Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1980, Qupperneq 3
Einstæöur atburður: Konur í þúsundatali koma saman á
Lækjartorgi á kvennafrídaginn 24. október 1975.
t t &
ýmislegt, sem verið er að fást við enn
þann dag í dag. Það er til dæmis
einkennileg tilfinning aö rifja upp
klausu á borö viö þessa: „Jafnréttiö er
nauðsynleg afleiðing af vissunni um, að
karlar og konur séu hvers annars
jafningjar bæöi aö hæfileikum og
ábyrgö“ — með þaö í huga, aö hún er
fest á blaö fyrir meira en 130 árum.
Upp úr þessu fer alls staöar aö ólga.
Konur taka aö krefjast réttar síns,
krefjast þess, aö þær séu gjaldgengar
á sömu sviðum þjóöfélagsins og karlar,
og stofna hvert félagiö á fætur öðru,
flest til aö berjast fyrir kosningarétti
kvenna. í þessari baráttu bættust
konum ýmsir góöir liðsmenn úr hópi
karla, og er þar einkum aö nefna
brezka þingmanninn og rithöfundinn
John Stuart Mill, sem flutti áriö 1867
frumvarp um kosningarétt kvenna í
brezka þinginu. Tveimur árum síöar
kom út eftir hann bókin Um kúgun
kvenna, sem þýdd var á íslenzku um
síöustu aldamót, líklega aö undirlagi
Ólafíu Jóhannesdóttur. Brezku súffra-
getturnar fóru af stað og meö nær
ofurmannlegu úthaldi og stööugleika
tókst þeim að ná marki sínu, þ.e.
þjóöfélagslegum réttindum á viö karla
og bar þar kosningaréttinn hæst. Og
hvarvetna hneig þróunin í sömu átt.
Alþjóöasamband kvenréttindafé-
laga, IAW — International Alliance of
Women — var stofnað í Berlín áriö
1904 meö aðild 8 landa, en nú eru 53
lönd í sambandinu. Á fyrsta þingi
samtakanna í Kaupmannahöfn áriö
1906 var Bríet Bjarnhéðinsdóttir
áheyrnarfulltrúi, en ísiand gat ekki
gerzt formlegur aöili, því aö hér var
ekkert kvenréttindafélag. Að vísu haföi
Hiö íslenzka kvenfélag veriö stofnað
1894 fyrir forgöngu Þorbjargar Sveins-
dóttur og Ólafíu Jóhannsdóttur, syst-
urdóttur hennar og þaö beitt sér fyrir
kosningarétti kvenna, en þegar frá leiö
og frændkvennanna naut ekki lengur
við í forystu, hneigöist starfsemi fé-
lagsins meira aö líknarmálum. Eftir
stofnun Kvenréttindafélags íslands
1907, að frumkvæöi Bríetar, gerðist
ísland fullgildur aðili aö samtökunum
og er enn. Þess má til gamans geta, aö
einn af stofnfélögum IAW og heiöurs-
forseti, Dame Margary Corbett Ashby
er enn á lífi. Hún er fædd 1882, og fyrir
þremur árum hitti ég hana á stjórnar-
fundi samtakanna á írlandi, unga í
anda og hressa, hafsjó af fróðleik og
reynslu meö ótrúlega yfirsýn yfir menn
og málefni. Áriö 1918 var hún í
framboöi fyrir Frjálslynda flokkinn í
Birmingham á móti Neville Chamber-
lain, sem raunar fór með sigur af hólmi!
í þessum kosningum voru 17 konur í
framboöi, þ.á m. Christabel Pankhurst,
ein aöalpersónan úr sjónvarpsþáttun-
um „Saman viö stöndum", sem ís-
lenzka sjónvarpið sýndi fyrir nokkrum
árum.
SJA NÆSTU SIÐU
Sveinbjörn Beinteinsson, Draghúlsi:
VEÐUR
Fyrir veöri og vindum
vatnsflaumi hríð og syndum
ofiö í allskyns myndum
opiö stendur mitt hreysi.
Flögra fram og til baka
fokdreifar áratuga
enn mun þó ekki saka
ei skal mig veðriö buga.
Stoöir og stafir braka
standa hér til að duga.
Læt ég í veöri vaka
varúöarfullan huga.
Logn yfir staöinn leggur
lækyrr og hljóður morgunn.
Algert andvaraleysi.
Þuríður Guömundsdóttir:
VORBARN
(til Bjargar)
í maí
lagði voriö
væng sinn yfir heiminn
og verndaöi lítiö barn í vöggu
í maí
opnaöi lítiö barn augu sín
horföi undrandi á heiminn og lífiö
sem sagöi:
Litla vorbarn
ég er bók
ég er ævintýri
Viltu myndskreyta mig?
Ég legg þér til efnið
sorg og gleði samborgarans
sólina, regniö og hinn síunga hversdagsleika
Þaö er aftur maí
og vor í augum ungra konu
Ég er þakklát
Ég þekki hlýja skapandi hönd
sem heldur um pensilinn