Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.1996, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.1996, Síða 8
SVEINN Björnsson (1925): Sjálfsmynd, 1983 GIMSTEINARNIR , INNÁMILLI IHAFNARBORG, menningar- og lista- stofnun Hafnarflarðar, stendur nú yfir sýning á íslenskum portrettmyndum. Er þetta í fyrsta sinn sem heildaryfir- Iit gefst yfir þetta svið íslenskrar myndlistar á þessari öld og eru verkin fengin að láni víða að — frá söfnum, stofnunum, fyrirtækjum og einstakl- ingum. Alls eru á sýningunni um áttatíu mynd- ir eftir á fimmta tug listamanna, þeirra á meðal Þórarin B. Þorláksson, Ásgrim Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval, Kristján Davíðsson, Ágúst Petersen, Eirík Smith, Helga Þorgils og Pál Guðmundsson frá Húsafelli. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur hefur haft umsjón með undirbúningi sýningarinnar en hann hefur á undanförnum árum verið að kanna hvort íslendingar eigi sér hefð í gerð portrettmynda. Auk þess ritar hann texta í viðamikla skrá sem gefin hefur verið út í til- efni sýningarinnar. En er hefðin til staðar? „Ég er ekki sann- færður um að við eigum okkur hefð í portrett- myndum — að minnsta kosti ekki í þeim skiln- ingi að við eigum listamenn sem hafa bergt af sama brunni. Þess í stað virðist hver lista- maður taka sinn pól í hæðina, sem er í sam- ræmi við það sem maður hefur alltaf haldið um íslenska listasögu,“ segir Aðalsteinn. í sýningarskránni veltir Aðalsteinn því fyrir sér hvort portrettmyndin sé best varðveitta leyndarmál íslenskrar myndlistar en á undan- förnum áratug hefur hann barið hátt í tvö þúsund myndir af þessu tagi augum. „Alveg burtséð frá gæðum þessara andlitsmynda — og það verður að segjast eins og er að bróður- partur þeirra er líflaus framleiðsla — er fjöldi þeirra, einn og sér, staðfesting bæði á félags- legri og menningarlegri þýðingu þeirra fyrir okkur Islendinga." Sjálfstæó vinnubrögó Á sýningunni í Hafnarborg er úrval þess besta sem Aðalsteinn hefur fundið — „gim- steinarnir inn á milli.“ Kveðst hann hafa valið myndirnar með tilliti til þess hvort þær bæru vott um sjálfstæð vinnubrögð listamannsins og/eða hvort hann hefði bersýnilega kafað í sálarlíf fyrirsætunnar. Þá voru nokkrir listamenn af yngri kynslóð- inni fengnir til að leggja hönd á plóginn með því að mála portrettmyndir sérstaklega fyrir sýninguna. Segir Aðalsteinn þá „tilraun" hafa tekist vel. Verkunum í Hafnarborg skiptir listfræðing- urinn í fernt: Opinberar myndir, s.s. af prestum og embættismönnum, gerðar að tilhlutan stofn- unar, ættingja'eða annars venslafólks; myndir af konum; myndir af listafólki og sjálfsmynd- ir. Segir Aðalsteinn merkilegustu verkin yfir- leitt tilheyra tveimur síðarnefndu flokkunum enda hafi listmálarar jafnan fijálsari hendur þegar þeir máli sjálfa sig eða aðra listamenn. Þótt portrettmyndir hafi verið snar þáttur í sköpun íslenskra listamanna á þessari öld hefur þessi grein myndlistar, að sögn Aðal- steins, alltaf átt undir högg að sækja — litið hafí verið niður á hana. Og þótt sýningin í Hafnarborg sé öðrum þræði liður í því að hefja portrettið til vegs og virðingar óttast listfræð- ingurinn að svo sé enn. Portrettið hafi einfald- lega ekki enn „hlotið hljómgrunn hér á landi." JÓHANNES Kjarval (1885-1972): Yndislegt er úti vor, 1926. Portrettid alltaf átt undir högg aö sœkja. ASGRIMUR Jónsson (1876-1958): Sjálfsmynd, 1940. GUNNLAUGUR Blöndal(1893-1962); Leikkonan, 1933. SÝNING Á ÍSLENSKUM PORTR 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 22. JÚNÍ 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.