Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1979, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1979, Qupperneq 6
► Smásaga eftir Önnu Maríu Þórisdóttur Þaö var næstum oröið dimmt, þegar áætlunarbíllinn stanzaöi viö heimtröð- ina að Hálsi. Bílstjórinn lagaði kámuga glansderhúfuna einu sinni enn, opnaöi bílhuröina og spýtti rösklega út í skurö, leit síöan um öxl til Stjána, sem sat í hnipri í næstaftasta sæti, dauöhræddur um aö komast ekki á réttan staö, því aö hann haföi aldrei áöur komiö á þessar slóöir og kallaði: „Þá ertu nú kominn að Hálsi, stráksi." Og til Guðmundar bónda, sem stóö viö vegarbrúnina: „Og hér færöu kaupamanninn í viöbót viö þaö, sem fyrir er,“ og hló hrossahlátri. Hann rétti Stjána snjáða pappatösku, sem um var bundiö snærisspotta, skiptist á nokkrum oröum viö bónda, lagaöi derhúfuna enn einu sinni, en snaraðist síöan upp í bílinn og ók á brott. Guömundur heilsaöi komudreng hlý- lega meö handabandi og Stjáni ramb- aöi á aö rétta fram hægri höndina, þó aö ekki væri hann vanur slíkum kurteisisvenjum á sínum heimaslóöum. „Ég skal halda á töskunni fyrir þig hérna heim trööina," sagði bóndi. „Tröðina?“ át Stjáni eftir í huganum. Hann átti margt orðið ólært í sveitinni. í eldhúsinu beiö Helga húsfreyja meö skyrhræring og slátur á diski og spen- volga nýmjólk í emaléraöri könnu. „Sæll vert þú nú og hvað heitir þú nú?“ sagöi hún hárri og skrækri röddu. „Stj... Kristján,“ svaraði Stjáni. Síöan dreif hún hann að matarborö- inu, kvaö hann eflaust svangan eftir svona langa bílferð. En Stjáni átti fullt í fangi meö aö koma í sig hræringnum. Hann haföi alltaf vanizt því að borða skyr og hafragraut sitt í hvoru lagi. En honum þótti súra slátriö gott. Hægt og hægt mjatlaöi hann í sig hræringsskeiö- unum á milli þess, sem hann reyndi aö leysa úr spurningum bónda um ástand- ið í hernuminni höfuðborginni. Helga stóö viö eldavélina og studdi hönd á mjööm á meöan hún beiö eftir aö velgdist á könnunni. Olíulampi hékk á vegg fyrir matarboröinu og lýsti upp ómálaöar panelþiljurnar umhverfis sig og varpaöi risastórum skuggum hús- ráöenda á sinn hvorn vegg, en viö fjóröa vegginn sátu „kaupamennirnir" þrír, Alli, Stebbi og Pétur og haföi verið harðlega skipaö aö steinþegja og hafa hægt um sig á meðan nýi drengurinn boröaði. Snarkiö í eldavélinni, suöið í kaffikönnunni, dauft Ijós olíulampans og eldhúsið hálffullt af skuggum ásamt stööugum spurningum bóndans, sem © SUMARIÐ ’42 ætlaði sér sannarlega aö fræöast af nýkomna piltinum um „Ástandiö" og spillinguna í höfuðborginni, höföu svæf- andi áhrif á Stjána og þar kom, aö hann fór aö svara út í hött. Þá sprakk blaðran hjá strákunum, sem reyndar höföu setiö ótrúlega lengi á sér. Hlátursgusurnar stóöu upp úr þeim í stríöum straumum. „Já, nú fariö þiö beint í háttinn," hvein í Helgu og strákastrollan ruddist upp stigann í eldhúshorninu, upp á svefn- loftið þar fyrir ofan. Skömmu seinna fylgdi Helga Stjána upp á loftiö og vísaöi honum á uppbú- inn bedda, þar sem hann skyldi sofa. Hún lýsti honum meö vasaljósi, sem hún haföi lánað liöinu þarna á svefnloft- inu, því aö hún þoröi ekki fyrir sitt litla líf aö láta þá hafa olíulampa eða kerti, svo mikill var hamagangurinn á þeim. „Svo vitið þiö, að ég hef opið úr svefnherberginu okkar og fram á gang- inn og opiö inn í eldhúsið, svo aö ég heyri til ykkar, ef þiö ætlið aö fara að láta illa,“ sagöi hún og ógnaöi þeim meö steyttum hnefa. Stjáni fékk aö hátta óáreittur, en síöan upphófst hljóöleg hrollvekja á svefnloftinu. Hún byrjaöi með því, að Alli, sem læözt haföi aö fótagaflinum hjá Stjána, stakk upp í sig vasaljósinu og kveikti á því, en Pétur og Stebbi stundu hræöslulega: „Draugur, draug- ur.“ En Stjáni lét sér hvergi bregöa viö þetta: „Haldiöi, aö ég hafi aldrei séö vasaljósa„trikk“ fyrr? sagði hann. Næst Jék Stebbi af snilld bragöiö aö taka af sér þumalfingurinn og Stjána varö um og ó. Og þegar Pétur tók úr sér gerviaugaö og lýsti rækilega á þaö meö vasaljósinu, rak Stjáni upp lágt vein, sem Helga lét þó kyrrt liggja, þótt hún heyröi, þar sem ekki fylgdi meira á eftir. Og Alli horföi stálbláum augunum hvasst á Stjána og hvíslaði ógnandi: „Viö erum nefnilega allir galdramenn, næst ætla ég aö skrúfa af mér fótinn." Stjáni sá sitt ráö vænna og breiddi yfir höfuö og féll brátt í svefn, þrátt fyrir dynjandi hjartslátt. Sláttur var langt kominn á Hálsi, þegar stykki bilaöi í hestasláttuvélinni. ,,/E, Stebbi minn, hlauptu nú inn aö Skeggjastööum og vittu hvort hann Sigurður getur ekki lánað mér þetta, svo aö ég geti lokið viö aö slá árbakk- ann í dag,“ sagði Guðmundur. Áöur en Stebbi gæti svarað greip Alli fram í og sagði: „Eg skal fara inn að Hóli og vita, hvort Pálmi á þetta ekki til,“ og var þegar rokinn. „Ég kem viö á Skeggjastöðum á heimleiðinni, ef Pálmi á þetta ekki,“ bætti hann viö. Guðmundur hristi höfuöiö, hann vissi, aö þaö var grammófónninn, sem dró Alla heim aö Hóli, þó aö lengra væri þangaö en aö Skeggjastööum. En Alli hljóp léttfættur og berfættur í gúmmískónum yfir móa og mýrar, hugöist ekki veröa miklu lengur, þó aö hann bætti einni bæjarleiö viö sig og Amapóla og Rósmerí voru þegar teknar aö hljóma í eyrunum á honum. Á Hóli stóö gamli maöurinn við snúning á heimatúninu, en þaö var þaö eina, sem búiö var aö slá, Krakkaorm- arnir veiddu lontur í fötu í bæjarlæknum meö ópum og óhljóöum, en Fía hús- freyja sat inni í eldhúsi meö nýtízku járnkrullupinna í hausnum, reykti sígarettu, drakk kaffi og skoðaði amerísk leikarablöð. Pálmi var auövitaö í „Bretavinnunni“ fyrir sunnan, (sem nú mátti víst kalla „Kanavinnu"). Alli stökk lafmóöur yfir heimalninginn, sem svaf á útidyraþröskuldinum, kast- aöi kveöju á Fíu inn um eldhúsdyrnar og spurði: „Má ég spila á grammófóninn?" „Auövitaö," sagöi Fía, „ætli þér sé það of gott.“ Alli óö inn um opnar stofudyrnar, stjakaöi nokkrum hænum ofan af stofu- boröinu, þar sem þær sváfu eins og á hænsnapriki og ruku upp meö gargi og óhljóðum við þessa truflun. Síöan trekkti hann grammófóninn rösklega upp og brátt hljómaöi „Rósmerí æ löv jú“ um hænsnadrituga stofuna. Fía birtist í dyrunum með sígarettuna í munnvikinu og kaffibollann í hendinni og sagöi: „Finnst þér þetta ekki sætt lag?“ En Alla fannst þaö meira en sætt, honum fannst þaö dásamlegt og hann kastaði sér afturábak í vaxdúksklædd- an bekkinn meö hækkaöa höföalaginu og óskaöi þess, aö kellingin heföi haldið sig í eldhúsinu, svo aö hann gæti hlustaö í algjörum friöi. Næst spilaöi hann „Amapóla, mæ prittí littel poppí", en gleymdi aö tekkja grammófóninn í millitíöinni, svo aö síöasti hluti lagsins var rammfalskur og drafandi, en þaö var jafnvel enn skemmtilegra. Loks freistaöist hann til aö spila „Rósmerí" aftur, en stökk síðan út á tún til gamla mannsins, minnugur erindisins, sem var tilefni komu hans aö Hóli. Gamli maðurinn vísaði honum á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.