Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1974, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1974, Blaðsíða 4
Hve margir þeirra ferðalanga, sem ár hvert halda til Kanarieyja eða Costa del Sol, skyldu vita, að níu tíundu hluta leiðarinnar er stjórn vélarinnar í „höndum" raf- eindaheila á stærð við meðal kon- fektkassa? Nú bendir ekkert til þess, að flugmönnum verðinokkurn tíma ofaukiö í farþegaflugvélum. En þróun smágerra leiðsögu- og stjórntækja flugvéla hefur verið ákaflega hröð undanfarið. Og frá því árið 1962 hefur þar til búnum herflugvélum verið flogið, lent og þær hafnar á loft í þoku, reyk- mekkjum, skýjum og náttmyrkri án þess flugmannirnir gerðu ann- að en ýttu á hnappa eða sneru þeim. Bandarískir flugvéla- hönnuðir láta jafnvel að því liggja, að í náinni framtíð geti herflugvélar lagt til orrustu mannlausar, eftir fyrirmælum frá f jarlægri stjórnstöð. Fyrir tiu árum var meðaláhætta á alvarlegu slysi i farþegaflugi talin ein af hverri milljón lend- inga. Þá smiðuðu Smiths Industries, sem voru frumkvöðl- ar i gerð sjálfvirkra lendingar- tækja, tíu sinnum öruggara tæki, og var þá áhættan orðin einn á móti tíu milljónum. Þetta var feikileg framför I rafeindatækni, en takmarkiö er algerlega sjálf- virkt flug og ættu þá flugvéla- ræningjar brátt að verða úr sög- unni eins og stigamennirnir gömlu. Því meiri, sem sjálfvirkn- in verður, þeim mun fleiri flug- vélar geta lent og hafið sig á loft á hverri klukkustund og þar með minnkar einnig biðtími farþega, bæði f flugstöðvum og í lofti. Nú geta flugumferðarstjórar á Lund- únaflugvelli boðið vélum til lendingar á einnar og hálfrar mínútu fresti. En nú hefur fyrir- tækið Ferranti smíðað nýjan búnað fyrir The Royal Radar Establishment og kallar hann CAAS, Computer Assistance Approach Sequency. Á þessi búnaður að auka lendingartiðni flugvélanna með öruggum hætti, og verður þá hægt að sinna fleir- um en áður. Þá er verið að gera tilraunir með gervihnött sem á að auðvelda flugumferðarstjórn. Fyrir tveim- ur árum sameinuðust Bandarikin, Kanada og öll Evrópuríkin um að hrinda þessari hugmynd í fram- kvæmd, en síðan skárust Banda- ríkjamenn úr leik og vinna nú að þessu upp á eigin spýtur. Hugmyndin er sú, að gervi- hnetti verði komið á braut u.þ.b. 35 þúsund km frá jörðu og hafi hann stöðugt auga með allri flug- umferð yfir Atlantshafi. Stjórn- stöðvar í Prestwick og Gander verða tengdar stórum og miklum loftnetum og senda gervihnettin- um merki, sem „Iýsa“ hafið allt. Síðan fá flugvélar þessi endur- sendu boð og varpa þeim aftur til stjórnstöðvanna á jörðu. Um- ferðarstjórnin á jörðu niðri á þannig að geta fylgzt með öllurn flugvélum á þvi svæði, sem gervi- hnöttur hennar tekur til, eins og á ratarskermi. Með þvi móti má minnka þaðrúml.þrjátíukm bil, sem hingað til hefur verið milli flugvéla á Atlantshafsleiðum. Auk þess komast fleiri vélar að, flugtíðni mun aukast og unnt verður að lækka fargjöld. Einhver markverðasta nýjung- in í farþegaflugi, er það, sem nefnt hefur verið ,,MONA“ úr tveimur fyrstu stöfunum í „modular navigation", og er ætlað fyrir flugkerfi, sem svæðis- flug heitir, en það er þegar flogið er milli tveggja staða án þess að fylgt sé fyrir fram ákveðinni leið með leiðsögn radíóvita. Aður urðu flugmenn að fylgja radíó- sviðinu, þ.e. fljúga frá A til B gegnum þriðja punkt. En svo fremi sem flugumferðarstjórn tekur ekki a'f þeim ráðin geta þeir nú valið um leiðir og hefur það ýmsa kosti í för með sér. Eins og nú er ástatt getur flug- maður, sem nálgast Washington rekið sig á það, að hundrað vélar séu komnar áður.hringsóli allar yfir vellinum og bíði lendingar. Flugturninn verður að hleypa þeim að í nákvæmri röð, ef ekki á illa að fara. Sú siðasta í röðinni kann að þurfa að bíða í klukku- stund eftir lendingarleyfi. Slíka umferðarhnúta má forðast eigi flugmennirnir um fleiri leiðir að velja; þá koma vélarnar að með heppilegu millibili og lendingar- tafir minnka að mun. „MONA“ er sameiginlegt verk bandariska fyrirtækisins Ambac og Decca I Englandi og smíðað fyrst í Lockheed-flugvélagerðina Tri-Star. Þær upplýsingar, sem flugmaðurinn æskir.birtast á eins konar sjónvarpsskermi, og koma þær úr birgðageymslu eða minni tölvu I flugvélinni. Fær flugmað- ur þaðan upplýsingar um stað, áttir, eldsneytisblrgðir og fjar- lægð til ákvörðunarstaðar. Flug- félög, sem þegar hafa ákvéðið að taka þetta kerfi í notkun.eru m.a. Court Line Aviation (er tók fyrir skemmstu við fyrstu Tri-Star- þotu sinni sem búin er ,,MONA“), Delta Airlines í Bandaríkjunum, og japanska félagið All Nippon Airways. „MONA“ er sannkallað tækni- undur og möguleikar þess geysi- legir. Kerfi þetta gerir í fyrsta sinn kleift að geyma línur flug- leiðarinnar á segulbandi, en síðan „sækir" tölvan þær og kemur þeim á framfæri jafnóðum og þeirra er þörf. Þetta er líka fyrsta kerfið, sem býður upp á rafeinda- kort, er tölvan setur einnig saman eftir minni sínu. Næsta skrefið verður svo trú- lega að sameina starfsemi þess- arar tölvu og annarrar stærri, sem mötuð hefur verið til fleiri hluta en leiðsögu. Svo örar eru framfarirnar í gerð slíkra rafeindatækja til hjálpar I flugi, að manni veitist hálf örðugt að trúa því, að fyrsta farþegaflugvélin í venjulega áætlunarflugi lenti sjálfvirkri lendingu fyrir aðeins tæpum níu árum. Þetta gerðist í júnímánúði árið 1965 og vélin var af gerðinni Trident. Flugmsðurinn tók ekki við stjórr.inni fyrr en skotspölur var eftir upp brautina. Það er kaldhæðnislegt að hugsa til þess, að hættan á árekstri við óvæntan aðskotahlut á flugbrautum er enn meiri en slysahætturnar á þeim þúsundum mílna flugleiða, sem vélarnar þjóta undir sjálfvirkri stjórn. Nú eru liðin 45 ár frá fyrsta „blindandi" flugtakinu og lendingunni. Sfðar var farið að Ieiðbeina flugvélum með radíó- eeislum og gýróskópum. Fyrsta „geislakerfið", radíókerfið, sem varð upphaf að svæðisflugi okkar tíma, er nú rúmlega fjörutíu ára gamalt. Þetta radíókerfi var þannig I höfuðatriðum, að flugvallarsendir sendi í sffellu tvö Morsetákn — A fyrir hægri og N fyrir vinstri. Flugmennirnir báru heyrnartæki. Stefndu þeir of langt til vinstri dofnaði A-merkið, en færu þeir of langt til hægri hvarf N-merkið. Væru þeir hins vegar nákvæm- lega á geislanum heyrðust bæði merkin jafnhátt og stöðugt. Fyrir 1500 árum höfðu Kfnverj- ar fundið upp áhald, sem nefna mætti „Suðurfinn". Þetta var mannsmynd með útréttan hand- legg og stóð í tvihjóla kerru. 1 kerrunni var hugvitssamlegt kerfi gíra og skipti engu hvernig henni var snúið — ævinlega benti Suðurfinnur beint í suður, eins og hæglega mátti sjá af stjörnum. Þó var gýróskópið enn betra. 1 Trident lendir me8 sjálfvirkum tækjum I svartaþoku. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.