Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1988, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 20.08.1988, Page 11
itiHiUiiUiUiiniuihjij jiUniMHiiílJtllJlíi! Sívertsenshúsið, íbúðarhús Bjarna, nú upp gert og til sýnis. Um hríð voru þar Fasteignir Knudtzonsverslunar þ.e. Nýja riddara, reist 1803-1805 Talsvert var um það á fyrstu árum hinn- ar svonefndu fríhöndlunar að lausakaup- menn nýttu verslunarfrelsið og færu um með vaming sinn á íslandi. Þeir sáu sér hag í að hafa umboðsmenn í sveitum og skilja eftir hjá þeim vörur til að selja smám sam- an miili kauptíða. Þannig byijaði Bjami Sigurðsson að versla: sem umboðsmaður í Selvogi fyrir erlenda lausakaupmenn. Umboðsverslun þessi var úrskurðuð ólög- leg, en sýslumaður Ámesinga benti Bjama á löglegt úrræði: að fá sér borgarabréf í Vestmannaeyjum (sem voru „kaupstaður" Suðurlands), kaupa vörar lausakaupmann- anna og reka verslun með þær sem útibú frá Vestmannaeyjakaupstað. Þannig varð Bjami Sigurðsson „borgari" haustið 1789 og verslaði sem slíkur næstu tvö sumur, jafnframt búskapnum. Konungsverslunin lenti í mesta basli við að selja eignir sínar á íslandi, en víðast hvar varð niðurstaðan sú, að verslunarstjór- ar hennar keyptu verslunarstaðina, hús og vörabirgðir, og hófu að versla sem sjálfstæð- ir kaupmenn, undanþegnir því ákvæði að fastaverslanir væra á vegum kaupstaðar- borgara. En samkeppni lausakaupmanna rejmdist fastakaupmönnunum þungbær, og til að þeir lentu ekki í vanskilum með kaup- verð verslananna reyndi stjómin að bæta hag þeirra með því að skerða rétt lausakaup- manna og annarra keppinauta. Vegna kvartana Eyrarbakkakaupmanns var t.d. Bjami Sigurðsson sviptur borgarabréfí sínu 1792. Borgarar máttu héðan í frá ekki búa uppi í sveit, og lausakaupmenn máttu ekki heldur versla nema á löggiltum verslunar- stöðum. Bjarni Og HAFNARFJÖRÐUR Hafnarfjörður átti að heyra undir kaup- staðinn Reykjavík, en svo fór að verslunar- stjóri Konungsverslunarinnar, Muxoll nokk- ur, keypti eignir hennar í Firðinum árið 1790. Hann bjó við skæða samkeppni frá lausakaupmönnum; aðgerðir stjómarinnar gegn þeim komu of seint fyrir Muxoll, og 1793 varð hann gjaldþrota. Núna var hins vegar ekki óálitlegt að versla í Hafnarfirði, þegar búið var að skerða rétt lausakaupmanna. Enda urðu tveir kaupmenn til að taka upp merki Mux- olls. Annar hafði áður verslað sem lausakaup- maður, en gerðist nú borgari í Reykjavík og hafði útibú í Hafnarfírði, verslunina Flensborg, kennda við heimabæ hans, Flensborg í þýska hertogadæminu Holstein, en það var hluti Danaveldis. Hinn var enginn annar en Bjami bóndi Sigurðsson úr Selvogi. Hann hafði skilið það rétt, að því meir sem hindrað var verslun sjálfs hans og annarra í tengslum við lausa- kaupmenn, því vænlegra varð að reka föstu verslanimar. Þótt þær væra nú margar á barmi gjaldþrots, myndi hagur þeirra vænk- ast. Þegar hann vissi af gjaldþroti Muxolls, dreif hann sig til Kaupmannahafnar, keypti Hafnarfjarðarverslun af sölunefnd verslun- areignanna og fékk að auki hjá henni rekstr- arlán. Hóf Bjami síðan verslun í Hafnar- fírði voru 1794. Að hausti næsta árs, eftir tveggja sumra verslun Bjama og Flensborgar, standa 23 bændur á verslunarsvæði Hafnarfjarðar að umkvörtun til stiftamtmanns um verslunar- hætti. Kaupmenn ákveða upp á eindæmi óhæfilegt verðlag, bæði á innlendri vöra og erlendri, þeir hafí ónógar vörur og skemmd- ar og noti svikna vog, og láti alls ekki úti peninga, heldur knýi viðskiptavini sína til að taka hvers kyns óþarfa upp í innlegg sitt. Kvörtunin bergmálar klögumál „al- mennu bænarskrárinnar“ til konungs um annmarka á verslunarháttum og þarf ekki að þýða að ástandið hafí verið neitt verra í Hafnarfirði en gerðist og gekk. Bjami var a.m.k. aldrei eini kaupmaðurinn í Firðinum, auk þess sem nálægðin við Reykjavík leiddi til nokkurrar samkeppni í verslun. Bjama Sívertsen búnaðist vel sem kaup- manni, og umsvif hans uxu undraskjótt. Hann keypti strax flutningaskip til milli- landasiglinga og annað stærra tveim áram síðar, en þtjú hafskip átti hann í föram þegar mest lét. Hann gerði út báta til físk- veiða og kom sér fljótlega upp litlum þilskip- um til veiða. Sum lét hann sjálfur smíða í Hafaarfírði, og þar kom hann upp dráttar- braut, bæði til skipasmíða og viðgerða á seglskipum. Nokkrar jarðir eignaðist Bjami í næsta nágrenni Hafrarfjarðar. Útibú hafði hann frá verslun sinni inni í Reykjavík og reisti yfír það hús við Hafaarstræti, síðar einnig útibú í Keflavík. Bjami samdi, þegar hann keypti Hafaar-. fjarðarverslun, við heildsala í Kaupmanna- höfa sem síðan var umboðsmaður hans þar. í nafai umboðsmannsins gat Bjami sent skip sín með saltfísk beint til Miðjarðar- hafslanda; slík verslun var heimil dönskum fyrirtækjum en ekki íslenskum. Annars vora viðskipti Bjama mikið við Danmörku, og þangað átti hann tíðar ferðir. Bjami var fljótur að læra hvað eina sem hann tók sér fyrir hendur. Brátt treysti hann sjálfum sér betur en umboðsmanninum til að annast hin margþættu viðskipti verslunar sinnar í Danmörku. Fór hann þá að hafa þar vetur- setu að jafaaði, en stýrði fyrirtækjum sínum á íslandi yfír sumarið. ísland var einfaldlega of afskekkt til að stýra þaðan umfangsmikl- um viðskiptum. Þó flutti Bjami ekki heim- ili sitt til Kaupmannahafaar fyrr en á efri áram, eftir að Rannveig var fallin frá og hann kvæntur öðra sinni danskri bamsmóð- ur sinni. í Kaupmannahöfa andaðist Bjami Sívertsen 1833. pakkhúsið sem var reist um 1865 og oftast kennt við J.P.T. Bryde, hús Bjama Bjarni Og Stríðið Á dögum Bjarna var umbrotamikið úti í heimi. Hann fékk borgarabréf í Vestmanna- eyjum árið sem stjómarbyltingin mikla hófst í Frakklandi, og árið sem hann missti það aftur hófust þrálátar styijaldir milli Frakk- lands og annarra Evrópuríkja. Nokkra síðar, árið 1807, drógust Danir inn í styijöldina sem bandamenn Napóieons Frakkakeisara, og vora Bretar höfuðandstæðingar þeirra. Bjami var þá á íslandi og vissi ekki ófriðar von fyrr en hann var á leið til Danmerkur um haustið og Englendingar hertóku skip hans í hafi; raunar hremmdu þeir mestallan skipaflota íslandskaupmanna. Bjami Sívertsen var nú í farbanni í Skot- landi, kaupskip hans tvö í hers höndum, og horfði óvænlega, bæði um fyrirtæki hans sjáifs og um öll viðskipti Isiendinga vio umheiminn. En Bjami var hér en sem fyrr fljótur að tileinka sér nýtt hlutverk. Hann fór að bjarga sér á ensku; hann komst í samband við áhrifamikinn íslandsvin, Jos- eph Banks; og bráðlega var Bjami Sívertsen orðinn óopinber samningamaður af íslands hálfa um viðskiptamál landsins. Þótt haldi væri fljótlega létt af hans eigin skipum, eyddi hann vori og sumri 1808 í samninga við yfírvöld um siglingar til íslands, en skortur og hallæri vofði yfír ef stríðið teppti samgöngur við landið. Veturinn eftir var Bjami enn í Bretlandi og fylgdi því þá eftir við yfírvöld að fá skilað til Islands peningum Jarðabókasjóðsins, eins konar landssjóðs íslands, sem enskur sjóvíkingur hafði rænt þá um sumarið. Heim komst Bjami loksins sumarið 1809 og varð þá vitni að valdatöku og stjóm- artíma Jörundar hundadagakonungs. Lauk því máli svo, að Englendingar bundu enda á stjóm Jörandar, en fluttu Trampe stift- amtmann, æðsta mann Dana á íslandi, til Englands. Bjami Sívertsen var þá samferða Trampe og hafði enn vetursetu í Bretlandi, því að honum var manna best treyst til að standa í samningum um viðskiptaþarfír landsins. Og fjórða veturinn dvaldi hann í Englandi svipaðra erinda 1811—12. Bjami Sívertsen hafði óvænt fengið það hlutverk að gerast diplómat, málsvari lands síns í flókinni stöðu gagnvart framandi her- veldi. Um flest var hann vanbúinn að tak- ast slíkt á hendur, en hann lærði það af reynslunni eins og annað og sparaði síðan hvorki fé né fyrirhöfa til að koma að liði í skiptunum við Breta. Fyrir það veitti kon- ungur honum riddarakross Dannebrogsorð- unnar, sem þá var sjaldgæft að íslendingar bæra. Landar hans unntu honum vel sæmd- arinnar og nefndu hann Bjarna riddara. Höfundur er sagnfræðingur. Bijóstmyndin í Hellisgerði LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. ÁGÚST 1988 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.