Lesbók Morgunblaðsins - 23.04.1988, Blaðsíða 11
3RGIN
ard Ter Borch. Þessi gamli þingsalur er
allur innréttaður með útskomum viði og
borgarbúum þykir hann svo verðmætur, að
hann var rifinn niður, stykki fyrir stykki
þegar heimsstjfyöldin skall á, og geymdur
á öruggum stað. Og að stríðinu loknu var
farið að púsla honum saman að nýju.
Dómkirkjan er að líkindum frá því um
1200, þegar Karlamagnús var við völd; hún
hefur verið byggð á þeim tímamótum, þeg-
ar gotneskur stíll tekur við af hinum svokall-
aða rómanska. Þetta er afspymu tilkomu-
mikið hús og stendur enn eins og ævinlega
áður í miðpunkti borgarinnar. Ekki slapp
kirkjan ómeidd úr hildarleik stríðsins, en
gert hefur verið fullkomlega við þær miklu
skemmdir, sem á henni urðu.
Það sem ferðalangurinn rekur þó augun
í fyrst af öllu er mergð reiðhjóla, sem læst
hefur verið og lagt á tiltekin svæði. Þetta
er skiljanlegt í ljósi þess, að tugir þúsunda
stúdenta em við nám í Miinster og nota
ugglaust reiðhól til sinna ferða. En það
skýrir ekki allt; mér skilst að það hafí lengi
tíðkast, að fólk sem býr einhvers staðar
utan við borgina taki lest (eina af þessum
300) og þegar á brautarstöðina kemur biður
hjólhesturinn á sinum stað og haldið er
áfram til vinnustaðarins á honum. í
Miinster er geysilega stórt sjúkrahús í tengsl-
um við háskólann og gnæfa tveir tumar
þess hátt.
Af nýrri byggingum er einna athyglis-
verðast borgarleikhúsið; mjög nútímaleg
bygging og yfirleitt er aðdáunarvert, hversu
vei hefur tekizt að láta mjög nýtízkuleg hús
falla að þeim gömlu. En þar sem sprengja
féll og eyðilagi kannski eitt hús í þéttri röð
hefur það síðan verið endurreist með þeim
hætti, að ekki er nokkur leið að sjá það til-
sýndar, að það sé ekki jafn gamalt og hin.
Hér eins og víðast í Þýzkalandi er rekin
mjög ákveðin húsfríðunarstefna; ef hægt
er að bjarga því gamla og byggja það eins
og það var, þá hefur það verið gert. En þar
fyrir utan er engin „nostalgía" á ferðinni
og áherzla lögð á góðan nútímaarkitektúr
þegar ný hús em byggð.
GÍSLI SlGURÐSSON
Ráðhúsið í Miinster er með feykilega
íburðarmikla forhlið, sem nær langt
uppfyrir sjálft húsið.
Á Landesmuseum í Mtínster eru um-
fram allt verk gömlu þýzku expressjón-
istanna, en einnig margt annað, þar á
meðal þessi mynd eftir de Chirieo.
Eitt af þessum sérkennilegu, gömlu húsum varð fyrir sprengjuárás í stríðinu,
en var síðar endurreist með mikilli alúð og nákvæmni - og nú sér vegfarandimt
ekki, að neitt slíkt hafi átt sér stað.
Mannlíf í skjóli hinnar miklu móður, dómkirkjunnar, sem er miðpunktur borgar-
innar. Kirkjan varð fyrir sprengjuárás í stríðinu, en svo vel hafa viðgerðir verið
af hendi leystar, að nú sést ekki hvað það var sem hrundi.
*
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. APRÍL-1988 1 1