Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1979, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1979, Qupperneq 7
Blaö eitt hefur rekiö á fjörur Lesbók- ar, Australían POST, útgefiö hinum megin á hnettinum. Þaö er meðal annars efnis greinarkorn um mann, meö „Rocks in the head“ — eöa grjót á heilanum. „Fólk telur víst aö hann sé genginn af göflunum og hann er ekki frá því aö samþykkja þaö“, segir þar ennfremur. Maöurinn er aö sjálfsögöu íslend- ingur. Hann heitir Þorsteinn Kristinsson, er 51 árs og býr í Armadale, sem er úthverfi frá Perth. Eins og fjöldi samtíðarmanna hans á íslandi, fæst Þorsteinn viö myndgerð. En í staö þess aö teikna þær eöa mála, hleður Þorsteinn sínar myndir úr einskonar mósaík, sem hann býr til sjálfur úr grjóttegundum. Mylur hann grjótiö niður í örsmáar flísar og myndgerðin er svo seinvirk, aö það hefur tekiö Þorstein allt uppí 400 klukkustundir að fullgera mynd. Hérna teldist þetta naumast til tíöinda; ekkert þætti sjálfsagöara en að húsmóöir eöa refaskytta vestur á Snæfellsnesi fengist viö þvíumlíkt og héldi sýningar í höfuöstaönum. En hinum megin á hnettinum, þar sem heitir Ástralía, telja menn aö þesskon- ar föndur beri einungis vott umt klikkun. Þorsteinn Kristinsson er einn af þeim, sem uröu landflótta síöast á sjöunda áratugnum, þegar allmargir fluttu búferlum úr landi, annaöhvort til Svíþjóöar eða Ástralíu. Þorsteinn kom til fyrirheitna landsins 1969, þá liölega fertugur og vann í fyrstu viö Að ofan: Þorstcinn med Kristsmyndina og vígalegan víking. Til hægri: Þor- steinn vinnur að mynd úr örsmáum steinílísum. byggingarframkvæmdir í Tasmaníu. Þorsteinn var og er fjölskyldumaður; eiginkona hans er ekki nafngreind í greininni, en sex börn eiga þau; þrjá drengi og þrjár stúlkur. Þau fóru heim til Islands eftir þriggja ára útiveru, en sneru utan á nýjan leik aö sögn blaðsins, og nú vinnur Þor- steinn viö teikningar í Perth. Blaðið hefur eftir Þorsteini, að rn Austra-I are manyj ■s tend tol than con-l mainly inl íslendingur í Ástralíu vekur athygli fyrir myndir úr grjóti [★ People reckon he’s mod and he’s indined to ogree — it takes hundreds of painstaking hours to make just one of these “paintings” from tiny pieces of tolored rock . , where he works as a draf t: I The prohlem in Westej , Ua is that, whiie there colorful rocks. the coloi mix and blend rather l |trast, so he now works hlack and white langalengi hafi hann haft í hyggju aö búa til mósaíkmynd af Kristi. Viö uppgröft í sambandi við byggingar- vinnu í Ástralíu, sá Þorsteinn aö grjótiö sem upp kom, hafði til aö bera ýmisskonar litbrigði. Hann fór aö safna grjóti, sem komið gæti að notum í mósaík en erfiðast reyndist aö finna grjót meö hörundslit, eða því sem næst. Þaö hafðist aö lokum; hann tók til viö Kristsmyndina og notaði til þess 13 tegundir af grjóti meö ólíkum litum. En þaö reyndist ekkert áhlaupaverk og verkið tók alls 300 tíma. Þorsteinn hefur einnig gert myndir af víkingum, sem viröast þó nokkur andstæða viö Krist, en eru sam- kvæmt dönsku formúlunni meö hyrnda hjálma. Til þessa hefur þessi tímafreka iöja verið hugsjónastarf; unniö af innri þörf og til þess aö fulinægja gamalli löngun. Þorsteinn vill helzt ekki selja verk sín, segir Australian Post, en seldi þó stjórn Tasmaníu fyrir þrábeiöni portret af landkönnuöinum Matthew Flinders. Markaðurinn er trúlega fremur tak- markaður; myndlist hefur ekki orðið almenningseign í Ástralíu og fyrstu viöbrögö fólks, sem kemst aö raun um hvern tíma þessi myndgerö tekur, eru alltaf hin sömu aö sögn Þorsteins. Þaö heldur aö hann sé eitthvaö bilaður. En Þorsteinn hefur víst ekki áhyggjur af því. „Sjálfsagt eitthvað til í því að maður sé meö lausa skrúfu“, segir hann brosandi. Þá vaknar raunar sú spurning, hvort íslendingar væru ekki upp til hópa haldnir meö lausa skrúfu, værum viö komnir á þessar fjarlægu slóðir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.