Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Síða 9
Efst: Gamli bærinn í Skarði stendur ennþá, en verður senn rifinn. í miðju: Dóra óg Guðni framan við nýja íbúðarhúsið í Skarði, sem samtals er 500 fermetrar. í álmunni til hægri búa þau Kristinn sonur þeirra hjóna og Fjóla kona hans. Neðst: Dóra og Guðni í útskornu stóiunum, sem eru í sveitarhöfðingjastíl og setja svip sinn á stofuna í Skarði. >i á Landi, þar foks en nú er Eftir Gísla Sigurösson. enda eitthvað aö vera til þess aö geta hýst 30 manns um nætursakir og fariö létt meö þaö. Húsiö er formaö eins og U — Kristinn og Fjóla búa í austurálmunni, Guöni og Dóra í vesturálmunni, en stofan er sameiginleg og tengir álm- urnar saman. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja og mestan svip setja tveir útskornir stólar á stofuna, hreinustu gersemi í sveitarhöföingjastíl. Hús- móöirin er aöflutt og átti æskuheim- kynni viö Njálsgötu í Reykjavík. Þau kynntust þar syöra; Guöni vann þá um tíma viö akstur í Reykjavík. En Dóra hefur átt heima í Skaröi síöan 1950 og viö búinu tóku þau 1959. Guðni: „Hún er vel gift kellan, skrifaöu þaö bara“. „En hvað á ég að skrifa um bú- stærð á stærsta búi á íslandi,“ spurði ég. „Þarftu nokkuö aö skrifa um bú- stærö? „Vitanlega. Hvað er féð margt? „Ég veit þaö varla". „Er pað eitthvert pukursmál hvað marga hausa pú hefur á fóðrum?“ Dóra: „Hann heldur aö þú sért frá skattinum, ef þú spyrö svona“. Guðni: „Viö skulum segja aö þaö hafi þurft aö rýja á 12. hundraö fjár. Og í fjósi eru um 50 mjólkandi kýr, — hausarnir eitthvaö fleiri." Finnbogi meðreiöarsveinn: „Spuröu hann um hrossin maöur.“ „Eru hross hér í Skaröi?“ Guöni: „Spurðu konuna hvaö gert sé viö afgangspeningana í Skaröi." Dóra: „Þetta er nú það eina sem einhver ágreiningur stendur um hjá okkur. Ég vildi fá aurana í húsiö, en þeir fara stundum annað. Mér finnst nóg af hrossum." „Ég var aö spyrja Þig Guöni, hvort hér væri slangur af hrossum?“ Guðni: „Já, mikiö af hrossum. Ein- hver lifandis ósköp af hrossum. Ég veit ekki hvort nokkur veit hvað þau eru mörg; sjálfur veit ég þaö ekki.“ Finnbogi meðreiðarsveinn: „Þaö er alveg rétt; hann veit þaö áreiöanlega ekki nákvæmlega." Guðni: „Mikill vinur minn hér, Árni 'r Klofa sagöi mér eitt sinn aö gæta mín á því, aö láta ekki hrossin drepa mig. Þau hafa nú ekki gert þaö enn og vonandi bjargast þetta áfram. Þaö er rétt aö þau eru mörg og enginn Skagfirðingur á nándar nærri eins mörg. En þaö er oröiö langt síðan ég hef séð þau saman í einum hópi; sú sjón yrði mér kannske ofviða í því árferöi sem var í vetur og vor. Þaö kom viö heyin að gefa þeim. Viö skulum ekki vera að nefna neinar tölur; segðu bara að þau séu mörg. Og þetta eru góð hross og úrvalshestar í bland.“ „Við sáum að pínir menn voru við heyskap hér langt fram á sveit. Hrekkur Skaröið ekki til lengur?“ „Þaö* er helvítis haugalygi, aö ég sé aö leggja undir mig jaröir. En þú mátt skrifa, aö góöir menn lofi mér aö slá hjá sér túnin.“ „Sprettur ekki seinna hér uppfrá?“ „Ekki get ég séö það. Þetta er tómur barlómur og væll, að sprettan sé mörgum vikum á eftir því sem venju- legt er. En ég ber líka vel á; keypti 80 tonn af áburöi fyrir 8 milljónir nú í vor. Svo erum við alltaf meö aökeypt vinnuafl, mest þó yfir sláttinn, ungl- ingsstráka sem eru seigir á vélum. Ætli þeir séu ekki tíu núna. „í vor hafa náttúrulega allar fyrn- ingar klárast ?“ „Já, viö gáfum þær upp og nú blasir viö samdráttur á bústærð í haust. Kannske verður ekkert lamb sett á vetur og þiö þurfiö varla aö bíða lengi eftir mjólkurskorti. Ef þaö er eitthvaö sem ég kvíöi fyrir, þá er þaö að þurfa aö minnka búið. . Búskussi hef ég aldrei verið og vil ekki vera. „Leggurðu meiri áherzlu á bústærö eða hausafjölda en hámarks nettóaf- rakstur?“ „Hvurslags kjaftæöi er þetta nú eiginlega. Ég veit ekki betur en búiö hér sé arösamt. Mjólkin hefur verið í hæsta gæöaflokki og féð hefur gefiö vel af sér, meðalfallþungi um 21—22 kg. eftir hverja vetrarfóöraöa á.“ „Annað eins hefur nú heyrst. Eru ekki sumir, sem mest fá af tvílembdu komnir upp í 26—28 kg?“ „Viö veröum aö taka meö í reikning- inn, aö stór hluti fjárins veröur aö ganga í heimahögum vegna þess aö við erum með ítölu á Landmanna- afrótt og byrjuöum á því á undan öörum. Eg má til dæmis aðeins hafa 600 fjár á afrétti og þá eru lömb talin meö. Afganginn verö ég aö hafa hér heima. Annars held ég aö það standi óhaggaö, aö almennilega rekin kúabú séu bezti búskapurinn.*1 SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.