Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Page 10
VONIR sem stóðu til þess að Landgræðslan gæti hafið stíflugerð við Hagavatn og bætt með því gróðurskilyrði og stöðvað landeyðinu, hafa í bili orðið að engu með nýjum og afar umdeilanleg- um úrskurði umhverfisráð- herra. Sá úrskurður var þess efnis að Land- græðslunni hafi ekki tekizt að færa fram nægilega sannfærandi rök fyrir því að um- hverfí Hagavatns stafaði hætta af áfoki frá víðáttumiklu flæmi með jökulleir, sem áður var vatnsbotn. Úrskurðurinn kom fáeinum dögum eftir málþing um jarðvegsrof á ís- landi, þar sem fram kom að það væri eins og í eyðimerkurlöndum heimsins og á ís- landskorti yfír mestu eyðingarsvæðin mátti sjá, að allt umhverfís Langjökul er rof- svæði. Umhverfísráðherrann fagnaði því að ráðstefnan skyldi haldin en lét það síðan verða sitt fyrsta verk að úrskurða gegn átaki, sem ætlað er að koma í veg fyrir meira rof en orðið er í næsta nágrenni Hagavatns. Hér heggur sá er hlífa skyldi og leikur sá grunur á, að ráðherrann hafí þurft að friða öfgamenn og fylgismenn svo- nefndrar „svartrar umhverfísverndar". Stíflan sem þama var fyrirhuguð, átti að loka fyrir útfallið um Nýjafoss og verða til þess að vatnið stækkaði nálega um tvo þriðju hluta; yrði 13,5 ferkm í stað 5. Vonir um batnandi tíð fyrir gróðurfar á Haukadals- heiði, innst í Lambahrauni og raunar á öllu svæðinu vestur á Rótasand og að Hlöðufelli og Þórólfsfelli, vora reistar á því að gamli vatnsbotninn færi á ný undir vatn. Hann er að flatarmáli 8,5 ferkm. í næsta nágrenni, á Haukadalsheiði, eru nýsáningar á víðáttumiklu rofsvæði, þar sem heita Moldir. Þar er orðið grænt yfir að líta eftir tvö hagstæð sumur án norðanáhlaupa, en áður hafði sáðgresið drepizt hvað eftir annað þegar sandur og jökulleir innan frá Hagavatnu fuku þar yfir. Þessar nýsáningar eru á afar viðkvæmu stigi og gætu allar horfið í hörðu norðanveðri. Jarðvegsrof á Haukadalsheiði, Sandfelli, Lambahrauni og langt fram í Úthlíðarhraun, svo og á öllu flæminu norðan Eldborga, er til komið fyrir áfok. Eftir að búið var að hefta að mestu uppblástur á Haukadals- heiði, voru uppsprettur áfoksins einkum á tveim sandsvæðum með jökulleir sem rýkur eins og hveiti ef þomar og hvessir, annars- vegar við Sandvatn og hinsvegar við Haga- vatn. Nú hafa leirumar á Syðri-Flóa við Sandvatn verið gerðar óskaðlegar eftir að stíflað var þar og vatnið stækkað verulega. Með samskonar aðgerð við Hagavatn var í fyrsta lagi hægt að skrúfa fyrir uppsprettu rofaflanna innst á svæðinu, en hækkuð grannvatnsstaða hefði þar að auki orðið eins- konar bónus. í Innhrauninu, þar sem vera- legt rof er núna, og á Haukadalsheiðinni getur hærri grannvatnsstaða bjargað nýsán- ingum og eldri gróðri sem annars er alltaf í hættu í þurrkatíð. Áform Landgræðslunnar var að byggja 15m háa jarðvegsstíflu í skarðið þar sem útfall Farsins er um Nýjafoss. Ennþá er þar mjór móbergsþröskuldur sem fossinn fellur HAGAVATN séö úr lofti - útsýni yfir austurhluta vatnsins, austur meft Jarlhettum og Langjöl HAGAVAl VATN A FARALD! EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON Hggavatn er nú aóeins þriójipartur þess sem þaó var fyrir 1939 og fyrr á öldinni v< er uppspretta áfoks á stór svæð í næsta nágrenni og þá uppsprettu er au EYSTRI Hagafellsjökullinn ýmist hopar efta skríður fram eftir árferði og hefur á þessari öld skriftið yfir allan þann hluta Hagavatns sem hér sést. Til hægri á myndinn Útfallið um Nýjafoss er f kverkinni lengst til hægri. I baksýn sést Stóra Jarlhetta. I 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. MARZ1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.