Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1973, Side 10
Hringborðsumræður í kaffinu. Þessir forskóla- nemendur ætla flestir í kennaranám. Færri leggja stund á frjálsa myndlist en áður. > í forskóla II. Það sem fest hefur verið upp á vegginn, gefur nokkra hugmynd um viðfangsefni. ík. Með öðrum orðum: heill heim- ur af nauðsynlegri grundvallar- þekkingu. Stundarkorn fylgdist ég með kennslustund hjá Braga Asgeirs- syni í form- og litfræði. Hér var unnið að verkefni, sem er næstum því eins langt frá nákvæmri hlutateikningu og hægt er að komast. Viðfangsefnið var um- búðalaus myndbygging. Til þess að skýra nánar hvað við er átt, er bezt að lesa klausuna, sem Bragi útbýtti, svo ekki fari milli mála, hver er megurinn málsins: „Nemandi fær sér blað og hæfilega fjölbreyít safn af lit- um, túski, krft eða öðru. Hann dreifir úr litnum fyrir framan sig og án þess að ákveða hvað hann ætlar að teikna eða mála lætur hann höndina velja ein- hvern lit og hefur verkið. Horf- ir á hönd sína velja litinn og horfir á höndina fara að hreyf- í auglýsingadeild. Upp- rennandi auglýsingateiknarar spreyta sig í norrænni sam- keppni um kaffiplakat. Á bak- veggnum sjást nokkrar lausn- ir. ast og vinna, en hefur engar áhyggjur af því, hvaða stefnu hann skuli taka byrjar einungis hugsunarlaustog lofar því að koma sem vill koma. Þannig gefur hann hinum ósjálfráða dulvitaða myndræna huga tækifæri, til að tjá sig án trufl- unar frá hinni meðvituðu rök- rænu hugsun. Fylgstu með framvindu myndarinnar, taktu eftir hvernig hún þróast, hvað þér dettur í hug, þegar þú ert að gera viss form eða nota vissa liti. Vertu ekkert að reyna að sjá neina sérstaka merkingu út úr myndinni eða ákveða hvað hún á að verða, taktu eingöngu eftir öllu, sem þér dettur í hug og ef ákveðin form koma fram, þá tekurðu auðvitað eftir þeim eins og öðru. Vertu ekkert að flýta þér, slakaðu á og lofaðu myndinni að þróast í rólegheit- um, láttu tilfinninguna ráða fremur en hugann, en láttu hugann fylgjast vel með. ÚRVINNSLA: Þegar þér finnst myndin full- gerð, skaltu fara að velta fyrir þér merkingu hennar, horfðu á hana og skoðuðu hana um stund. Hvort heldur sem mynd- in hefur huglæga sem hlutlæga merkingu, þá hefur hún margt að'segja ef tilraunin heppnast. Skrifaðu það sem þér dettur í hug á autt blað eða aftan á myndina. Til þess að komast í gang er oft gott að lýsa því hvernig myndin varð til. Einn- ig getur þú spurt þig: „Hvernig myndi mér Ifða, ef ég væri þessi mynd?“ og skrifa niður það sem þér dettur í hug sem svar. Nota skal fm.vndunaraf lið við úrvinnsluna, skrifaðu einungis niður það sem þér dettur í hug. Þegar þú ert búinn geturðu gert aðra mynd, og þjálfað þig enn frekar í þessum sérstöku vinnubrögðum." Þeir sem eitthvað hafa komið nærri myndlist, vita að þetta get- ur verið mjög heillandi verkefni. Meistarar á sviði ljóðrænna abstraktmynda hafa gjarnan þessa aðferð; segja má, að eðlis- hvötin stjórni fremur en köld rök- hyggja. I þessu er fólgin góð og gagnleg þjálfun og margur hefur á þennan hátt uppgötvað alveg nýja hlið á myndlistinni. Samt var ekki hægt að sjá, að nemendur í Forskóla II gengju að þessu verkefni með áhuga, eink- um virtust piltarnir daufir yfir þessu hlutskipti. A hinn bóginn var greinilegt, að stúlkurnar lögðu sig betur fram. — 0 — Skólinn hafði fengið boð um að taka þátt í norrænni samkeppni um kaffiplakat — auglýsinga- skilti fyrir Cirkel kafffi frá nor- ræna samvinnusambandinu. Atta listaskólar á Norðurlöndum taka þátt. I auglýsingadeild eru sjö nemendur; þeir voru allir að kljást við kaffiplaköt. Sumir voru með frumhugmyndir I skissum, aðrir að útfæra einhverja hug- mynd i fulla stærð. Bókagerð, hverskonar auglýsingar og um- búðir, þar á meðal fyrir útflutn- ingsiðnaðinn, hafa notið góðs af þeirri kunnáttu, sem til verður í auglýsingadeild Myndlistarskól- ans. Þeir sem velja þá leið að loknum forskóla, útskrifast eftir tvo vetur. Af námsgreinum má nefna letrun og skrift, merki, uppsetningu, bókakápur, teikn- ingar og uppsetningu sýninga. En auglýsingadeildin var ekki ein um glímuna við kaffiplakatið. Allir nemendur skólans máttu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.