Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1999, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1999, Side 10
MELTORFAN ER OPIN DAGBOKARSLITUR AF HEIÐUM OG HÁLENDI EFTIR MATTHÍAS JOHANNESSEN HELGI Hallgrímsson, nátt- úrufræðingur hér á Egils- stöðum, sendi mér dálitla lesningu í sumar og nú hef ég verið að glugga í ritling sem heitir Fljótsdals grund. Það er hnýsileg lesning áður en við förum uppá hálendið. Þar eru margvíslegar upplýsingar um landið hér í kring og sögu þess, t.a.m. þetta um hið umdeilda svæði, Eyjabakka: „Eyjar eða Þóriseyjar er flæðislétta mikil suðaustan við Snæfell, í um 650 m hæð yfir sjó, þar sem Jökulsá hefur íyllt upp gamlan vatnsbotn og myndað fjölmarga hólma eða eyjar, sem margar eru algrónar og vaxnar stargresi og sumar alsettar tjörnum. Beggja vegna eru svo fagurlega gróin nes, Eyjabakkar að aust- anverðu en Þjófagilsflói og Snæfellsnes að vestanverðu. „Hvergi annars staðar ganga mikil graslendi alveg upp að Vatnajökli, nema hér,“ segir Þorv. Thoroddsen. Nú er öll þessi slétta kölluð Eyjabakka- svæði eða bara Eyjabakkar. Þar er mikið fuglaland, heiðagæsir svo þúsundum skiptir seinni part sumars. Eyjabakkasvæðið er á margan hátt sam- bærilegt við Þjórsárver við Hofsjökul og eru bæði talin með merkustu hálendisvinjum ís- lands. Sá er þó munurinn að Þjórsárver hafa verið friðlýst um aldur og ævi en Eyjabakk- ar dæmdir til að kaffærast í jökullóni Fljóts- dalsvirkjunar.“ Síðan segir að Snæfell sé hæsta fjall utan meginjökla, 1833 m yfir sjó; dæmigert eld- fjall eða eldkeila sem minnir á nafna sinn á Snæfellsnesi, en ekki er vitað til að það hafi gosið á sögulegum tíma. Samt má víst finna hraunklepra á austurhomi tindsins sem eru svo að segja óveðraðir. Þar segir enn að Snæfell sé heilagt fjall í huga flestra sem til þekkja og hafi Fljótsdælir varað Svein Páls- son 1794 við að ganga á fjallið, töldu að það mundi hefna sín með illviðri, enda sannaðist það á Sveini, þegar hann freistaðist að ganga á tindinn. Loks segir að bflvegur hafi verið lagður upp á heiðina 1980 og síðan lengdur inn að Laugarfelli, en þangað er ferðinni heitið - og þó lengra. Það er lítið um náttúrulýsingar í íslendinga sögum og setningin fógur er hlíðin einsdæmi í þessum bókmenntum. En fegurðarskyn fom- manna lýsir sér með áhrifamiklum hætti í mörgum ömefnum. Sá sem gaf Fagradal nafn á sínum tíma hefur haft svipaða tilfinningu íyrir umhverfinu og við sem nú lifum. Hann hefur áreiðanlega farið um þetta svæði á sól- björtum sumardegi og kunnað að meta þá veizlu augans sem við blasti. Á vetrin er heið- in oft illfær. 3. september, föstwdagur, Egilsstöðum Heiðríkt veður og heldur spakt, bjart og hlýtt; enginn ógangur í veðrinu. Friðsæll himinn og skip heiðríkjunnar liggja fyrir akkeri yfir húsi skáldsins á Skriðuklaustri. Hrafnkell Jónsson, sem er einn af helztu talsmönnum náttúmvemdarsinna hér eystra, útvegaði okkur tvo leiðsögumenn í ferðina, þá Þórhall Þorsteinsson, hjá RARIK, sem er varamaður í náttúmvernd- arráði og mikill öræfagarpur og eindreginn andstæðingur virkjanaframkvæmda við Eyjabakka og Kárahnjúka, og Aðalstein Að- alsteinsson frá Vaðbrekku, sem sér um hreindýraveiðar á hálendinu; hvor um sig eins og alfræðibók um öræfin og sögu þessa einstæða og undurfagra héraðs. Ferðin var í alla staði hin ánægjulegasta og raunar ógleymanleg. Allt sem við sáum var nýtt af nálinni og okkur áður ókunnugt. Aðalsteinn er mikill virkjanamaður og því var mjög lær- dómsríkt fyrir mig að heyra samtal þeirra félaga og öndverðar skoðanir. Morgunblaðið þarf að gæta sín því mikið er í húfi, en ég tel eftir ferðina að það hafi verið rétt stefna hjá okkur að óska eftir því að Eyjabakkavirkjun færi í umhverfísmat, þótt báðir leiðsögu- menn okkar séu þeirrar skoðunar að það taki a.m.k. tvö ár. Reynt yrði að drepa málinu á dreif og seinka því eins og hægt væri. Auk þess sem þeir sögðu okkur frá kennileitum, örnefnum og umhverfi þama á öræfaslóðum fengum við margar skemmtilegar og fróðleg- ar sögur af lífí fólksins á þessum slóðum og hafði ég gaman af því. Aðalsteinn gat tengt umhverfið Hrafnkötlu hvar sem við vorum á ferð, hvort sem við ókum framhjá Hrafnkels- stöðum í Fljótsdal eða Aðalbóli eða Eyvind- arfjalli þar sem Hrafnkell drap Eyvind, bróður Sáms. Var þessi fróðleikur bæði end- urnærandi reynsla og ný upplifun. En sagan sýnir að allir vilja vera efstir á strái í sinni sveit. Fyrst komum við að Skriðuklaustri þar sem nýr forstöðumaður tók á móti okkur, ásamt Sigurði Blöndal, skógræktarstjóra, en þangað höfðum við aldrei komið áður. Nýi forstöðumaðurinn er kornungur, Skúli Bjöm Gunnarsson, og hyggst hann breyta þessu gamla höfuðbóli Gunnars skálds Gunnars- sonar í fræðastofnun og skáldamiðstöð. Skúli Björn hefur gefið út smásagnasafn, Lífs- klukkan tifar, sem hlaut ágætar viðtökur. Hann er viðfelldinn ungur maður og ástæða til að ætla að setrið rísi úr öskustónni á hans tíð. Um það á að ríkja friður eins og Hrafns- eyri. Sigurður Blöndal var náskyldur Gunn- ari skáldi í móðurætt og sagði okkur ýmis- legt af því þegar hann fór að Klaustri með móður sinni í tveggja sólarhringa síðsumars- heimsóknir til frændfólksins. Mig minnir það séu um 30 herbergi í þessu höfðingjasetri og sýndi Sigurður okkur skrifstofu skáldsins, svefnherbergi þeirra hjóna, gestaherbergi og annað sem heyrir þessu þýzka hugviti til. Það voru ekki tök á að hlaða bæinn úr steini eins og arkitektinn ætlaðist til, en þá brá Guðmundur Þorbjömsson, völundur frá Seyðisfirði, faðir Þorbjöms Guðmundssonar, fyrrum ritstjórnarfulltrúa Morgunblaðsins, á það ráð að steypa steinana utan á veggina og tókst það með ágætum. Steinarnir voru fyrst þvegnir úr saltsýru svo að enginn gróður gæti festst við þá og prýða nú alla útveggi, óveðraðir. Vigfús í Geitagerði sá um gmnn- gröft, um hann skrifaði ég í Ferðarispum. Hann var skemmtilegur karl og sérstæður. Skriðuklaustur er fomt stórbýli. Þar var klaustur frá 1493 til siðaskipta, en kirkja til 1792. Þar sat Hans sýslumaður Wium, fræg- ur af Sunnevu-máli. Þar er sagt að hann liggi, en þar mun einnig vera leiði Jóns hraks sem Stephan G. Stephansson orti um. Gunn- ar Gunnarsson settist að á Skriðuklaustri 1939 og reisti þetta stórhýsi, sem þýzkur arkitekt teiknaði, Höger að nafni, en gaf það síðan ríkinu ásamt jörðinni og var þar rekin tilraunastöð sauðfjárræktar og jarðræktar, en nú hefur hún verið lögð niður. Á Skriðuklaustri er lista- og fræðimannnsíbúð á vegum Gunnarsstofnunar, en formaður hennar er Helgi Gíslason á Helgafelli, ættað- ur frá Skógargerði. Hann talaði við mig og bauð okkur að koma við. Það var fyrir orð Hrafnkels Jónssonar. Það var kominn tími til að ég kæmi að Skriðuklaustri og sæi þetta ótrúlega höfðingjasetur, en ég kom oft á heimfli þeirra Gunnars og Franziscu í Reykjavík, skrifaði um Gunnar og varði hann fyrir kommúnistum á sínum tíma. Milli okkar var þannig hlýleg vinátta, enda met ég hann mikils og skáldskap hans. Gunnar yngri var einnig á Klaustri með foreldrum sínum, góðlegur maður og listhagur. Ég þekkti allar hliðar á Gunnari skáldi, sumar hvassar eins og útsynningur, aðrar hlýjar, manneskjulegar og viðfelldnar. Með Jó- hannesi, afa mínum, og afa á Knerri ríkti mikil vinátta og studdi þessi afi Gunnars Jóhannes í þingkosningum í Múlasýslu á sínum tíma. Eg hafði einnig gaman af að sjá Arnheiðar- staði handan Lagarins þegar við ókum vestur með Leginum sunnanverðum, en þar var móðir mín í sveit, þegar hún var lítil telpa á Seyðis- firði. Þar bjó hún í herbergi með tveimur systr- um sem báðar smituðust af berklum, en sjálf slapp hún við þennan mesta ógnvald þeirra tíma. Ógleymanlegt var einnig að sjá Hengifoss, einn af hæstu fossum landsins, 118 metrar; gilið einstaklega fagurt og fjölbreytilegt. Við komum ekki að Valþjófsstað, þar sem Gunnar var fædd- ur, en horfðum þangað heim. Valþjófsstaðar- hurðin er hvort eð er ekki þar á staðnum, hún er varðveitt í Þjóðminjasafninu, en eftirlíking á Valþjófsstað. Þaðan voru þeir bræður Þorvarð- ur Þórarinsson, sem Barði Guðmundsson segir að hafi skrifað Njálu, og Oddur Þórarinsson, bróðir hans, sem Sturla Þórðarson lýsir í Is- lendinga sögu sinni, en sú lýsing er að hluta tfl fyrirmynd að Gunnari á Hlíðarenda, enda var Oddur talinn manna vígfimastur á Sturlunga- öld, veginn í Geldingaholti 1255. Þorvarður Þór- arinsson drap aftur á móti Þorgils skarða á Hrafnagili, sællar minningar. Af því hlaut hann lítinn sóma. Sigurður Blöndal lýsti heimili þeirra Franz- iscu eins og ég hafði upplifað það og Gunnari sem hlýlegum manni oftast, en heldur hvassyrt- um, ef því var að skipta. Eitt sinn kom Jóhann bflstjóri hjá K.H. akandi heim á hlað á Klaustri og fór mikinn. Hann ók á smiðju sem þar stóð og beyglaði mikið. Gunnar skáld stóð á hlaðinu og sá þessar aðfarir, brást hinn versti við og skammaði Jóhann, en Jói lét sér hvergi bregða og svaraði: Þetta er nú ekki mikið, þú hefðir átt að sjá þegar ég keyrði á Súðina! Þá var Gunnari öllum lokið og fór að skelli- i hlæja. Sigurður sagði að oftast hafi verið borðað I niðri í matsalnum, en þegar gesti bar að garði var maturinn borinn upp í stofu. Gunnar borð- 1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. SEPTEMBER 1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.