Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1974, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1974, Qupperneq 8
MÖRI Á MYND? Þess eru allmörg dæmi, að yfirskil- vitlegir hlutir hafi komið fram á mynd, til dæmis fólk, sem Ijósmyndarinn varð ekki var við, þegar hann tók myndina. Hér er einmitt dæmi um þesskonar fyrirbæri. Þessi mynd er tekin fyrir allmörgum árum norður á Ströndum. Þar voru þrír menn á ferðalagi og ekki öðrum mönnum til að dreifa. Einn þeirra félaga tók mynd af hinum tvoim- ur, þar sem þeir voru eitthvað að stússa í kringum báta. En viti menn; á myndinni eru mennirnir þrir. Sá þriðji er lengst til hægri hann er á hreyfingu og eitthvað ógreinilegri en hinir. Hver gat þetta verið? Svo einkennilega vill til, að hinn landsfrægi Skerflóðsmóri, sem sagt er frá hér að neðan, var sagður fylgja einum þeirra þremenninganna, sem þarna voru á ferð. Það skyldi þó aldrei vera, að Skerflóðsmóri hefði festst á filmunni, þótt ekki yrðu þeir félagar varir við hann þarna. Skerflóðsmóri eða Selsmóri (Eftir J. Á. 1 og Guðna I.) I. Upphaf Skerflóðsmóra Seint á átjándu öld bjó bóndi sá, er Einar hét, að Stéttum í Hraunshverfi í Stokkseyrarhreppi. Einhverju sinni kom til hans förupiltur, svangur og klæðlítill, og beiddist gistingar, en bóndi synjaði honum um allan greiða og úthýsti honum. Veður var kalt, með fjúki og frósti, og fór pilturinn á brott í þungum hug. Þó að skammt sé milli bæja þar í hverfinu, rataði pilturinn ekki á neinn þeirra, heldur villtist niður undir sjó og varð þar til í svonefndu Skerflóði fram undan Borg. Gekk hann þegar aftur og fylgdi síðan Einari og niðjum hans. Var hann nefndur Sker- flóðsmóri og gerði mönnum ýmsar skráveifur, villti fyrir ferða- fólki og ærði fénað. Einar á Stéttum átti tvær dætur. Eldri systir- in var Þuríður formaður, sem nafnkunn er, en sú yngri Salgerður. Móra var um það kennt, hversu illa Þuríði lánuðust hjúskapar- tilraunir, eins og sagt er frá í sögu hennar. Salgerður giftist manni þeim, er Kristján hét. Þau bjuggu að Seli í Stokkseyrar- hreppi til elli og áttu margt barna. Eftir að Salgerður giftist, hallaði Móri sér einkum að henni og niðjum hennar. Varð hann þá viðloðandi í Seli og síðan oft kenndur við þann bæ og kall- aður Selsmóri. II. Fylginautar Selsmóra Maður er nefndur Jón Þórðarson. Hann bjó lengst að Vestri-Mó- húsum í Stokkseyrarhverfi og varð nafntogaður fyrir auðsæld sína, komst svo vel í tána, að taiið vár hann keypti jörð með ári, þegar á leið fyrir honum. Sagt er, að hann á fyrri búskaparárum sínum úthýsti stúlkuvesalingi, sem varð úti, gekk aftur og fylgdi honum síðan. Hún var kölluð Móhúsaskotta og gerði Jóni margvíslegan óskunda. Þau Seismóri lögðu lag sitt saman og urðu eftir það hálfu verri viðfangs en áður. Maður er nefndur Tómas Björnsson Hér segir af Skerflððs- möra, sem var vel kunnur um landið allt ð síðustu öld og fram ð þessa Nú mun þð vera farið að dofna yfir honum og átti heima í Norðurkoti á Eyrarbakka. Eitt sinn fór hann austur í Stokkseyrarhverfi, keypti þar hangikjötskrof til jólanna og lagði af stað heimleiðis um dagsetur. En morguninn eftir fannst hann dauður, allur sundurtættur, blár og blóðugur, í Arnórstanga, ofan við dælina austur undir Gamla-Hrauni. Tómas þessi lá ekki kyrr, og sást hann síðan í fylgd með þeim hjónaleysunum, Skottu og Móra. Þá urðu reimleikarnir svo rammir, að engum var fært, eftir að rökkva tók, frá Stokkseyri út á Bakka eða af Bakkanum austur þangað, án þess að um hann væri villt eða hann yrði fyrir bekkingum þessara félaga. Kom því svo, að Jón í Móhúsum keypti af Klaustur-Jóni að ráða niðurlögum þeirra Skotrn og Tómasar, en Móri komst undan. Faldi hann sig í skreiðarbát úr Þorlákshöfn og sást hlaupa upp úr bátnum, eftir að Jón var farinn austur. Síðan fékk Móri að leika lausum hala, og gerði hann mönnum marga hrekki, villti fyrir þeim og leiddi þá út í ófærur, ef þeir voru á ferð, eftir að birtu var brugðið. Honum var m. a. kennt um dauða Jóns Arnasonar, bónda í Vælugerði í Flóa, skömmu eftir nýár 1846. Margir núlifandi menn hafa séð Móra eða orðið hans varir með ýmsu móti, og skal hér aðeins sagt frá tveimur dæmum þess, sem bókfest eru. IV. Páll Isólfsson sér Móra (Htmdaþiifan og bafið. — Matthías fohannesscn ratSir við P. t.) Ég var snemma hneigður til einveru og ranglaði einsamall um holt og hæðir, talaði við dýrin eins og þau væru mennskir menn, rauðan hest, sem kom oft á móti mér, kolsvarta kú, sem hét Dimma. Dag einn ráfaði ég upp í heiðarnar fyrir ofan þorpið að sækja hesta. Það var seinnipart sumars, blíðskaparveður, en loft skýjað, ög einhver drungi hvíldi yfir landinu. Ég settist á þúfu og hlust- aði á mófuglana syngja, þeir eru óvenju margir á þessum slóðum. Allt í einu sé ég eitthvað koma í áttina til mín og færast nær með þó nokkrum hraða. Ég stend upp. Jú, það er ekki um að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.