Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Blaðsíða 1
A:
m
ði
£5'
102
ISTAHATIÐ 1996 í
Reykjavík setur mik-
inn svip á menningar-
lífíð þessa daga. Tón-
Mkál ttóiiiiðkólsihs
tmi á clágskhá í Úág
kliikkáh 1(3 í káUgáh-
dalshöll,
Auk Rannveigar Fríðu
syngja Dmitri Hvorostovsky
bariton, Olga Romanko, sópr-
an, og Ikaia - Purdy, tenór,
Klauspeter Seibel mun halda
um tónsprotann og Sinfóníu-
hljómsveit Islands sjá um
undirleik.
Tónleikarnir eru búnir að
vera í undirbúningi í tæpt ár
og söngvarar frá ýmsum lönd-.
um hafa æft hverjir í sínu
landi. „Söngvararnir hafa 5-8
samæfingar að baki auk
heimaæfinga með snældu og
nótnabók,“ segir Jan Jensen
framkvæmdastjóri og stofn-
andi heimskórsins í samtali við
Morgunblaðið. Efnisskrá kórs-
ins kallast „Grand opera“ og
samanstendur af atriðum úr
mörgum helstu perlum óperu-
bókmenntanna eftir höfunda
eins og Wagner, Bizet, Verdi
og Rossini. „Almenningur ætti
að þekkja um helming dag-
skránnar og hinn helminginn
byrjar fólki að líka við um leið
og það heyrir hann. Þetta er
tónlist sem lætur vel í eyrum.“
Heimskórinn var stofnaður
árið 1985.Kórinn sem syngur í
dag í Laugardalshöll verður
skipaður unr 350 söngvurum,
250 erlendum og rúmlega
hundrað íslenskum. Hann
verður líklega stærsti einstaki
kór sem sungið hefur á Is-
landi. Kórfélagar eru nú um
4000 talsins allstaðar að úr
heiminum úr öllum stéttum, á
aldrinum frá 20 ára til 60. „í
svona kór eru allir jafnir.
Verkamaðurinn stendur við
hlið forstjórans og það eina
sem skiptir máli er söngur-
inn,“ sagði Jan Jensen.
n;