgerð:
Hversvegna ég vil stunda nám i
Myndlistar- og handíðaskóla ís-
lands.
Af öllu þessu má sjá, að bóhem-
ar með dapra listræna hæfileika
og óljós markmið lenda mjög lik-
lega i úrkastinu. Hitt er svo annað
mál, að slagorð dagsins hljóðar
ekki beinlínis uppá að ganga sér
Tove Kjarval og fjórar ungar stúlkur, sem valiS hafa keramik sem sérgrein.
til húðar með vinnu, þegar skóla-
æskan er annarsvegar. í þvi efni
virðist enginn teljandi munur á
listnemum og annarra skóla fólki.
Þetta barst í tal i kaffinu á kenn-
arastofunni; ég kvaðst hafa átt
von á eldlegum áhuga, þar sem
svo margt ungt fólk væri saman
komið, sem allt hefði áhuga á að
ná listrænum árangri eftir því
sem maður gæti haldið. Mundi
ekki þessi áhugi verða smitandi,
þegar svo margir kæmu saraan og
magna hugsjónabál eins og i
menningarbyltingunni í Kina?
Menn voru eitthvað dræmir yfir
því og skýringarnar hnigu helzt í
þá átt, að áhrifin frá gagnfræða-
skólunum næðu langt; stundum
væri svo að sjá að nemendurnir
legðu þetta á sig kennaranna
vegna, auk þess sem tíðarandinn
væri sísona. Þær skýringar heyrð-
ust lika, að til væru þeir nemend-
ur, stundum Búnir ágætum hæfi-
leikum, sem litu á listina sem
einskonar ávísun uppá góða og
náðuga daga. En það fylgdi sög-
Gísli B. Björnsson, skólastjóri.
unni, að sú afstaða væri sizt af
öllu ný.
— 0 —
1 upphafi þess pistils gat ég
þess, að áhuginn virtist vakandi
hjá þeirn, sem glímdu við hlutar-
teikninguna í Forskóla I. Á nám-
skrá þeirra eru að auki greinar
eins og Frumformfræði, Litfræði,
áferðarteikning, módelteikning,
myndbygging og útiteiknun. Á
öðru ári bætist við anatómia,
form- og litfræði, myndmótun,
málun, umhverfisteiknun og graf-
Ljósmyndir:
Sveinn Þormóðsson
Bragi Ásgeirsson leiðbeinir
nemanda í forskóla II. Við-
fangsefnið var frjáls mynd-
sköpun. Jafnóðum eru
lausnirnar festar upp á vegg-
inn. Beinagrindin virðist
ánægð með þetta svona.