Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1977, Qupperneq 5
Næsta morgun hefur fár-
viðrinu slotað. En útvarpið
segir ðfagrar fréttir. f landinu
rfkir hreint ófremdarástand.
Fjöldi trjáa hafa brotnað og
rifnað upp með rótum. Vfða
hÖfðu þessi tré valdið stór-
skaða, þar sem þau hafa ffallið
á hús og brotið þökin, slitið
sfma og rafmagnsleiðslur, þau
hafa fallið á bfla og eiðilagt
þá, mörg hafa fallið yfir götur
og vegi og er umferðaröng-
þveiti af þeim sökum. Á
Sæbyholm hrundi hundrað og
tfu kúa fjós og þær kýr, sem
ekki höfðu drepist strax, voru
drepnar stórslasaðar. Hluti að
þaki Cristjánsborgarhailar,
sem er úr þriggja m.m. þykk-
um kopar, losnaði og vafðist
upp. Fjórir höfðu farist af
slysförum og tuttugu og einn
drukknað, þegar skip sökk á
Norðursjó. Við Roskilde fauk
minkabú á hliðina og þúsund
minkar sluppu út, drengjum f
nágrenninu til mestu ánægju;
þeir gátu notað haustfrfið sitt
úr skólanum til þess að fara á
minkaveiðar. Flestir mink-
anna náðust fljótlega aftur, en
þó hafðist þeim unnist tfmi til
þess að stúta nokkrum alifugl-
um.
Flugvellinum f Kastrup
hafði verið lokað um hálf nfu
leytið kvöldið áður, eða
skömmu eftir að við lenntum
þar. Tvær flugvélar I eigu
Faro-Airways fuku saman og
ný flugvel af Nord 262 gerð
eign Cimber-Air fór á hliðina.
önnur vél, einnig eign Cimb-
er, fauk á byggingu og rakst
annar vængur hennar inn um
glugga.
Dönsku skógarnir hafa þó
orðið verst úti; 600 þúsund
rúmmetrar, lauslega áætlað
hafa brotnað niður og ekki
nýtilegir til annars en eldivið-
ar.
Við göngum út f borgina.
Allsstaðar er verið að ryðja
burt trjám og trjágreinum, og
gengur þessi vinna ótrúlega
fljótt. Þeir saga trén, að stór-
virkum vélsögum f u.þ.b.
meterslanga búta. Þessir trjá-
kubbar eru svo drifnir upp á
bfla og þeim ekið á brott. „En
fátt er svo með ölli illt--“,
við göngum fram hjá barna-
leikvelli þar sem tré, með
stóra laufkrónu, 'hafði fallið á
hliðina. Strákpatti sem klifrað
hefur upp f efstu greinarnar
hrópar himinlifandi. „Ég er
api“. Og hin börnin eru óðara
orðin að villidýrum, sem lifa f
frumskóginum.
Hvar sem við komum er
óþrjótandi umræðuefni hjá
fólkinu. Það er talað um fár-
viðrið, sem braut 150 ára
gamla eik f garðinum hennar
frú Liang, sem feykti burt
skorsteininum hjá frú Larsen,
sem liðaði sundur 10 nýbyggða
sumarbústaði sem nágranni
hans Jensens hafði byggt úr
flekum og ætlaði að selja með
vorinu. Flekana tók á loft; þeir
komu að vfsu niður aftur, en
þá mátulega brotnir f eldinn.
Tvöhundruð tré höfðu brotnað
eða fokið um og rifið upp með
sér ræturnar, og lágu þannig á
hliðinni f Vestri-kirkjugarði
það mun láta nærri að króna
og rætur séu álfka stór þannig
að það er ekkert smáræði af
jarðvegi sem þessi stóru tré
hafa rifið upp með sér I fall-
inu.
Þetta er talið mesta fárviðri
sem hefur komið f Danmörku
á allri öidinni, og hefur valdið
skaða sem áætlað er að nemi
yfir sjötfu milljónum danskra
króna. Það hefur einhvern-
tfma verið talað um minna.
Nastase f hita leiksins og eins og allur annar maður, þegar hann er kominn út af leikvellinum.
NASTASE
vann sér inn W milljónir kr.
ifyrra - með tennisspaða
ILIE Nastase er góður tenn-
isleikari. En hann þykir
vandræðagripur. Allir eru
þó á einu máli um það, að
hann sé langverstur sjálf-
um sér. Nú seinast olli
hann uppnámi á opna,
bandarfska tennismótinu
og tókst honum þar að
koma bæði áhorfendum og
þátttakendum upp á móti
sér með óvönduðum munn-
söfnuði og illum látum.
Hann var að keppa við
Hans-Júrgen Pohlmann frá
Vestur-Þýzkalandi og leik-
urinn gekk ekki að óskum.
Nastase hafði allt á hornum
sér, kallaði ókvæðisorð til
áhorfenda, sem voru hon-
um heldur mótsnúnir, og
skeytti skapi sfnu á öðrum
keppendum, aðstoðar-
mönnum og ekki sízt nær-
stöddum Ijósmyndurum.
Réðist hann svo á dómar-
ann með skömmum og
klykkti út með því að
hrækja hressilega f áttina
til hans. Fyrir þessi geðgos
öll, var hann dæmdur til að
greiða 1000 dollara (187
þús. kr.) sekt og settur f
keppnisbann í tuttugu daga
og einum betur.
Margir, sem til sáu, urðu
hneykslaðir á látunum í
Nastase. Þau munu þó hafa
komið fáum á óvart.
Nastase hefur löngum haft
litla stjórn á skapi sínu;
hann er skapi farinn Ifkt og
prímadonnur þær, sem
menn eiga að venjast í söng
og ekki má orði við halla.
Nastase er viðkvæmur æv-
inlega, en þó er langmest
hætta á ferðum í keppni.
Hann er fæddur íþrótta-
maður, ef svo má komast
að orði. Tennisspaðinn leik-
Framhald á bls. 16.
Nastase ásamt konu sinni, Dominique. Þrátt fyrir skapofsa tenn-
isleikarans, hefur hjónabandið þolað átökin hingað til.
©