Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Blaðsíða 14
/QrTkuJvad) Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer fást í Gefjun Austurstræti, Domus Laugavegi 91. og hjá kaupfélögum um land allt. Fatnaður á alla fjölskylduna. Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar um vióa veröld. Framleiddar undir strangasta gæðaeftirliti. # % 1 % m f \ 'íkk Samband íslenzkra samvinnufelaga Innflutningsdeild Sambandshúsið Rvík sími 17080 ... Börnin teikna og skrifa Jólin hjá jóla- sveinunum 1. kafli: í helli Grýlu. í hellinum hjá grýlu var ys og þys. Nú voru að koma jól og jólasveinarnir voru að búa sig í ferð til bæjarins. Grýla var önnum kafin við að sauma rauð föt á jólasveinana, en þeir voru að láta pakka í pokana sína. Grýla sagði: Loksins er ég búin, en þið, ha? Já og nei, var svarað. Jæja,eruð þiðekki bún- ir allir? Nei, bara Gáttaþefur, sagði Kertasníkir. Nú var komið að því að þeir áttu að leggja af stað. Grýla stóð í hellisdyrunum og veifaði þeim. Munið að strlða ekki Gáttaþefi þó að hann fái rautt nef, munið það. Já, mamma sögðu þeir. Og Kertasníkir, mundu að sníkja kerti svo við fáum nógu mikið Ijós. Já, mamma, sagði hann. 2. kafli: Á leið til bæjar. Á leiðinni gleymdu þeir sér. Gáttaþefur fékk rautt nef, þeir strfddu honum og kölluðu hann rauðnef. Gáttaþefur sagði ekk- ert, bara gekk áfram meðjóla- köttinn á hælunum. Þeir héldu áfram niður fjöllin, allt í einu kallar Gluggagægir: Gáttaþefur, ætlarðu ekki að segja neitt? Ég hef ekkert að segja, sagði Gáttaþefur. Þeir köfuðu snjóinn áfram og áfram, þeir urðu að komast til bæjarins, og loksins sáu þeir í bæinn. Loksins, sögðu allir i kór. 3. kafli: í bænum Nú löbDuðu þeir inn í bæinn. Nú sagði Bjúgnakrækir, ég ætla að gefa honum . . ., hvað heitir hann nú aftur? he, ha, já Helgi, já, já, Helgi heitir hann, ég ætla að gefa honum fína bílinn sem ég er með. Ég ætla að gefa henni Siggu fínu dúkk- una með lokkunum, og líka blúndukjólinn, sagði Skyr- gámur. Nei, halló Jón, hvað ertu að gera hér? Æ, ég fékk mér bara göngutúr. Hvar er Helga systir þín? Hún fór til ömmu. En Hafsteinn? Hann er heima. En hvaðer hann nú gamall? 4ára. En Helga? 12 ára. En þú? 10 ára. Æ, fyrirgefðu, við verðum að flýta okkur, við biðjum að heilsa öllum, bless, bless. 4. kafli: Hvað á ég að gefa Ffu Gluggagægir var alveg í vand- ræðum hvaðhann ætti aðgefa Fíu. Gáttaþefur, veist þú það? Nei, ég veit það ekki, en þið hinir? Nei, nei, kom úr öllum áttum. Æ, nei, ég veit ekki hvað ég á að gefa Fíu, en hvar er Bjúgnakrækir? Hann hlýtur að vita hvað ég á að gefa Flu. Þeir leituðu, og kölluðu: Bjúgnakrækir, hvar ertu? Loks- ins komu þeir inn í búð, þar var Bjúgnakrækir. Heyrðu, talaðu viðmig. Hvaðá ég aðgefa Fiu? Litabók og liti. Já, auðvitað, snjall ertu Bjúgnakrækir. ..Ég sá mömmu kyssa jóla- svein" eftir Ingu Rósu Lofts- dóttur, 11 ára. 5. kafli: Jólin Jólasveinamir voru önnum kafnir við að bera út jólapakka handa Helga, Siggu, Jóni, Helgu, Hafsteini, Fíu og mörg- um öðrum. Jólasveinarnir voru allir komnir að húsi Jóns. Mamma hans hafði beðið þá alla að koma og tala við sig. Jæja, hóf mamma Jóns mál sitt, við ætlum að spyrja ykkur hvort þið viljið ekki fá mat hjá okkur. Þakka þér fyrir hrópuðu þeir, það viljum við, nam, nam. Þeir gengu inn í stofu. Þeir borðuðu sig sadda og svolítið sr nt um kvöldið fóru þeir n. Kertasníkir fór út sein- astur, hann hafði fengið 2 kerti. Mamma hans Jóns gaf honum 4 stór kerti. 6. kafli: Gamlárskvöld Á gamlárskvöld fannst þeim voða gamanaðsjá brennurnar, rauðir og gulir eldstrókar stigu upp i loft, þetta fannst þeim voða gaman að sjá. Daginn eftir þrettánda héldu þeirheim. 7. kafli: Haldið heim Þeir voru á leið heim, nú sáu þeir hellinn. Þeir hertu á sér. Nú kom Grýla út og tók á móti þeim. Kertasníkir rétti henni 6 kerti mjög rogginn. Katrín Jansen, Rauðalæk 6, 8 ára.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.