Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1980, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1980, Side 9
þar sem hann hlustaöi á þaö sem fram fór og talaði viö börnin þegar færi gafst. Um helgar var hann á Hnausum hjá öldruöum heiöurshjónum, Hálfdáni og Salome; kynntist þar matargerð af gamla íslenzka skólanum og líkaði allvel, enda kvaðst hann ekki svo háöur McDonald og þeim bræörum, aö hann gæti ekki séö af því brasi tíma og tíma. Þegar skólanum lauk í vor aö Lýsuhóli, fékk David inni hjá þeim hjónum, Gunnlaugi Hallgrímssyni og Kristínu Kristjánsdóttur á Hellnum. Þangaö kom hann í byrjun sauöburðar og lærði margt í íslenzku. Gunnlaugur var útvegsbóndi; hann stundar sjó, en hefur auk þess 200 ær. Þar voru og til heimilis foreldrar Gunnlaugs, sem ekki var ónýtt, því gamla konan var skáld- mælt vel og kenndi David dálítið í íslenzkri bragfræöi og hjá henni og Hallgrími, bónda hennar, sem orðinn er 93 ára, læröi hann sjaldgæf orö og orðtök. Allt slíkt punktar hann hjá sér; einnig þegar hann talar við blaðamann aö sunnan, og þegar upp kemur til dæmis, aö „eigi verður feigum foröaö“, kippist hann viö og er fljótur aö ná í skrifblokkina sína. David haföi hendi næst bækur um íslenzkan, þjóðlegan fróðleik, bók Þóröar á Dagveröará og Undir Jökli eftir Árna Óla. Oft var Árni í Búöum aö sumarlagi og margt skráöi hann frá Snæfellsnesi. í þessu var David aö pæla og viö ræddum um þetta sér- staka fyrirbæri: Hinn alþýölega fræði- mann, sem skráir þjóölegan fróöleik. David haföi líka við hendina Orðabók Menningarsjóös, sem hann taldi ein- staka í þá veru, aö hægt væri aö læra sér til gagns eftir henni, en oröabækur þykja yfirleitt ekki heppilegar einar sér til málakennslu. Þaö var meö ólíkindum, hvaö David virtist oröinn kunnugur í Breiöuvíkur- hreppi, enda haföi hann lagt gjörva hönd á ýmislegt fleira en læra máliö. Bæði á Staöastaö og Hellnum haföi hann leyst af kirkjuorganistann og æföi þar að auki kirkjukórinn á Hellnum. Þar er nú ekki komiö að tómum kofanum, þegar músík er annarsvegar, því eitt sinn stóö til aö David fetaöi þá braut. Þá ætlaöi hann að verða söngvari og hélt til náms til háborgar tónlistar og söngs, Vínar- borgar. Þar var hann 1951—53 og lagði stund á söng og músík en seinna söölaöi hann um og lagði stund á mannfræði. Á Felli var David í næsta nágrenni viö Stellu og Sófónías Pétursson, þann kunna jóga, og bæöi eru þau gædd ríkulegum dulrænum hæfileikum. Hon- um féll vel viö þetta samfélag og hann hafði heyrt talaö um og lesið um þennan sérstaka kraft, sem dulrænt fólk skynjar undir Jökli. David kvaðst alveg trúa því, aö slíkur kraftur gæti birzt í einskonar samþjöppuöu formi á tilteknum stööum og aö hann kæmi þá frekar innan frá en utan. Væntanlega segir hann nemendum sínum við Princeton-háskóla eitthvaö frá kraft- birtingu undir Jökli, enda þótt sérsviö hans sé ekki í dulrænunni, heldur samband menningar og tungumáls. Á því haföi hann gert ýmsar athuganir og kvaö meginatriöi í því sambandi, hvaö íslenzkan væri búin aö haldast lengi lítiö breytt. Síðla ágústmánaöar hélt David Crabb utan að nýju og nú er hann fyrir nokkru kominn til kennslu aö nýju. Hann getur nú nánast rætt viö hvern sem er um hvaö sem er á íslenzku og sagöi um leið og hann kvaddi: „Von- andi kemst ég hingaö um jólin.“ Gísli Sigurðsson Jón Oddgeir Jónsson SÁÐMENN Á LOFTI Vængfráir menn varpa fræi í ógróin sár örfoka lands. Græn augu gróandans greypt í ásjónu jarðar glitra á ný. Steindór SigurÖsson HRÍSLUR Ég man eftir móunum heima á milli blásinna hæöa. Ennþá veit ég aö um þá útsynningarnir næöa, gráa af gamalli sinu og gulhvítum þúfnamosa. En örfáar einmana hríslur viö aökomumanninum brosa. Ég man þessar móahríslur, sem mennirnir notuöu í eldinn. Viö ylinn af þeim var oft unaö og elskaö í rökkrinu á kveldin. Valdemar Hólm Hallstað TIL MINNINGAR um Pétur Jóhannsson skipstjóra og Hjálmar Einarsson háseta á Bíldudal Þeir gleymast seint sem gefa allt, af gleöi hins hreina og sanna og saga þeirra veröur litríkt Ijóö í Ijósbrotum minninganna. Viö kveöjum í dag svo klökk og hljóö hvert hjarta þar undir tekur. Svo mildur og hlýr er sá morgunblær, sem minning hins liðna vekur. Maríus Ólafsson GEISLINN Hvert sem aö leiöin mín liggur lýsir í sál minni geisli, kveiktur í heilagri hrifning hjartans á gleöinnar stundu. Geisli sem brúar mér bilið: brautina sólkerfa milli. — Gott er í Ijóöheimi aö lifa líöandi á sólbjörtum vængjum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.