Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1979, Qupperneq 11
J ' Sndá \ym , 1 ,. ! f í ; 1| M.T 1 m i aF jPHWBy •• . j "'D.Z? M Hreyíanlegi hópurinn er ekki nema 10—15 mínútur að bregða sér milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, — fyrir hann skiptir nánast engu máli, hvort búið er Vestur á Wtttr, Seltjarnarnesi, upp í Breiðholti eða jafnvel í Mosfellssveitinni. umferöinni en í nágrannalöndunum, og yfir 50% þeirra gangandi vegfarenda, sem slasast í umferöinni, eru yngri en 15 ára. Þetta eru ógnvekjandi tölur, sem benda til þess, aö umferðarskipulagi okkar sé um margt áfátt, en um þaö, ásamt öörum þáttum umhverfisskipulags, mun ég fjalla síðar. Umhverfiö er ramminn utan um líf okkar, bæir eru skipulagðir fyrir fólk. og ef lifandi fólk er ekki miðpunkturinn í skipulagi bæja, er þaö einskis viröi. Miklar líkur benda til þess, aö umhverfið hafi bein áhrif á geðheilsu okkar, og samkvæmt nýlegri könnun er þunglyndi t.d. mun algengara hjá heimavinnandi húsmæörum í blokkahverfum en öðrum þjóöfélagshópum, og sérstaklega ef þær eiga börn á forskólaaldri. Ef íbúöarhverfi okkar eru það óaðlaöandi, aö viö treyst- um okkur ekki til aö dvelja þar um helgar eöa í sumarleyfum, er vissulega úrbóta þörf. E.t.v. gætum viö einnig minnkaö streytuna í okkar hraöasjúka þjóðfélagi, ef fjölskyldan fyndi gleöi í því aö ganga um sitt eigið hverfi, þótt ekki væri nema eina og eina helgi til tilbreytingar í staö þess álags, sem oft fylgir helgarbíltúrun- um. Þessi mynd er ekki frá íslandi eins og ætla mætti, heldur af byggingaríram- kvæmdum í Síberíu. Enn hefur ekki verið rannsakað hvort íslenzkir arkitektar og skipuleggjendur hafa sótt fyrirmyndir til Síberíu, eða hvort Sovét- mpnn liafa tokið mið af íslanrfi. bara beitt örlítilli hugkvæmni. í þessu hverfi er alltaf líf. Þaö eina, sem þetta kostar, er aö ganga þarf 50—100 metra út á næsta bílastæði, en sjálft hverfiö er lokaö fyrir bílaumferö, nema brýna nauösyn beri til. Og þar erum við e.t.v. komin aö kjarna málsins. Viljum viö, hreyfanlegi hópurinn, leggja þaö á okkur að ganga 50—100 metra út í bílskúr eöa bílastæði, til aö hægt sé að skapa betra umhverfi fyrir hina? E.t.v. viljum viö þaö, ef viö hugsum okkur vandlega um, en það hefur þá hingaö til veriö utan vitundar flestra byggingar- og skipulags- yfirvalda, t.d. er þess víöa krafist í byggingarskilmálum, að bílskúr innan lóöarmarka fylgi hverju einbýlis- og raöhúsi, og jafnvel tvöfaldur. Væri ekki nær aö krefjast þess, aö hverfin væru gædd lífi, og aö hægt væri aö komast fótgangandi leiðar sinnar innan borgarinnar, án þess aö ganga í jaðrinum á æöandi bílaumferö? Okkur er einnig hollt aö minnast þess á hinu alþjóðlega ári barnsins, að hér á landi slasast mun fleiri börn hlutfallslega í Lauslegt riss af hluta hverfisins, sem grcinarhöfundur bjó í og frá er sagt í greininni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.