Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Page 9
Efst: Gamli bærinn í Skarði stendur ennþá, en verður senn rifinn. í miðju: Dóra
óg Guðni framan við nýja íbúðarhúsið í Skarði, sem samtals er 500 fermetrar. í
álmunni til hægri búa þau Kristinn sonur þeirra hjóna og Fjóla kona hans.
Neðst: Dóra og Guðni í útskornu stóiunum, sem eru í sveitarhöfðingjastíl og
setja svip sinn á stofuna í Skarði.
>i á Landi, þar
foks en nú er
Eftir Gísla Sigurösson.
enda eitthvað aö vera til þess aö geta
hýst 30 manns um nætursakir og fariö
létt meö þaö.
Húsiö er formaö eins og U —
Kristinn og Fjóla búa í austurálmunni,
Guöni og Dóra í vesturálmunni, en
stofan er sameiginleg og tengir álm-
urnar saman. Þar er hátt til lofts og vítt
til veggja og mestan svip setja tveir
útskornir stólar á stofuna, hreinustu
gersemi í sveitarhöföingjastíl. Hús-
móöirin er aöflutt og átti æskuheim-
kynni viö Njálsgötu í Reykjavík. Þau
kynntust þar syöra; Guöni vann þá um
tíma viö akstur í Reykjavík. En Dóra
hefur átt heima í Skaröi síöan 1950 og
viö búinu tóku þau 1959.
Guðni: „Hún er vel gift kellan,
skrifaöu þaö bara“.
„En hvað á ég að skrifa um bú-
stærð á stærsta búi á íslandi,“ spurði
ég.
„Þarftu nokkuö aö skrifa um bú-
stærö?
„Vitanlega. Hvað er féð margt?
„Ég veit þaö varla".
„Er pað eitthvert pukursmál hvað
marga hausa pú hefur á fóðrum?“
Dóra: „Hann heldur aö þú sért frá
skattinum, ef þú spyrö svona“.
Guðni: „Viö skulum segja aö þaö
hafi þurft aö rýja á 12. hundraö fjár. Og
í fjósi eru um 50 mjólkandi kýr, —
hausarnir eitthvaö fleiri."
Finnbogi meðreiöarsveinn: „Spuröu
hann um hrossin maöur.“
„Eru hross hér í Skaröi?“
Guöni: „Spurðu konuna hvaö gert sé
viö afgangspeningana í Skaröi."
Dóra: „Þetta er nú það eina sem
einhver ágreiningur stendur um hjá
okkur. Ég vildi fá aurana í húsiö, en
þeir fara stundum annað. Mér finnst
nóg af hrossum."
„Ég var aö spyrja Þig Guöni, hvort
hér væri slangur af hrossum?“
Guðni: „Já, mikiö af hrossum. Ein-
hver lifandis ósköp af hrossum. Ég veit
ekki hvort nokkur veit hvað þau eru
mörg; sjálfur veit ég þaö ekki.“
Finnbogi meðreiðarsveinn: „Þaö er
alveg rétt; hann veit þaö áreiöanlega
ekki nákvæmlega."
Guðni: „Mikill vinur minn hér, Árni 'r
Klofa sagöi mér eitt sinn aö gæta mín á
því, aö láta ekki hrossin drepa mig.
Þau hafa nú ekki gert þaö enn og
vonandi bjargast þetta áfram. Þaö er
rétt aö þau eru mörg og enginn
Skagfirðingur á nándar nærri eins
mörg. En þaö er oröiö langt síðan ég
hef séð þau saman í einum hópi; sú
sjón yrði mér kannske ofviða í því
árferöi sem var í vetur og vor. Þaö kom
viö heyin að gefa þeim. Viö skulum
ekki vera að nefna neinar tölur; segðu
bara að þau séu mörg. Og þetta eru
góð hross og úrvalshestar í bland.“
„Við sáum að pínir menn voru við
heyskap hér langt fram á sveit.
Hrekkur Skaröið ekki til lengur?“
„Þaö* er helvítis haugalygi, aö ég sé
aö leggja undir mig jaröir. En þú mátt
skrifa, aö góöir menn lofi mér aö slá
hjá sér túnin.“
„Sprettur ekki seinna hér uppfrá?“
„Ekki get ég séö það. Þetta er tómur
barlómur og væll, að sprettan sé
mörgum vikum á eftir því sem venju-
legt er. En ég ber líka vel á; keypti 80
tonn af áburöi fyrir 8 milljónir nú í vor.
Svo erum við alltaf meö aökeypt
vinnuafl, mest þó yfir sláttinn, ungl-
ingsstráka sem eru seigir á vélum. Ætli
þeir séu ekki tíu núna.
„í vor hafa náttúrulega allar fyrn-
ingar klárast ?“
„Já, viö gáfum þær upp og nú blasir
viö samdráttur á bústærð í haust.
Kannske verður ekkert lamb sett á
vetur og þiö þurfiö varla aö bíða lengi
eftir mjólkurskorti.
Ef þaö er eitthvaö sem ég kvíöi fyrir,
þá er þaö að þurfa aö minnka búið.
. Búskussi hef ég aldrei verið og vil ekki
vera.
„Leggurðu meiri áherzlu á bústærö
eða hausafjölda en hámarks nettóaf-
rakstur?“
„Hvurslags kjaftæöi er þetta nú
eiginlega. Ég veit ekki betur en búiö
hér sé arösamt. Mjólkin hefur verið í
hæsta gæöaflokki og féð hefur gefiö
vel af sér, meðalfallþungi um 21—22
kg. eftir hverja vetrarfóöraöa á.“
„Annað eins hefur nú heyrst. Eru
ekki sumir, sem mest fá af tvílembdu
komnir upp í 26—28 kg?“
„Viö veröum aö taka meö í reikning-
inn, aö stór hluti fjárins veröur aö
ganga í heimahögum vegna þess aö
við erum með ítölu á Landmanna-
afrótt og byrjuöum á því á undan
öörum. Eg má til dæmis aðeins hafa
600 fjár á afrétti og þá eru lömb talin
meö. Afganginn verö ég aö hafa hér
heima. Annars held ég aö það standi
óhaggaö, aö almennilega rekin kúabú
séu bezti búskapurinn.*1
SJÁ NÆSTU SÍÐU