Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1987, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1987, Page 6
Ljóð eftir tyrkneskan forsætisráðherra Aðalsteinn Ingólfsson þýddi Bulent Ecevit Á morgun á morjpm geríst eitthvað það sest á hestunum, hvernig heir haga sér í haganum, pað sést á ferðalagi skýianna og á brambolti broddgaltanna mður við svörðinn af írafári mauraflugnanna má skilja að á morgun gerist eitthvað, kannski fellur blómknappur, kannski fellur lauf af tré, kannski barn þótt við sjáum ekki inn í framtíðina skynjum við í flóttalegum vængjaslætti fuglanna að eitthvað gerist á morgun eitthvað lítilvægara en hmn daginn, mikilvægara en í dag (1975) Manneskja vissulega verður myndin sem þú teiknar fegurn en þú, og skúlptúrinn sem þú mótar verður meiri en þú myndarlegri en þú ljóðið sem þú skrífar verður einlægara en þú lagið sem þú syngur verður tilnnningaríkara en þú þú ert meiri en þú ert betri en þú ert myndaríegri en þú ert (1954) HæfileJki horfðu sjónlaust hlustaðu heyrnarlaust vittu vitlaust lát sá þér með útsæðinu sprettu með tríáviðnum hníg með laufinu harma hljóðlaust hlæðu gleðilaust dey lifandi liúk upp lófum lát himininn greiða gátu (1976) Biilent Eeevit (f. 1925), sem var forsætisráðherra Tyrklands frá 1974 til 1980, er mikill bókmenntamaður. Á yngri árum þýddi hann skáldskap eftir Tagore, Ezra Pound, Dylan Thom- as og T.S. Eiiot. Á árunum 1946—50 var Ecevit við nám í sanskrít og listasögu í Lundúnum, og hefur skrifað margar ritgerðir um listsöguleg málefni. Árið 1976 kom út ljóðakver eftir hann sem hlaut miklar vinsældir í heimalandi hans. Ecevit skrifaði flest ljóða sinna í hita stjómmálabaráttunnar til þess, að því hann sjálfur segir: „að halda lífí í sjálfínu". Úrval ljóða Ecevits kom út á sænsku árið 1985, í þýðingu Anne-Marie Özkök með inngangi eftir Olof Palme. íslensku þýðingamar eru gerðar eftir þeim þýðingum og þarafleiðandi eru þær varla nema bergmál af skáldskap Ecevits á frummálinu. A.I. Stýrimanni fórnað Isjórétti sagði skipstjórinn á Goðafossi ekki sannleik- ann um strand skipsins. 1. stýrimaður sagði ekki allan sannleikann, sennilega til hlífðar yfirmanni sínum, en þó nógu mikið til þess að málið lá nokk- uð ljóst fyrir. En það virðist ekki hafa verið ætlun Af Goðafoss-strandinu við Hornstrandir 1916 og hinum furðulegu eftir- málum þess EFTIR ÓLAF ELÍMUNDARSON sjódómsmanna og annarra forráðamanna, að málið yrði upplýst. Og það skóp 1. stýri- manni skipsins hörð örlög. Frásögn þessi birtist í ritinu Frá ystu nesjum, 3. bindi 1982. Hér er hún allmikið stytt. í janúarmánuði árið 1914 var Eimskipafé- lag Islands stofnað. Ákveðin var smíði tveggja skipa til farþega- vöruflutninga. Bæði skipin voru smíðuð í Danmörku. Fyrra skipið, Gullfoss, kom svo til landsins 16. apríl 1915, en seinna skipið, Goðafoss, kom í fyrsta sinn til Reykjavíkur 13. júlí. 'Goða- foss var 1374 brúttólestir, og rúm voru fyrir 56 farþega. Skipum þessum var forkunnarvel tekið af þjóðinni, þeim var fagnað hvar sem þau komu og skipstjórar þeirra vegsamaðir. Goðafoss var í áætlunarferðum milli íslands og Kaupmannahafnar og í strandferðum norður um land. Haustið 1916 var farin ein ferð til New York og komið aftur til Reykjavíkur úr þeirri ferð 21. nóvember. í strandferð til Akureyrar var haldið úr Reykjavík þann 23. I „Dagbók" Morgun- blaðsins stendur þetta þriðjudaginn 28. nóvember: „Skipaferðir. Þrjú skip fara héð- an í dag vestur til ísafjarðar, Goðafoss, Ceres og Flóra. Varla geta Vestfirðingar nú kvartað undan samgönguleysi, þar sem þrjú skip fara í einu, en svo líður líka lang- ur tími þangað til næsta ferð fellur vestur." „ Við Erum Allt Of Langt Frá RITNUM“ .Goðafoss kom til ísafjarðar 29. nóvember Flakið af Goðafossi þar semþað liggur í stórgrýttri fjöru undir Straumnesfjalli.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.