Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.1999, Page 16
AÐ ER ekki ólíklegt að flestir
þeir sem þekkja til japanska
listamannsins On Kawara og
ættu að lýsa honum myndu
segja hann sérvitran með ein-
dæmum. A listamannsferli, sem
spannar næstum því fjóra ára-
tugi, hefur hann aldrei veitt við-
töl, hann mætir aldrei á opnanir sýninga
sinna né annarra, hann hengir verk sín ekki
upp sjálfur og aldrei hefur hann leyft opin-
bera myndbirtingu af sér og neitar alfarið að
láta mynda sig. Ferilskrá hans, upplýsing-
araar um helstu afrek hans, sem flestir lista-
menn halda vel utanum og vilja að sem flestir
þekki, er heldur ekki merkileg. On gefur ein-
ungis upplýsingar um hve marga daga hann
hefur lifað og til að skýra þessa sérvisku hef-
ur hann einfaldlega sagt: „ég er ekki til“, og
brosað síðan stríðnislega.
Ofan á allt saman eru sjálfsagt margir sam-
mála um að í raun hafi listamaðurinn í öll
þessi ár verið að gera sama málverkið aftur
og aftur. Hann er því nokkurskonar huldu-
maður í myndlistarheiminum en er samt á
sama tíma ein af stórstjömum alþjóðlegs
myndlistarheims. Sýningarferillinn er glæst-
ur og áhrif hans á samtimamenn óumdeild.
Einstaklega yfirgrips-
mikið lífsstarf
Sérviskan er þó ekki það sem On Kawara
er þekktastur fyrir heldur verkin hans, en
eftir hann liggur óhemju mikið magn verka
og lífsstarfið er með eindæmum yfirgripsmik-
ið. Hugsunin á bakvið verkin er einnig mjög
skýr og hefur verið það frá fyrstu tíð. Líf Ons
er samofið verkum hans á mjög sérstakan
hátt án þess að áhorfendur kynnist nokkum
tíma manninum sjálfum og hans persónu, þ.e.
. hverjar skoðanir hans era á málefnum líðandi
stundar, lífinu sjálfu eða myndlistinni á hverj-
um tíma. Pað eina sem vitað er er að honum
líkar ekki þátttaka í myndlistarhringekjunni
og öllu því sem henni getur fylgt.
On Kawara hefur komið einu sinni til Is-
lands og sýndi þá verk sín í sýningarsalnum
Annarri hæð sem Pétur Arason og Ingólfur
Amarson ráku um nokkurra ára skeið. Pétur
segir að þrátt fyrir alla dulúðina í kringum
listamanninn sé hann glaðlyndur og kátur og
ekki ólíkur dæmigerðum Japana að flestu
leyti, þó sérviskan sé óumdeild.
Þau verk sem On sýnir hér á landi nú era
* sú tegund verka sem hann er þekktastur fyrir
og fullyrða má að allir þekld sem einhvem
áhuga hafa á myndlist þessarar aldar. Þetta
era svo kölluð dagsetningarmálverk „eða
„Date Paintings". Málverkin hefur On gert
sleitulaust frá því í janúar árið 1966, og era
þau nú orðin um 2000 talsins. Til gamans má
geta þess að On vill helst ekki láta verkin frá
sér, þó eftirsótt séu, og aðeins era um 200
verk í eigu safna og safnara. Öll hin verkin á
On sjálfur og heyrst hefur að hann hafi
ákveðnar fyrirætlanir um afdrif þeirra, að sér
gengnum.
Gerir 30-241 verk á ári
Málverkin era eins og áður sagði öll í aðal-
atriðum mjög lík og við gerð þeima fylgir On
alltaf nákvæmlega sama ferlinu. A dökkgráan
, flöt málar hann dagsetningu með hvítum lit.
Dagsetningin er gerð á ritmáli þess lands
sem verkið er gert í, með þeim ritreglum sem
þar tíðkast við stafsetningu, skammstafanir
ofl. Stafimir era aldrei teiknaðir eftir skapa-
lóni, þó þeir séu alltaf nær fullkomnir í gerð
sinni, og listamaðurinn fylgir þeirri reglu,
sem hann hefur sjálfur sett sér, að klára verk-
ið á innan við 24 tímum, að öðram kosti er því
hent. Engin regla er á því hve mörg verk
hann gerir á ári en það er mjög breytilegt.
Hefur tala gerðra verka hingað til rokkað frá
30 verkum á ári til 241 verks.
Stærðir málverkanna era alls 8. Minnstu
verkin era 20,3 sm x 25,4 sm að flatarmáli.
En þau stærstu eru 155,8 sm x 227,3 sm.
Stöku sinnum breytir hann grannlit mynd-
anna, og til era rauðar myndir og bláar.
, MikiðhefurveriðrættogritaðiunverkOn
Kawaras og þá sérstaklega dagsetningar-
verkin. Skiljanlega er þar tíminn og skynjun
hans, tilveran og tilvistin það sem mest er velt
vöngum yfir auk þess sem rýmið er einnig
mikilvægt í umræðunni um verkin, enda tími
og rými samhangandi fyrirbæri í eðlisfræði-
Iegum skilningi. Rýmið í kringum On þegar
hann gerði verkin, þ.e. hvar hann var og hvað
var að gerast í veröldinni á viðkomandi degi,
skiptir þar ekki litlu máli og þannig geta
menn tengt verk hans hinum fjölbreyttustu
hlutum. Þó aldrei sé það sýnt með dagsmál-
verkunum, þá samanstendur verkið af fleiri
þáttum en eingöngu því sem málað er. Utan
t um hvert verk smíðar On sérstakan kassa og í
botninn á kassanum leggur hann úrklippu úr
dagblaði frá þeim stað sem hann er staddur
þegar hann gerir verkið. Þannig er í öðru
verkanna sem hann vann hér á Islandi fyrir
sýninguna á Annarri hæð, úrklippa af forsíðu
menningarblaðs Morgunblaðsins sem þá var.
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá sýningu On Kawara á "daypaint- ings" í barnakennsludeiid Myndlistarskóla Reykjavíkur.
„ÉG ER
EKKITIL"
Sýning á verkum hins þ ekkta japanska listamanns
On Kawara hefur verið sett upp í stofu 4-6 ára barna
í Myndlistarskólanum í Reykjavík í JL-húsinu við
Hringbraut. ÞÓRODDUR BJARNASON segir hér
m.a. fi 'á sérstæðum ferli On, dagsetningarmálverkum
hans . og manninum sjáll Fum sem veitir aldrei viðtöl,
leyfir aldrei myndatökur af sér né mætir
á eigin opnanir eða annarra.
Úrklippurnar gefa
verkinu óneitanlega
aukið gildi. Þannig
verður verkið minnn-
isvarði um ákveðinn
tíma, þó það sjálft sé
alltaf raunverulegur
hlutur í sjálfu sér. í
ritgerðinni Huglægt
tímaferðalag segir
Karel Schampers
þetta um verkin: ,Á
sinn hversdagslega og
almenna hátt segja
þessi dagsettu mál-
verk okkur sitt af
hverju um tímann
sem við upplifðum/
lifðum, en láta ekkert
uppi um viðhorf On
Kawara til tímans.“ I
greininni Listin og
sjálfið eftir Fríðu
Björk Ingvarsdóttur,
sem lesa má í sýning-
arskrá sýningarinnar,
segir eftirfarandi:
„Með því að mála
dagsetningar víðs
g|
Frá sýningu On Kawara í sýningarsalnum Annarri hæð við Laugaveg.
vegar um heiminn gefur Kawara okkur í skyn
hvernig tíminn er óskilgreinanlegur, hann
veitir okkur innsýn inn í eðli hans sem okkur
er ekki nokkur leið að skilja nema að litlu
leyti.“ Síðar í sömu grein segir: „í stað þess
að reyna að „persónugera" myndmál sitt,
höfða til tilfinninga og hrifnæmis þess sem
horfir, málar hann þá í mynd sem er algeng-
asti og hlutlausasti samnefnari þess dags sem
er að líða hverju sinni.“
Ég er enn á lífi
En On hefur gert ýmis önnur verk sam-
hliða dagsetningarmálverkunum. Arið 1964-
1965 gerði hann til dæmis mikið af fínlegum
teikningum sem gefnar voru út í bókinni Pa-
rís - New York 1964. Þessi verk hefur lista-
maðurinn aldrei sýnt á myndlistarsýningu.
Einnig gerði hann til dæmis árið 1965, verk
áþekk dagsetningarmálverkunum þar sem í
texta stóð staðsetning í gráðum, „Location“.
Það sem On er einnig mjög þekktur fyrir
era símskeyti og kort sem hann sendir kunn-
ingjum og vinum frá þeim stöðum sem hann
dvelur á hverju sinni. A símskeytunum er ein-
faldur texti: „I am still alive, On Kawara“ eða:
Ég er enn á lífi, On Kawara. Þetta eru mögn-
uð verk og í raun jafn falleg og þau vekja
manni mikinn óhug. Maður kemst ekki hjá
því að hugsa um líf og dauða, og tilvist manns-
ins sem skeytið sendi. Hvað ef ég hætti að fá
þessi símskeyti?
I raun er engin regla á símskeytunum að
vitað sé, til dæmis um það hve oft hann sendir
fólki skeytin og í hve langan tíma, né afhverju
hann hættir skyndilega að senda þau þegar
vitað er að hann er enn í tölu lifenda.
Af öðram verkum af svipuðum toga má
nefna, „Ég vaknaði" þar sem hann gefur upp-
lýsingar um hvar hann vaknaði þann dag sem
póstkort með upplýsingunum er póstlagt.
Slík póstkort sendi On á hverjum einasta degi
á árinu frá 1968-1979, en ekki er vitað ná-
kvæmlega af hveiju hann hætti að senda
kortin þá. Einnig skal nefna verkin „Ég hitti“
þar sem On skráir niður nöfn allra manna
sem hann hittir yfir hvern dag, og verkið „Ég
fór“ þar sem á götukorti era merktar með
rauðu þær leiðir sem listamaðurinn fór á
hverjum degi.
Öll þessi gagnasöfnun og skrásetning hef-
ur gefið af sér ansi viðamikinn gagnagrann af
hráköldum upplýsingum um staðreyndir hins
daglega lífs. í greininni Huglægt tímaferða-
lag segir eftirfarandi um þessa gagnasöfnun
hans: „Einfold og einlæg aðferðin sem On
Kawara notar til að upphefja og einangra óm-
erkilega atburði úr bláköldum hversdagsleik-
anum er gegnsýrð af meðvitund um fárán-
leika og tilgangsleysi skrásetningar af þessu
tagi.“
I þessari blaðagrein má ekki sleppa því að
minnast á annað risavaxið verk On Kawaras
sem gefur okkur innsýn í raunveruleika tím-
ans á áþreifanlegan hátt. Þetta era verkin
tvö, Ein milljón liðinna ára og Ein milljón
framtíðarára. Þessi verk era í bókarformi en í
bókunum hafa einfaldlega verið vélrituð mil-
ljón ártöl aftur í tímann annarsvegar og fram
í tímann hinsvegar! Annað verkið geymir ár-
töl frá 998.031 fyrir Krist til ársins 1969 og
hitt verkið geymir ártöl frá árinu 1981 til ár-
sins 1.001.980.
Tær vitund í JL-húsinu
Sýningin í JL-húsinu er sú sama og var sett
upp í litlum forskóla fyrir 4-6 ára böm í
Astralíu í tengslum við Tvíæringinn í Sydney
árið 1997 og ber heitið Pure Consciousness
eða Tær vitund í íslenskri þýðingu. On
Kawara sjálfur átti framkvæði að sýningunni
hér á landi og hafði samband við fyrmefndan
Pétur Arasaon til að hjálpa sér. Segir Pétur
að On hafi jafnvel í hyggju að setja verkið upp
einu sinni enn, og þá í Afríku. Hann segist
ekki vita nákvæmlega hvað listamanninum
gangi til með þessu vali sínu á sýningarstöð-
um, nema það að setja sýninguna upp á 3
gjörólíkum stöðum í heiminum. Verkin era
alls 7 talsins, máluð fyrstu 7 dagana í janúar
árið 1997. Þau era máluð í tveimur stærðum,
20,32 sm x 25,4 sm og 25,4 sm x 33,02 sm“.
Listamaðurinn hefur ánægju af börnum og
honum finnst gaman að setja verk sín upp á
óhefðbundnm stað eins og kennslustofu.
Verkin henta að hans mati vel þar sem böm
era. Böm á þessum aldri era smám saman að
átta sig á tímahugtakinu og era til dæmis að
læra hve margir dagar eru í einni viku. Verk-
in era þó ekki ætluð til kennslu heldur eiga
þau einungis að vera hluti af eðlilegu um-
hverfi bamanna. Um tímann segir sovéski
rithöfundurinn Leo Tolstoy: „Ef tíminn líður
er nauðsynlegt að eitthvað standi í stað, og
þannig er það vitundin sjálf sem ætíð stendur
í stað.“
Sýningin í JL-húsinu hefur þegar verið
hengd upp í stofu 4-6 ára barna og hangir
uppi fram í miðjan nóvember næstkomandi.
Sýningin er opin almenningi laugardagana
23. október, 30. október og 6. nóvember á
milli klukkan 14 og 16.
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 16. OKTÓBER 1999