Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Blaðsíða 7
hlutaveltum o.fl. í sjóðinn rann allt þaö fé sem aflaö var, utan félagsgjöldin.. Hringskonur gengust líka fyrir leiksýn- ingum í fjölmörg ár þar sem konurnar fóru með öll hlutverkin. í Þjóðólfi stendur 15. desember 1905: „Leikskemmtun til ágóða fyrir berklaveika hefur kvenfélagið Hringurinn haldið þessa dagana og hefur hún verið vel sótt, enda tekist vonum frarnar". Síðan voru leiksýningar fastur liöur í starfi félagsins um árabil og má geta þess að hin dáöa leikkona Arndís Björnsdóttir steig sín fyrstu skref á leiksviði á sýningu félagsins. Á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911 var tekin uþp sú nýlunda að afla fjár með merkjasölu en það hafði ekki verið gert áöur hér á landi. Árið 1914 var hafin sala á minningarkortum, þeim fyrstu sinnar tegundar hér á landi — og er sala þeirra drjúg tekjulind enn í dag. Þegar berklavarnarlögin komu til fram- kvæmda árið 1921 tók ríkiö að sér að greiða allan legukostnaö berklasjúklinga og því var líknarsjóöur Hringsins lagður niður. En Hringskonur lögðu ekki árar í bát heldur beittu sór fyrir því að koma upp hressingarhæli fyrir berklasjúklinga á batavegi. Margir voru hræddir við að fá þetta fólk á heimili sín vegna smithræðslu og það þurfti því að dvelja lengur á berklahælinu en nauðsyn bar til. Konunum tókst með frábærum dugn- aði að koma upp hressingarhæli í Kópa- vogi sem opnaö var 14. nóvember 1926. Hælið hafði kostað upp komið 75 þúsund krónur en þar var rúm fyrir 25 sjúklinga auk starfsfólks. Helgi Ingvarsson sem þá var aðstoöarlæknir á Vífilsstöðum gegndi læknisstörfum á Kópavogshælinu endur- gjaldslaust og kom ýmist gangandi eöa hjólandi daglega frá Vífilsstöðum. Hælið var rekið á kostnað félagsins til 1939 en þá fór Vilmundur Jónsson, landlæknir fram á að ríkið fengi það keypt. Félags- konur ákváðu hins vegar að gefa ríkinu hælið ásamt öllum innanstokksmunum og tækjum. Árið 1931 hafði félagið fengið keypta jörðina Kópavog og rak þar Framhald á bls. 13 Stundum heyrast raddir um þaö að líknar og góðgeröarfélög eigi ekki rétt á sér í nútímaþjóöfélagi, þar sem öll félagsleg þjónusta og aöstoö eigi að fást hjá opinberum stofnunum. Almennt eru menn þó ekki þeirrar skoöunar og vita sem er, aö seint verður svo komiö að hvergi sé úrbóta þörf eða ástæða til að knýja á um framkvæmdir. Þessi félög gera það einnig aö verkum að félags- menn — hinn almenni borgari — temur sér að hafa vakandi auga með umhverfi sínu, gerir hann virkari þátttakanda í málum sem snerta almenningsheill. Hérlendis hafa slík félög, bæði karla og kvenna, starfað lengi og getið sér gott orð á mörgum sviöum þjóölífsins. Á árum áöur mátti þaö ef til vill teljast forréttindi aö eiga sinn frítíma og fá að velja sór að verja honum til slíkra starfa. En frítími fólks í dag verður rýmri og stundum jafnvel svo aö menn vita varla hvernig eigi að verja honum. Kvenfélagið Hringurinn átti 75 ára afmæli ekki ails fyrir löngu. Það félag þekkja flestir að nafninu til en vita sennilega minna um upphaf þess félags eða starfsemina í dag. Því var núverandi formaöur þess, Ragnheiöur Einarsdóttir beðin að rekja söguna í stuttu máli og segja frá helztu verkefnunum sem kon- urnar eru aö vinna að nú. í upphafi var þetta skemmtifélagsskap- ur nokkurra kvenna hér í Reykjavík sagði Ragnheiður. Þessar konur ákváöu að stofna meö sér félag sem skyldi beita sér fyrir einhverju þörfu málefni og fá fleiri í liö með sér og kvenfélagiö Hringurinn var svo stofnað 26. janúar 1904. Stofnendur voru 45 en fyrsti formaöurinn var frú Kristín Vídalín Jakobsen. Fyrstu verkefni félagsins voru að hjálpa bágstöddum sængurkonum og styrkveit- ingar til fátækra berklasjúklinga en berklaveiki var mikill vágestur hér á landi á þessum árum. Stofnaður var sérstakur sjóður „Líknarsjóöur Hringsins" til að standa straum af kostnaði og fjár til hans aflaö meö ýmsu móti, skemmtanahaldi, konur úr öBum stéttum þjóðfélags- ins taka þatt í líuiar- starfl fétagsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.