Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1988, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1988, Blaðsíða 20
Vetrarparadísin - Mývatn greinilega. Ef heppnin er með er hægt að fylgjast með þegar sil- ungurinn gleypir agnið. Dorgveið- in er mjög breytileg þar sem mikl- ar sveiflur eru í lífríki Mývatns og þess vegna erfítt að treysta á veiðifeng. En þegar undirrituð var að veiða helgina 13.-14. febrúar komu nokkrir silungar búnir að koma upp um holumar. Stundum voru þeir svo stórir að þurfti að stækka holuna til að ná þeim upp. Þegar setið er á veiðarfæra- kassa úti á Mývatni, með nútíma samgöngutæki sveitarinnar allt í kringum sig — er gaman að ímynda sér hvemig það var þegar skautar voru aðal samgöngutækið yfír vatnið. Þá var Þingnes aðal samkomustaðurinn við vatnið, Slútnes tók við hlutverkinu siðar. Vatnið hefur alltaf verið miðdep- ill sveitarinnar. Lestrarfélag Mý- vetninga var til dæmis stofnað úti í Mikley af veiðimönnum sem voru að dorga á vatninu. VETRARSAMGÖNGU- TÆKISVEITARINNAR Mývetningar stunda skautaíþróttina ekki mikið núna. Vélsleðinn á alla athygli þeirra. Það er ekki langt að fara til að leika sér í snjónum og algengt að sjá húsmæður bruna í vélsleð- Mývatn og umhverfi þess er eitt myndríkasta svæði íslands og um leið einn vinsælasti ferða- mannastaður landsins. Mývetn- ingar hafa löngum verið fram- sæknir í ferðamálum og nú ætla þeir að gera átak í að kynna Mývatn sem vetrarparadís fyrir ferðamenn. Ferðaskrifstofan Úrval í samvinnu við Flugleiðir býður upp á helgarpakka til Mývatns. Gist verður í Hótel Reynihlíð og lágmarksdvöl eru tvær nætur. Verð á mann í góðu tveggja manna herbergi með morgunverði kostar 7.880 krónur. Innifalið er flug Reykjavík — Húsavík — Reykjavík og ferðir til og frá Húsavíkurflugvelli. Fegurð Mývatns í vetrarbún- ingi á góðum, björtum degi er ekki síðri en náttúrufegurð sveit- arinnar að sumarlagi. Stillur eru yfírleitt miklar á þessum árstíma og umhverfíð baðað í vetrarsól. íslendingar ættu að nýta sér kosti vetrarferða til Mývatns. A sumrin er hér yfírfullt af ferðamönnum og oft lítill friður, en á vetuma ríkir hér sérstætt andrúmsloft og meiri friðsæld. Möguleikar eru líka meiri á þessum árstíma að komast í tengsl við íbúana og atvinnulífið og skjmja hvemig lífíð gengur fyrir sig á litlum stað. Margt er til staðar til að stunda vetraríþróttir. Aðstaða til skíða- göngu er mjög góð, merkt göngu- skíðabraut í fallegu landslagi. Fyrir svigskíðafólk er skíðatog- braut í upplýstri brekku. Brekkan er að vísu ekki mjög há, en góð fyrir byrjendur og krakka sem vilja leika sér á skíðum. Þeir sem vilja reyna eitthvað nýtt og sér- stætt, geta farið að dorga í gegn- um ísinn á vatninu. Veitt í Gegnum Ís Dorgveiði á vatninu er aðeins leyfð í fylgd staðarmanna af ör- yggisástæðum. Mývetningar eru ekki lengi að grípa ísborinn sinn og búa til góða veiðiholu fyrir ferðamanninn. Sérstakir kassar gegna hlutverki veiðarfæra- geymslu og setgagns. Það er ósköp þægilegt að geta tyllt sér niður á kassann á meðan færið er hreyft hæfílega mikið upp og niður. En hætt er við að margir gleymi sér við að horfa á fegurð- Snæbjamarhýði - hvíldarstaður göngufólks. Þær eru nú vígalegar þessar. ina í kringum sig og verði ekki varir við þegar kippt er í spott- ann. Gaman er líka að leggjast fast niður að holunni og horfa niður. Þá sést hvað ísinn er þykkur, en hann er yfírleitt um metri á þykkt yfír háveturinn. Vatnið er bæði grunnt og tært og botninn sést Síðustu sólargeislarnir glampa á þjarninu. Fyrsta vélsleðakeppnin á Mý- vatni varhaldin 1979. um meðfram götunum með krakkana aftan á. Til gamans má geta að árið 1983 voru 83 vélsleðar í Mývatnssveit. Síðan hækkaði verð á vélsleðum og í kjölfarið komu 4 snjólausir vetur. Núna um áramótin voru 49 vél- sleðar í sveitinni og þetta er besti snjóavetur í 5 ár. Mývetningar ætla að bjóða upp á vélsleðaleigu og jafnvel vera með skipulagðar vélsleðaferðir um helgar í vetur. I slíkar ferðir verð- ur að búa sig vel. Ullin reynist best sem nærfatnaður og að klæð- ast hlýjum ytri fatnaði sem hrind- ir vel frá sér bleytu eða vera í vatnsheldum galla yst klæða. íslenskir vélsleðagallar hafa verið framleiddir sem eru góðir í þurrum kulda, en þeir blotna illa. Bandaríkjamenn eru komnir lengst í framleiðslu á vélsleðaút- búnaði og bandarískir vélsleða- gallar úr leðri eru taldir bestir, bæði mjög hlýir og þola vel bleytu. En það er hægt að skreppa á vélsleða dagstund, þó ekki sé ver- ið í sérstökum vélsleðagalla og hlýir skíðágallar henta mjög vel. Sérstakir vélsleðagallar eru meira fyrir þá sem nota sleðana í at- vinnuskyni eins og margir Mý- vetningar þurfa að gera. Á vélsleðunum eru allir með hjálma og eflaust sjá Mývetningar um að útvega þá fyrir farþegana

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.