Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1997, Side 16
>
I
UNDANFÖRNUM tíu til tólf
Aárum hafa svokallaðir list-
fræðingar tekið yfir alla sýn-
ingarsali og listasöfn á íslandi
og með því orðið leiðandi afl
í myndlist," fullyrðir Einar
Hákonarson myndlistarmað-
ur sem þessa dagana er að
reisa menningarmiðstöð, Listaskálann í
Hveragerði, sem verða mun einkarekin -
óháð duttlungum „ráðastéttarinnar" í ís-
lenskri myndlist. „Ég þekki ekki dæmi þess
að listfræðingar hafi búið til list, það er hlut-
verk listamannanna," heldur Einar áfram, „en
þegar áhrif þeirra eru orðin svona mikil er
hætta á ferðum, þar sem yngri kynslóð lista-
manna er ósjálfrátt farin að laga sig að stefn-
um sem listfræðingamir álita að séu í tísku.
Afleiðingin er ótvíræð, aðsókn að listsýning-
um hefur minnkað hér á landi, áhugi dvínað
og listaverkamarkaðurinn, sem var einn sá
besti í heimi, er hruninn.“
Út frá þessum vangaveltum fór Einar að
huga að því að setja á laggimar einkarekna
menningarmiðstöð enda er hann sannfærður
um að mikið fé liggi í menningu þjóðarinn-
ar, „þótt menn hafi ekki ennþá komið auga
á hvernig eiga að nýta það“. Ekki mun Lista-
skálinn eiga sér fýrirmynd en Einar segir
að víða um lönd reki listasöfn sig sjálf -
án styrkja, jafnvel þótt þau séu í eigu sveit-
arfélaga. „Niðurstaða mín var því sú að
þetta hlyti að vera möguleiki."
Einar kveðst í öndverðu hafa gert sér
grein fyrir því að erfiðara yrði að reisa hús
af þessu tagi í Reykjavík en úti á landi.
Reyndar leitaði hann hófanna hjá borginni
um lóð en „var vísað í útkanta nýrra hverfa,
sem eru gjörsamlega vonlaus með tilliti til
viðskipta". „Um slíkt verður maður að hugsa,
eigi svona listhús að geta borið sig.“
„Feróamannafyrirtaeki"
í þessu samhengi sér Einar ástæðu til að
benda á að hugmyndin hafi aldrei verið sú
að Listaskálinn rúmaði eingöngu hreina list-
starfsemi. Þess vegna verði þar, auk sýning-
arsalar, stór veitingastaður, ráðstefnusalur
og aðstaða fyrir listiðnaðarframleiðslu.
„Listaskálinn verður fyrst og fremst „ferða-
mannafyrirtæki“, það er hann mun byggja
afkomu sína að mestu leyti á ferðamönnum.“
í ljósi þessa þarf ekki að koma á óvart
að Hveragerði, „landsþekktur staður fyrir
mikla ferðamannaumferð“, hafí orðið fyrir
valinu. „Bragi í Eden hefur verið óþreytandi
við að byggja Hveragerði upp sem ferða-
mannabæ," segir Einar sem hefur það eftir
Magnúsi Oddssyni ferðamálastjóra að hálf
milljón ferðamanna sæki bæinn heim árlega.
„Mest er umferðin auðvitað yfír sumartím-
ann en ég hef tekið eftir því, meðan ég hef
verið hér við framkvæmdir, að ferðamönnum
fer jafnframt fjölgandi að vetrinum til. Þá
er Hveragerði gamalgróinn listamannabær,
þannig að ég er ekki í minnsta vafa um að
ég hef valið rétta staðinn."
Einar kveðst hafa mætt miklum velvilja
hjá bæjaryfírvöldum í Hveragerði þegar hann
varpaði hugmyndinni fram þar á bæ í árs-
byijun 1996 og fljótlega var honum útveguð
lóð á horni Austurmarkar og Reykjamarkar,
í nágrenni við Eden. „Frá þeim tíma hef ég
átt mjög gott samstarf við bæjarstjórn,
bæði fyrrverandi og núverandi meirihluta,
enda held ég að öll bæjarfélög á landinu
hljóti að vera hlynnt hugmyndum af þessu
tagi ef þau fá einstaklinga til að hrinda þeim
í framkvæmd."
EINKAVÆÐING
LISTARINNAR
í Hverqgerói er Einar Hákonarson myndlistarmaóur
aó byggja menningarmióstöó, Listaskálann í Hvera-
gerói, sem væntanlega veróur vígóur í byrjun júní.
QRRI PALL ORMARSSON heimsótti Einar í skálann,
sem hann mun reka sjálfur ásamtfjölskyldu sinni,
og komst meóal annars aó því aó hvatinn aó bygg-
ingunni er „slæmt ástand sýningarmála
-----------------------------7-----------------
myndlistarmanna á lslandi“.
Morgunblaóið/Kristinn
EINAR Hákonarson myndlistarmaður mun annast rekstur Listaskálans sjálfur.
Listaskálinn í Hveragerði er hannaður af
Jóni Róberti Karlssyni í félagi við Einar sjálf-
an en byggingin er að stærstum hluta fjár-
mögnuð af Lánasjóði Vestur-Norðurlanda.
Skammtímafjármögnun sér Búnaðarbanki
íslands um en að auki hefur Einar Hákonar-
son lagt allar sínar eigur í verkefnið. Hann
vill ekki nefna tölur í þessu samhengi en
fullyrðir að skálinn muni ekki kosta „nema
sem svarar rúmum helmingi af árlegum
rekstrarkostnaði Kjarvalsstaða“. „Þetta er
einkaframtakið í sinni skýrustu mynd - allra
leiða hefur verið leitað til að gera þetta á
sem hagkvæmastan hátt.“
Starfsemi Listaskálans verður, svo sem
fram hefur komið, fjölþætt en Einar segir
að rík áhersla verði lögð á myndlistarsýning-
ar í sýningarsal hússins sem verði einn sá
besti á landinu. „Það hefur lengi verið út-
breiddur misskilningur hér á landi að sýning-
arsalir þurfí að veijast dagsbirtunni líkt og
söfn. Hönnuðir hafa því verið tregir til að
hleypa henni inn nema með einhveijum sér-
kennilegum hætti. Sannleikurinn er hins
vegar sá að það gilda allt önnur lögmál um
sýningarsali, þar sem reglulega er skipt um
verk, og söfn, þar sem sömu hlutimir geta
verið uppi við ár eftir ár. Sýningarsalurinn
í Listaskálanum hefur þvi verið hannaður
með það fyrir augum að hann geti hleypt
inn íslenskri birtu, sem er sú fegursta í
heimi.“
Vill kynna listiðnaó
Að sögn Einars verður listamönnum boðið
að sýna í salnum og mun þriggja ára sýning-
arplan liggja fyrir í grófum dráttum. Fyrir-
hugað er að skipta um sýningu á mánaðar-
fresti. „Ég verð ekki eingöngu með hreinar
listsýningar, heldur mun ég vonandi geta
gert mikið að því að kynna listiðnað, innlend-
an sem erlendan. Þá hef ég mikinn áhuga
á því að hafa gott samstarf við Grænlend-
inga og Færeyinga og tel að áhuginn sé
gagnkvæmur. Að sjálfsögðu mun ég hins
vegar opna húsið á yfírlitssýningu á Einari
Hákonarsyni - málara í þijátíu ár,“ segir
listamaðurinn og skellir upp úr.
Einar segir að ráðstefnusalurinn muni
verða tæknivæddur en mikil vöntun sé á
slíkum sölum utan Reykjavíkur. Að líkindum
verði hann þó ekki markaðssettur fyrsta
árið. Listmunaframleiðslan í húsinu verður
undir handleiðslu Einars sem annast mun
alla hönnun. Sjálfur verður hann síðan með
vinnuaðstöðu í húsinu - að minnsta kosti
til að byija með. „Það fer eftir gangi fyrir-
tækisins hvort það rými verður síðar lagt
undir veitingastaðinn eða listiðnaðinn."
Ennfremur kveðst Einar ekki sjá neitt því
til fyrirstöðu að ýmsar uppákomur verði í
skálanum. Hefur hann þá tónlist sérstaklega
í huga og bindur vonir við að sjóðir og fyrir-
tæki, sem á annað borð styrki menningu,
muni hafa áhuga á að styðja slíkar uppákom-
ur. „Gamli Listamannaskálinn gæti orðið
fyrirmynd að vissu leyti en hann var þekkt-
ur fyrir alls konar uppákomur. Þar voru til
að mynda haldnar tombólur og dansleikir,
sem ég hef þó ekki í hyggju að leggja fyrir
mig.“
Einar Hákonarson leggur mikið undir -
hyggst standa og falla með Listaskálanum
í Hveragerði. Framkvæmdir hafa gengið vel
og nú þegar hillir undir vígsluna er hann
fullur bjartsýni. „Ég er sannfærður um að
það er grundvöllur fyrir menningarmiðstöð
af þessu tagi í Hveragerði og kæmi reyndar
ekki á óvart að hún ætti eftir að verða fyrir-
mynd fleiri slíkra miðstöðva víða um land.“
LISTASKÁLINN i Hveragerði verður að líkindum opnaður í júníbyrjun.
FRAMKVÆMDIR standa nú sem hæst. Hér er horft inn eftir sýningarsal hússins.
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. MARZ 1997