Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1987, Side 11
I
/ súpermarkaði
sjónHstanna
Október og nóvember eru
eflaust viðburða- og
litríkustu mánuðirnir í
menningarlífi Parísar-
borgar. Listahátíð vetr-
arins hefst á ný og
margvíslegar hátíðir eða
„festivals" skreyta
veisluborðið. „festival d’automne" eða
Hausthátíðin býður uppá fyrsta flokks
skemmtikrafta, erlenda sem innlenda. Ljós-
myndamánuðurinn (sem reyndar varir 2—3
mánuði), haldinn á tveggja ára fresti, breið-
ir úr sér þetta misserið í ýmsum ljósmynda-
galleríum og söfnum. Og í lok október má
einatt sjá gríðarstór auglýsingaspjöld árituð
FIAC víðs vegar um borgina, Foire Inter-
national d’Art Contemporain eða Alþjóðleg-
ur sölumarkaður nútímalistar eins og hægt
væri að leggja það út á íslensku. Opnun
FIAC er ár hvert mikill viðburður og undir-
strikar með veldi sínu að myndlistarvertíðin
sé nú hafin af fullum krafti hér í borg. Á
þennan markað koma listaverkasalar, list-
unnendur og safnarar víðs vegar að úr
heiminum til þess að bera saman bækur
sínar, skoða og kaupa — og sóttu hann í
ár hvorki meira né minna en 120 þúsund
gestir.
Fiac, Alþ jóðleg
Myndlistarmessa
Stórmarkaður listaverka í orðsins fyllstu
merkingu. FIAC var haldinn í fyrsta skipti
í janúar árið 1974 í einum af sýningarsölum
gömlu lestarstöðvarinnar á Bastillunni fyrir
tilstuðlan nokkurra galleríeigenda og var
þá með algjörum byijendabrag. Síðan hefur
hann vaxið jafnt og þétt, aukið veldi sitt
framar ölum vonum og er nú orðinn al-
þjóðlegur menningarviðburður sem dregur
að sér listunnendur, listmiðlara og safnara
hvaðanæva úr heiminum. Árið 1976 sam-
þykkti menningarmálaráðuneytið að flytja
Fyrir framan inngang Stóru Hallarinnar var bíll málaður af Hervé Di Rosa, og
verðurhonum ekið ínæsta París-Dakar kappakstrinum.
Höggmynd eftir Plensa í Gallerí Guim-
not í Brussel.
t.d. Blais, Luis Jammes (Galerie Yvon Lam-
bert, París), Armleder (Galerie Bama, París
og Galerie Catherine Issert), Di Rosa (Gal-
erie Gillespie-Laage-Salomon, París)
o.s.frv.
Einnig voru þarna 32 listtímarit með
kynningarbása, þar sem gestir gátu fengið
áskriftargjald á vægu verði.
FIAC hefur löngum haft það orð á sér
að vera „hefðbundnastur" þessara lista-
verkamarkaða og er þá bæði átt við form
og innihald. Galleríin fá t.d. ekki þátttöku-
leyfi nema uppfylla viss gæðaskilyrði sem
tilskipuð dómnefnd setur, og síðan geta
menn deilt endalaust um það á hvaða for-
sendum þessi gæðastimpill sé ákvarðaður.
í þetta skipti var t.d. tala erlendu gallerí-
anna hærri en þeirra frönsku, 75 á móti
63 sem hafði aldrei gerst áður og er t.d.
eftirtektarvert hve mörg gallerí koma frá
Norðurlöndunum, Danmörku og Svíþjóð.
Einnig vakti þátttaka Norðmanna athygli
þar eða þetta var í fyrsta skipti sem þeir
létu sjá sig á FIAC og var það gallerí Riis
I
Gallerí Birch i Kaupmannahöfn sýndi meðal annars verk eftir Carl Henning
Pedersen.
hann undir glerhvelfingu Stóru hallarinnar,
Grand Palais, og í þvi stórkostlega húsi
hefur FIAC verið ár hvert síðan og svo til
nákvæmlega sama tfma í ellefu daga sam-
fleytt.
Myndlistarmarkaðir með svipuðu sniði
hafa sfðan margfaldast heimshoma á milli
og meðal þeirra þekktustu og mikilvægustu
eru markaðurinn í Köln, Basel og Chicago,
á Norðurlöndum er Konstmássan í Stokk-
hólmi án efa þekktastur.
Erlendu Galleríin
AldreiFleiri
Að þessu sinni voru á FIAC 138 gallerí
frá 20 löndum sem samanlagt sýndu um
5000 listaverk eftir 800 ólíka listamenn.
Sum buðu upp á verk eftir gamla meistara
eins og Picasso (Galerie Marwan Hoss, Par-
is), Masson (Galerie Due Ci, Róm), Magritte
(Galerie Michel Delorme, París), önnur héldu
sig við línur yngri kynslóðarinnar eins og
Þetta verk eftir Erró í Galleri Montenay-Delsol kostaði sem svarar 100 þús. isl
krónur.
■ i
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. FEBRÚAR 1987 14