Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1988, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1988, Blaðsíða 19
A EIGIN VEGUM/anna bjarnadóttir Guðsást var innblástur Fra Angelicos Athyglisvert safn í dýrgripamergð Flórens Flórens er stór- kostleg borg. Hún býr yfir slíku ógrynni lista- verka að það tek- ur marga daga bara að fá nasa- sjón af því allra merkilegasta sem hún hefur upp á að bjóða. Græna Michelin-leiðsögu- bókin um Ítalíu, sem er til á ensku og mér finnst ómissandi á ferðalög- um, leggur til að borgin sé skoðuð á fjórum dögum og skiptir gersem- um hennar niður á þá. Leiðsögu- bókin „Florence", sem fæst á fjölda tungumála á næstum hveiju götu- homi í Flórens, leggur til að það sé farið hægar í sakimar og hlut- imir skoðaðir í sjö lotum. Allir vilja skoða dómkirkjuna, klukkutuminn og skímarkapelluna á Piazza del Duomo; höggmyndim- ar á Piazza della Signoria og gömlu brúna yfir ána Amo. Listunnendur verða að skoða Uffizi-safnið en náttúmunnendur ættu að fara út fyrir bæinn og aka Viale dei Colli, einn af þekktustu vegarspottum Ítalíu, og njóta útsýnisins yfir borg- ina og Toscany-hérað. Lástinn yfir hallir, kirkjur og söfn, sem em talin þess virði að skoða til viðbótar við hið allra mikil- vægasta, er svo langur að manni fallast hendur. En mér finnst eitt safn, sem er getið nokkuð seint í dagskrám leiðsögubókanna, bera af öðmm söfnum og tel að jafnvel þeir sem hafa takmarkaða skemmtún af að fara á listasöfn hafi gaman af að sjá þetta. Það er Fra Angelico-safnið við San Marco-kirkju. Það er til húsa í gömlu dóminíkaklaustri, skamman spöl frá dómkirkjunni og hefur að geyma öll helstu listaverk málarans og svartmunksins Fra Angelicos. Hann var uppi á fyrri hluta 15. aldar og er talinn einn af þýðingar- mestu málurum álfunnar á ámnum 1440 til 1455. Hann lærði ungur myndskreytingar og talið er að hann hafi skreytt megnið af stór- um, gullfallegum upphafsstöfum í handriti messusöngbókar frá 1430 sem er til sýnis í safninu. Hann gekk í klaustur dóminíkareglunnar í Fiesole, sem er skammt frá Flór- ens og þykir vel þess virði að heim- sækja, í kringum 1420 og vann þar Kyrrð og friður ríkir yfir gamla San Marco-klaustrinu. við handritið. I stöfunum em kristi- legar myndir sem minna mjög á altaristöflur, tré- og veggmálverk sem hann málaði og em einnig í safninu. Fra Angelico hét réttu nafni Guido di Pietro en var kallaður Fra Giovanni da Fiesole, eða Bróðir Jóhannes frá Fiesole, af samtíma- mönnum sínum. Englaheitið féstist síðan við hann af því að hann og listaverk hans þóttu svo himnesk. Hann var guðhræddur og góður munkur og komst vel áfram í klaustrinu. En listsköpun hans þótti bera af og vakti athygli. Dóminíkaklaustrin í Fiesole og Flórens vom sameinuð 1436 og tveimur ámm síðar var Fra Ang- elico falið að gera nýja altaristöflu fyrir San Marco og skreyta veggi byggingarinnar. Freskumar vom Skrautleg tíðabók er til sýnis í handritasafninu. Boðun Maríu eftir Fra Ahgelico. hreinsaðar fyrir nokkmm ámm og em nú til sýnis í allri sinni dýrð. Þær em á veggjum lítilla munka- klefa uppi á efri hæð klaustursins. Þær em bjartar og fallegar biblíu- myndir, málaðar í sterkum litum með þó nokkurri dýpt. Fra Ang- elico vildi örva guðsdýrkun mun- kanna með myndunum en hafði einnig áhrif á þróun ítölsku endur- reisnarstefnunnar með þeim. Þær sóma sér vel í sínu eigin umhverfí og hafa sterk áhrif á þá sem gefa sér tíma til að njóta þeirra. Fra Angelico skreytti sex klefa og málaði þijár myndir á gangi, þar á meðal Boðun Maríu sem er eitt af hans þekktustu verkum, en að- stoðarmenn hans og lærlingar sáu um afganginn undir hans tilsögn. Hann var kallaður til Rómaborgar, meðal annars til að skreyta kapell- ur í Vatíkaninu, áður en verkinu var lokið og lést þar í febrúar 1455. San Marco-klaustrið státar af öðmm þekktum manni sem hélt þar til í lok 15. aldar. Girolamo Savonarola, ábóti, var mikill púrít- ani og hreif íbúa borgarinnar með sér með ræðusnilld sinni. Hann lét dæma son af Medici-ætt, helstu ætt borgarinnar, í útlegð fyrir að sýna Frökkum linkind en fagnaði sjálfur innreið Frakklandskonungs nokkmm ámm síðar. Arið 1497 skipulagði hann brennu á Piazza della Signoria þar sem hégómlegir hlutir á við hárkollur, hljóðfæri, ljóðabækur og listaverk vom brennd. Ari seinna höfðu Flórens- búar fengið nóg og brenndu Sa- vonarola sjálfan á báli á sama stað. San Marco er opið fyrri hluta dags alla daga nema mánudaga. Það er heitt og þröngt þar eins og annars staðar í Flórens yfir sumar- mánuðina. En það er frábært að skoða safnið og borgina alla fyrir utan helsta ferðamannatímann, til dæmis í mars, þegar fer að vora, eða á haustin. Vantarþig gistingu nálægtMývatni? Bjóðum upp á herbergi eða svefnpoka- pláss með morgunverði. Fallegt umhverfi. Opið dllt árið. SÍMI 96-44242. OpÍð allt árið Vetrartilboð Gistiheimilið Svanurinn Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit, sími 96-44170. fiMíM hópferðabílar vft - ALLAR _lOSTÆRÐIR S* *(ÍE3|Fjt& SÍMAR OÆ&te 82625 ^ ~ 685055 LOKASTÍG 24A - SIMI: 25318. Bílaleiga Borgartúni 25 Símar 24065 — 24465 Góðir bílar á góðu verði ÞAÐ STANSA FLESTIRÍ STAÐARSKÁU 4x4 BÍLAR e 4-9 MANNA BÍLALEÍGA RVS CAR RENTAL SERVICE ^ (SERV.) 08J EFTIRÞAÐ: SÍMSVARI HEIMASlMI: 45888 FARSÍMI: 985-25788 ferd — Örugg ferd — Odýr ferd Ueriól$ur h.$. VESTMANNAEYJUM SÍMI 98-1792 & 1433 REYKJAVÍK SÍMI 91-686464 FERJA FYRIR ÞIG LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. MARZ 1988 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.