Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1998, Side 16
Morgunblaöið/Golli
KJARTAN Árnason. Skáldsaga hans Draumur þinn rætist tvisvar er að mestu sögð út frá sjónarhorni barns og ein fyrsta skáldsagan
sem gerist nær eingöngu í Kópavogi.
MILUÓN SÓLIR RÍSA
Ég segi það satt:
Ekki frekaren
úrið inniheldur
Tímann
innihalda þessar línur
Sannleikann.
Arið 1986, kvaddi Kjartan
Arnason sér hljóðs með
ljóðabókinni, Dagbók
Lasarusar (Brot úr glötuðu
handriti). í bókinni tjáir
hinn dáni og upprisni
Lasarus sig um ýmis mál-
efni, (svosem lífið náttúr-
una jörðina pálmana kálakrana tæknina dauð-
ann ofl ofl). Sumsé um graf-alvarleg málefni.
Nú kann sumum að þykja það tilgerðarlegt og
býsna djarft tiltæki hjá ungum höfundi, að
yrkja í orðastað svo æruverðugrar persónu
sem Lasarus óneitanlega er, en eftir lestur
kvæðanna sannfærast væntanlega hinir sömu
fljótt um, að höfundur þeirra héma megin
móðunnar miklu, tekur sjálfan sig ekki hátíð-
lega. Þvert á móti nálgast hann viðfangsefni
sitt með hæfllegu samblandi af lotningu og
léttúð, og kryddar það gáskafullri kímni og
kankvísi. Gamansamur tónn setur svip á efn-
istökin, nokkuð gráglettinn á köflum. Otal vís-
Ljóðabókin Dagbók Lasarusar, fyrsta bók Kjartans
Arnasonao kom út 1986. Síðan hefur hann sent fró sér
smósagnasafnið Frostmark (1987), skóldsöguna
Draumur þinn rætist tvisvar (1989) og nokkur smóprent
með örleikritum og Ijóðum. Hann hefur einnig skrifað
töluvert um bókmenntir og þýtt. ÞORVARÐUl
HJALMARSSON seqir verk Kjartans einkennast c
stöku samspili sórsaukg op kímni.
anir úr kunnuglegum minnum Biblíunnar
mynda umgjörð utan um efnið, enda ekki við
öðru að búast af sjálfum Lasarusi. En þó
kátínan ólmist, leynir sér ekki, að manneskjan
að baki kvæðanna er hvorki skoðanalaus né
sinnulaus um líf og list. Gagnrýni á staur-
blinda efnishyggju nútímans er víða að finna
og stundum leynist sársauki að baki orðanna,
eins og glöggt má greina í ljóðinu, Skilningur:
Parsem snjóhvitan skjöldinn
ber við himin
undirbrennandisól
verður birtan sem
milljón sólir skíni;
soldið einsog þessi
jökull
ertþú
bjartur en kaldur
Á milli nær birtan að bræða sundur kuld-
ann, óhræsið lætur undan síga fyrir lampan-
um stóra á himinhvolfinu. Hvergi blikar þó
tár á hvarmi eins og við Dettifoss forðum
daga og skáldmennið unga á síðari hluta tutt-
ugustu aldarinnar, er greinilega ekld að
hugsa um raflýsingu sveitanna. Þó er eins og
látleysi ljóðsins, feli í sér skemmtilega
skírskotun í kvæði þjóðskáldanna.
í dag er fossinn
í klakaböndum
so hann missi ekki
niðrum sig vatnið.
En blessaður
spéhræddi auminginn
veit ekki
hvað hann á í vændum:
Á morgun kemur sólin
og bræðir af honum böndin;
þá mun hann standa
berstrípaður
fyrir hvers manns augliti
meðvatniðáhælunum.
Verður mikið híað?
Lífsgleðin brýst fram með margvíslegum
hætti í Dagbók Lasarusar þótt það dyljist
ekki að á bakvið ljóðin býr djúp og mikil
reynsla sem höfundur tekst á við af æðru-
leysi. I ljóðum ungra skálda sem eru að senda
frá sér sína fyrstu bók er myrkrið oft ráðandi
myndlíking. Menn ráfa um, fálmandi í myrkri,
síðu af síðu. En það er ekkert myrkur í Dag-
bók Lasarusar, hvorki í sálinni né í myndlík-
ingunum, þvert á móti blasir sáttfýsin við.
Sáttfysi við það sem mæta kann fólki á veg-
ferð þess um þetta undarlega hjarn sem nú-
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. FEBRÚAR 1998