Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1981, Blaðsíða 9
skála þeir Kurt Ullberger þingmaður af
Stokkhólmsléni, er hefur með menning-
armál aö gera fyrir flokk sinn (sósíaldemó-
krata) og Karl Erik Haggeblad, sem er
mikill áhrifamaöur í sænsku myndlistarlífi
(2). Hér bíða íslendingarnir í sínu fínasta
skarti eftir að ráöherrann birtist. Hinn
snjalli túlkur Owe Gustaws er lengst til
vinstri, þá greinarhöfundur, Guöbergur
Auðunsson og loks Örn Þorsteinsson (3).
Þessi hvíta marmaramynd er eftir Austur-
Þjóöverjann Peter Makolies frá Dresden (f.
1936), og nefnist „Krogþur meö skartgrip"
(4). Þá kemur skúlptúr eftir Norðmanninn
Hugo Frank Wathne og ber heitið „Anda-
skipiö" (5). Polverjinn Stefan Zuchowski (f.
1953), Varsjá, hefur valiö aö mála nektina
svo sem hann sér hana annars vegar og
Rembrandt hins vegar. Nefnir myndina „í
dag“ (6). Rússinn Juri K. Koroljew (f. 1929),
Moskvu, er mættur meö mynd er hann
nefnir „Stjörnubræður" (7). Ewa Dann-
Suchodolska frá Póllandi (f. 1928 í Varsjá)
hefur málað þessa konumynd, sem gæti
minnt einhverja á kúgun konunnar þótt sú
sé vafalaust ekki meiningin hjá listakon-
unni meö myndefninu (8). Myndir þeirra
félaga Magnúsar Kjartanssonar og Arna
Páls nutu sín vel á íslenzku deildinni en
þóttu nokkuö torskildar þar austurfrá (9).
Þótt sumum muni koma það á óvart þá er
þessi mynd frá Rússlandi og er eftir
Alexander G. Sitnikow (f. 1945) og nefnist
„Engar styrjaldir“ (10). Helga Helena
Reinakainen frá Karelíu (f. 1940) er
höfundur þessara tveggja Ijóörænu mynda
(11). Þessi mynd óróa og frumorku mun
vera eftir Vestur-Þjóöverjann Erhard
Göttlicher (f. 1946) og nefnist „Fall í víti“.
Hér er um að ræöa ungan listamann er
rakaö hefur til sín verölaunum á sýningum
fyrir vestan á undanförnum árum (12).
Loks sjáum viö mynd eftir Danann Jörgen
Buch (f. 1943) og er hún gott dæmi um
pólitískt hugarfar í myndlist (13).
Af myndunum, sem hér hafa komiö
fram, má marka, aö ýmislegt á sýningunni
gæti allt eins veriö á myndlistarþingi í
vestri og eru þessar myndir þó valdar af
nokkru handahófi eftir því hve vel þær
tókust í Ijósmyndun greinarhöfundar.
9