Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1998, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1998, Síða 10
ALVAR AALTO STJÖRNUARKITEKT HÖNNUÐUR OG HEIMSBORGARI GÍSLI SIGURÐSSON TÓK SAMAN Aldarafmælis Alvars Aaltos er minnst á þessu ári. Hann var í hópi virtustu og frægustu arkitekta heimsins og tókst ungum að aldri að verða dáður og frægur í Evrópu og Ameríku, bæði fyrir húsgagnahönnun sína og arkitektúr. Á efri árum hans óx hinsvegar andstaða gegn honum heima í Finnlandi, sem vinstri fylkingin, þá undir Maó- áhrifum, stóð fyrir. Hér er byggt á ævisögum Aaltos og einkum fjallað um ýmsar hliðar á manninum sjálfum. ann 3. febrúar síðastliðinn voru liðin 100 ár frá fæðingu finnska arkitektsins Alvars Aaltos og þessa afmælis hefur víða verið minnst, enda er hann ótvírætt þekktasti og virtasti arkitekt sem Norðurlönd hafa alið. Hér i Les- bók birtist um hann afmælisgrein 14. febrúar eftir Tom Söderman, sendiherra Finna á íslandi. Par var stiklað á stóru og ferill Aaltos rakinn og verður það ekki endurtekið hér. Aivar Aalto er ásamt með þeim Frank Lloyd Writht, le Corbusier og Mies van der Rohe meðal þeirra arkitekta á fyrri hluta 20. aldar- innar sem hvað mesta frægð hafa hlotið. Aalto hefur hinsvegar þá sérstöðu að vera einn úr hópnum sonur smáþjóðar, sá eini af norður- hjaranum. Þó það komi þessu máli ekki beint við, þá hefur verið rifjað upp í þessu samhengi að meðal smáþjóða hafa Finnar náð langt í að eignast einstaklinga sem skara framúr á heimsvísu. Menn nefna tónskáldið Sibelius og nokkra hljómsveitarstjóra sem nú fer mikið orð af; úr íþróttunum þekkja menn hlauparann Paavo Nurmi og arkitektarinir Eero Saarinen og Alvar Aalto eru að sjálfsögðu í þessum flokki. Fjölhæfur lisfamaður Meðal stjörnuarkitektanna hefur Alvar Aalto þá sérstöðu að hafa teiknað hús á Is- landi; nefnilega Norræna Húsið, sem ber meistaranum fagurt vitni. Önnur sérstaða Aaltos í þessum hópi frægðarmanna er fjöl- hæfni hans. Hann teiknaði ekki aðeins hús að utan og innan, heldur í smáatriðum einnig; inn- réttingar og hurðarhúna þar á meðal. Hann gerðist brautryðjandi í húsgagnahönnun og notaði við á nýstárlegan hátt. Húsgögn Aaltos eru orðin klassík og enn framleidd í Finnlandi og seld um víða veröld. Einfaldur glæsileiki er einkenni á þessum hlutum. Þriðja hliðin á Aalto er gleristin, þar sem formskyn og frumleiki hans njóta sín vel, en auk þess fékkst Aalto við myndlist; var góður teiknari og málaði bæði með vatnslit og olíu. Engin frumleg tök er þó þar að sjá, enda mun myndlistin fremur hafa verið honum dægradvöl en tilefni til heilabrota. Mun merki- legri og frumlegri eru lágmyndir hans og skúlptúrar úr formbeygðum viði, sem hann virðist hafa unnið á sama tíma og hann gerði tilraunir með þetta efni í húsgögnum. Nýstárleg húsgagnahönnun Ástæða er til þess að geta sérstaklega um húsgagnahönnun Aaltos vegna þess að þar var hann brautryðjandi og þessi húsgögn áttu sinn þátt í að flýta fyrir frægð hans sem arkitekts NYTT LÍF 1952 með nýrri eiginkonu, Elissu, sem var arkitekt eins og fyrri kona Aaltos. utan Finnlands. Þegar hann hóf að hanna sín fyrstu húsgögn um 1925, var hann bara síns tíma og fylgdi því sem efst var á baugi. En uppúr 1930 fór hann að skapa sér eigin stfl. Þau hjón Alvar og Aino, sem einnig var arki- tekt, settust fyrst að í Turku en fluttu 1933 til Helsinki. Þau unnu náið saman og menn vita í rauninni ekki hversu stóran hlut Aino á í verk- um sem síðar hafa verið eignuð Aivari. Aino Aalto féll frá fyrir aldur fram 1949. Það sem nýjast var og nútímalegast í hús- gagnahönnun um og fyrir 1930 voru stálhús- gögn sem þóttu ríma fullkomlega við fúnkisstfl í byggingarlist. Það sem sýnir frumlega hugs- un Aaltos er að einmitt þá veðjar hann á tré og gerist brautryðjandi í gerð afar framúrstefnu- legra húsgagna úr beygðum krossviði og lím- viði. Það voru einkum stólamir sem athygli ' ALVAR Aalto ásamt fyrri konu sinni, Aino, 1947. Eftir stríðið starfaði Aalto mikið í Bandaríkjunum húsgagnahönnuður og arkitekt. SELMA, portret eftir Aaito, 1918. Enda þótt Aalto væri góður teiknari varð myndlist hans ekki frumleg í sama mæli og hönnunin. Lág- myndir úr viði voru beztu myndlistarverk hans. KIRKJAN í Lathi í Finnlandi að innanverðu. Aa kirkjuna 1975 og hún var eitt af síðustu verkum hi meistarastykki. Hann var samt gagnrýndur fyrir væri ekki nógu alþýðleg. vöktu, fjaðrandi úr formbeygðum viði sem um leið gegndi hlutverki stólfótanna. Afstaða Aaltos og annara hönnuða á Norður- löndum var yfirleitt sú að viður væri hlýlegra efni og stæði manninum nær. Nýsköpun Aaltos í þessari grein má rekja til þess að á kreppuár- unum eftir 1930 snarminnkuðu verkefni arki- tekta þegar byggingarstarfsemi dróst saman í Finnlandi. Auk þess að vinna með efniviðinn lagði Aalto áherzlu á að laga húsgögn sín að fjöldaframleiðslu og gera þarmeð almenningi kleift að eigast þau. Hann vildi ekki hanna hluti sem aðeins fáir, auðugir gætu eignast. Það virðist þó allt hafa verið gleymt löngu síð- ar þegar finnskir vinstrisinnar og kommúnist- ar réðust gegn honum eins og síðar verður komið að. Alvar Aalto var af alþýðufólki kominn og uppalinn í vatnahéraði í Mið-Finnlandi. Það var ævintýri út af fyrir sig hvemig finnskur sveitadrengur náði því á tiltölulega ungum aldri að komast í samband og vinfengi við nokkra helztu áhrifa- og frægðarmenn í arki- tektúr úti í Evrópu. Aðeins 31 árs að aldri var hann tekinn gildur í samfélagi nútímaarkitekta á stórri ráðstefnu í Frankfurt 1929 og jafn- framt hafði hann stofnað til persónulegra kynna og vináttu við forystumenn eins og le Corbusier og Gropius. Á stóru fúnkissýning- unni í Stokkhólmi 1930 var ljóst að hann var í hópi hinna stóru og væri nú á dögum talinn til þotuliðsins, því að á næstu árum voru hann og Aino kona hans á sífelldum þeytingi milli landa og ekki árangurslaust; til dæmis var farið að framleiða Aalto-stóla í Þýzkalandi og víðar 1932. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 30. MAÍ1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.