Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Síða 11
J ' Sndá \ym , 1 ,. ! f í ; 1| M.T 1
m i aF jPHWBy •• . j
"'D.Z? M
Hreyíanlegi hópurinn er ekki nema 10—15 mínútur að bregða sér milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur, — fyrir hann skiptir nánast engu máli, hvort búið er Vestur á Wtttr,
Seltjarnarnesi, upp í Breiðholti eða jafnvel í Mosfellssveitinni.
umferöinni en í nágrannalöndunum, og
yfir 50% þeirra gangandi vegfarenda,
sem slasast í umferöinni, eru yngri en 15
ára. Þetta eru ógnvekjandi tölur, sem
benda til þess, aö umferðarskipulagi
okkar sé um margt áfátt, en um þaö,
ásamt öörum þáttum umhverfisskipulags,
mun ég fjalla síðar.
Umhverfiö er ramminn utan um líf
okkar, bæir eru skipulagðir fyrir fólk. og
ef lifandi fólk er ekki miðpunkturinn í
skipulagi bæja, er þaö einskis viröi.
Miklar líkur benda til þess, aö umhverfið
hafi bein áhrif á geðheilsu okkar, og
samkvæmt nýlegri könnun er þunglyndi
t.d. mun algengara hjá heimavinnandi
húsmæörum í blokkahverfum en öðrum
þjóöfélagshópum, og sérstaklega ef þær
eiga börn á forskólaaldri. Ef íbúöarhverfi
okkar eru það óaðlaöandi, aö viö treyst-
um okkur ekki til aö dvelja þar um helgar
eöa í sumarleyfum, er vissulega úrbóta
þörf.
E.t.v. gætum viö einnig minnkaö
streytuna í okkar hraöasjúka þjóðfélagi,
ef fjölskyldan fyndi gleöi í því aö ganga
um sitt eigið hverfi, þótt ekki væri nema
eina og eina helgi til tilbreytingar í staö
þess álags, sem oft fylgir helgarbíltúrun-
um.
Þessi mynd er ekki frá íslandi eins og
ætla mætti, heldur af byggingaríram-
kvæmdum í Síberíu. Enn hefur ekki
verið rannsakað hvort íslenzkir
arkitektar og skipuleggjendur hafa sótt
fyrirmyndir til Síberíu, eða hvort Sovét-
mpnn liafa tokið mið af íslanrfi.
bara beitt örlítilli hugkvæmni. í þessu
hverfi er alltaf líf. Þaö eina, sem þetta
kostar, er aö ganga þarf 50—100 metra
út á næsta bílastæði, en sjálft hverfiö er
lokaö fyrir bílaumferö, nema brýna
nauösyn beri til. Og þar erum við e.t.v.
komin aö kjarna málsins. Viljum viö,
hreyfanlegi hópurinn, leggja þaö á okkur
að ganga 50—100 metra út í bílskúr eöa
bílastæði, til aö hægt sé að skapa betra
umhverfi fyrir hina? E.t.v. viljum viö þaö,
ef viö hugsum okkur vandlega um, en
það hefur þá hingaö til veriö utan
vitundar flestra byggingar- og skipulags-
yfirvalda, t.d. er þess víöa krafist í
byggingarskilmálum, að bílskúr innan
lóöarmarka fylgi hverju einbýlis- og
raöhúsi, og jafnvel tvöfaldur.
Væri ekki nær aö krefjast þess, aö
hverfin væru gædd lífi, og aö hægt væri
aö komast fótgangandi leiðar sinnar
innan borgarinnar, án þess aö ganga í
jaðrinum á æöandi bílaumferö? Okkur er
einnig hollt aö minnast þess á hinu
alþjóðlega ári barnsins, að hér á landi
slasast mun fleiri börn hlutfallslega í
Lauslegt riss af hluta hverfisins, sem grcinarhöfundur bjó í og frá er sagt í greininni.