Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1996, Blaðsíða 12
1
Syfc
Wmm
ANTON HELGIJONSSON
Huldubókasafnið
í Hafnarfirði
m
í háskólasafninu fann ég ekki heldur Grænmeti
og ber allt árið; hin lokkandi fyrirheit Helgu Sig.
Pá var fullreynt. En þrjóskan bauð mér far
til æskustöðvanna í Hafnarfírði
svo ég skaust inn á landsbókasafn huldufólksins
sem erstaðsett í hamri við Flensborgarskólann.
Nú kemur að þankastriki — Hafnarfjörður
kaUast í daglegu tali Fjörðurinn
og fyi;rgreindur hamar er aldrei
nefndur annað en Hamarinn. AfHamrinum er útsýni
en þar fyrir neðan miklast þó lækur
sem heitir einfaldlega Lækurinn.
Nema hvað: Afgreiðslumærin
svaraði fyrirspurn minni á orðlausu máli
ogkvaðst ekki hafa bækur á íslensku.
Efms lét ég augu hvarfla um hillur og kili. Þarna!
Þetta er bókin sem ég hef reynt að fá í allan dag!
Og í nýlegri útgáfu! En afgreiðslumærin brosti:
Við notum ykkar stafróf, ykkar letur en okkar
mál er annað og fleira en þér kann að virðast á prenti.
Þetta er ekki verkið sem þú nefndir, heldur þýðing
á ljóðaflokki eftir sjálfan Gian Michele Milani! Hann
orti svo vel um heiminn, útskýrði frumeindakenningu
Demókrítosar oghin vélrænu lögmál hreyfinga.
Grænmeti og ber allt árið
þýdd á huldumál
sýnist þér vera Snoira-Edda á íslensku
en Snorra-Eddu á huldumáli
sérðu sem Vegahandbókina.
Hún bauð mér þær allar og minnti á síðasta skiiadag:
36. ágúst, sem er þó ekki 5. sept.
Heimkominn heyrí ég þig kalla:
Það stendur ekkert um rífsberjasultu!
Bíðum við! Hvernig myndu skáldin svara þér
sem ólst upp suður með sjó?
Þú hampar bók: Hér birtist ágætis
uppskríft að hugsun — og
ef til vill að lífi en ekki að sultu!
Ég svara: Nei, þessa fékk ég í Norræna húsinu.
Hún fjallar um dauðann. . .
Ég stari á bókina. Síðan á þig.
Við rýnum í sama letríð en framreiðum ólíkar krásir.
Sömu stafir, önnur merking, annað verk.
Huldukona úr Keflavík!
Hver tryðiþvíað óreyndu?
En hvað veit ég? Bók. Heimur. Sulta. Líf.
Öll þessi orð lærði ég í Hafnarfirði.
Þar stendur örugglega hamar.
Þar miklastjú lækur.
Loks hef égfyrir satt að í Firðinum sé himinn alltafblár!
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 1996