Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1998, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1998, Qupperneq 14
UOSORMURINN VIÐ HOFNINA Kiasma merkir víxlun og í nýbyggingu finnska nú- tímalistasafnsins sem vígt verður í miðborg Helsinki í vor eru hinar fjölmörgu greinar sjónlista samtímans settar fram - til stefnumóta hver við aðra og við almenning. HULDA STEFÁNSDÓTTIR segir fró gömlum draumi finnskra menning- arfrömuða sem loks er að verða að veruleika. Byggingarframkvæmdir við safnahúsið hófust árið 1996 og allar götur síðan hefur verið deilt um réttmæti þess að reisa svo framúrstefnulega byggingu á torgi nærri styttu hershöfð- ingjans, stjómmálamannsins og þjóðhetjunnar Carls Gustafs Mannerheims. Arkitekt safnsins er Banda- ríkjamaðurinn Steven Holl. Safnið er á fímm hæðum, samtals 12.400 fermetrar og þar af eru 3.600 fermetrar lagðir undir sýn- ingarsali. Heildarkostnaður við byggingu safnsins eru rúmir 3 milljarðar ísl. króna og tilkoma þessa nýja safns hlýtur að teljast til meiriháttar viðburðar í finnsku menningar- lífi. Stoftiun finnska nútímalistasafnsins hafði verið í burðarliðnum svo árum og áratugum skipti þegar safnið komst á laggirnar árið 1990 og þá sem stofnun innan vébanda Listasafns Finnlands. Snemma var ljóst að Ateneum bygging Listasafnsins væri of lítil til að hýsa svo umfangsmikla viðbót við safnið. Ríkið og Helsingjarborg gerðu með sér samkomulag um að borgin fengi að reisa nýja safnbyggingu á ríkislóð í mið- bænum, rétt við höfnina og gegnt aðalstöðv- um póstsins þar sem torgið fræga með styttu Mannerheims stendur. Sibeliusar Tónlistarakademían er þar skammt frá og frekari framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hafnarsvæði miðborgarinnar í tengslum við menningarkjamann sem þar er að mynd- ast. , , Ljósmynd/Marko Mákinen NUTÍMALISTASAFNIÐ Kiasma við höfnina í miðborg Helsinki. Deilur vegna staðsetningarinnar má ekki síst rekja tii þess að skammt frá stendur stytta af hershöfðingjanum og stjórnmálamanninum Mannerheimer. Ljósmynd/Petri Virtanen GIN ormsins. I öðrum enda byggingarinnar er stór gluggi. Safnið utanvert er klætt áli sem endurkastar sólarljósinu. Efnisnotkun og lögun byggingarinnar minnar á nálægð hafnarinnar. THE Night eftir Polly Apfelbaum frá 1997. Sýning hennar verður ein af vígslusýningum safnsins í vor. Ljósmynd/Joseph Gallus Rittenberg FJÖLNOTASALUR Kiasma verður vígður með samvinnuverkefni myndbandalistamannsins Gary Hill og kóreógrafíkersins Meg Stuart sem nefnist Splayed Mind Out. Ljósmynd/Leo Castelli, New York/c ADAGP NEONLJÓSAVERKIÐ Humain Nature/Life Death/Knows Doesn’t Doesn’t Know eftir Bruce Nauman frá 1983. Yfirlitssýning á verkum hans verður opnuð f Kiasma í október. 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 7. FEBRÚAR 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.