Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1999, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1999, Síða 3
LESBÖK MORGENBLAÐSINS - MENNING LISTIR 43. TÖLUBLAÐ - 74.ÁRGANGUR EFNI Elsa Sigfúss var íslenzk söngkona sem bæði var þekkt og vinsæl fyrr á öldinni, en er kannski farin að fyrnast. Hún fór í tónleikaferð um Norð- urland sumarið 1933 ásamt með foreldrum og systkinum og hún hélt dagbók í ferðinni. Bjarki Sveinbjörnsson hefur unnið uppúr dagbókinni, en bæði hún og myndirnar úr ferðinni bregða ljósi á þá miklu breytingu sem orðið hefur á 66 árum. Landnámsjörðin Bessastaðir í Fljótsdal er umfjölunarefni Helga Hall- grímssonar náttúrufræðings á Egilsstöðum og fyrsta grein af þrem sem ijalla um höf- uðból í Fljótsdal. Hin eru Valþjófsstaður og Skriðuklaustur, en allar þessar jarðir liggja saman og mynda kjarna sveitarinnar. Jean-Babtiste Simeon Chardin var töframaður nálgunar og þagnar í hinu hreina, tæra málverki. Bragi Ásgeirsson skrifar um þennan töfra- mann hét ensk myndlistarkona sem lézt nýlega og hafði oft farið í Islandsferðir þar sem hún fann myndefni, allra helst uppi á víðáttum hálendisins. Hafdís Bennet skrifar um þessa lítt þekktu en góðu listakonu. FORSÍÐUMYNDIN er af húsi í göngugötunni á Akureyri sem æviniega vekur athygli gesta. Þetta er Harnarstræti 96, sem frá upphafi hefur heitið París, en Sigvaldi Þorsteinsson kaupmaður byggði þaö 1913. Þar hefur alltaf verið verzlun og nú er þar á jarðhæð veitingahusið Bláa kannan og blómabúð. Breyt- ingarnar að innanverðu eru svo til fyrirmyndar má telja. Að þeim hafa staðið hjónin Sigmundur Rafn Einarsson og Guðbjörg inga Jósefsdóttir sem eiga húsið og búa í því. Hafa þau fengið viðurkenningu Menningar- málanefndar Akureyrar fyrir endurgerð hússins. Ljósmynd:GS ÓLAFURJÓNSSON DRYKKJUSPIL - UPPHAF - Hýrgleður hug minn hásumartíð. Skæran lofí skapara sinn öll skepnan blíð. Skín yfíir oss hans miskunnin. Hýrgleður hug minn. Gleður mig enn sá góði bjór, guði sé þökk og lof; þó mín sé drykkjan megn og stór ogmjögviðof, mun þó ei reiðast drottinn vór. - Hýr gleður h ug minn. Mjögleikur nú við manninn ört hið mæta drottins lán. En þó með því, að illt sé gjört og aukin smán, af því magnast syndin svört. - Hýr gleður hug minn. Vond öldrykkjan veldur oft, að vináttan forgár öll, sundurþykkja er senn á loft og sárleg föll. Sumum ferþað heldur gróft. - Hýr gleður hug minn. En þegar dánumenn drekka vel, sem drjúgum oft hefíir skeð, þá vex af ölinu vináttuþel og virðing með. Veizlu góða eg svoddan tel. - Hýr gleður hug minn. Ólafur Jónsson, 15Ó0-1627, ólst upp hjá Eggert Hannessyni hiröstjóra. Prestur á Söndum í Dýrafirði frá 1596 til æviloka. KEISARANS MENN RABB Asíðastliðnu sumi’i bauðst mér þátttaka í dagsferð innanlands ásamtvin- konu minni. Þegar við komum aftur til Reykja- víkur lauk ferðinni við Rauðarárstíg og menn héldu heimleiðis. Vin- kona mín og ég áttum samleið yfir Hlemm, þar sem við hugðumst taka bíl heim. Við urðum þó sammála um að fá okkur bjór í ferðalokin og gengum inn á fyi-stu krá sem varð á vegi okkar. Þar inni sat hópur fólks við borð og ræddist við og mátti heyra á röddunum að Bakkus væri þar ekki fátíður félagi. Við hikuðum í bili en ung kona kom á móti okkur og sagði: „Komið þið bara inn. Þið verðið ekki drepin!" Vinkona mín gekk til stúlkunnar við bar- inn og spurði hana hvort ekki væri í lagi að setjast og fá sér hressingu og kvað hún það vera. Hún skyldi hafa auga með okkur. Við settumst við borð framarlega og brátt kom unga konan til okkai’, settist og ræddi við okkur um stund. Hún sagðist vera lista- kona en sér gengi illa að selja verkin sín. Eftir stundarkorn fór hún en ungur maður, snyrtilega til fara, settist og ávarpaði okkur kurteislega. Hann spurði hverju það sætti að hjón á okkar aldri kæmu inn á þennan stað. Við komum af fjöllum og spurðum hvað væri athugavert við það. Hann spurði hvort við vissum ekki hvaða staður þetta væri og þegar við kváðumst ekki hafa hugmynd um það sagði hann okkur að þetta væri Keisa- rinn, hvort við vissum ekki hvernig staður það væri. Við vorum ennþá jafn fáfróð og þá sagði hann okkur að þetta væri samkomu- staður undh’heimafólks, versta kráin ekki aðeins á íslandi heldur í allri Evrópu. Við ræddum svo áfi-am við hann enda var hann ódrukkinn. Nú kom annar ungur maður til sögunnar og spurði okkur sömu spurningar og voru okkar svör auðvitað á sömu leið. Okkui’ kom þó ekki til hugar að rjúka á dyr í skelfingu enda voru þessir ungu menn kurt- eisir vel, ódrukknir og viðræðugóðir. Við spjölluðum saman meðan við lukum við bjórinn, stóðum svo upp og bjuggumst tO að fara. Síðari maðurinn bað okkur að lofa sér einu að skilnaði: að koma aldrei á þennan stað aftur. Við lofuðum því og þá spurði hann vinkonu mína hvort hann mætti kyssa hana að skilnaði. Hún kyssti hann á kinnina og við kvöddumst vinsamlega. Við tókum bíl heim og sögðum bílstjóran- um frá heimsókn okkar á krána. Hann brosti og sagðist þekkja marga af þeim sem þangað leituðu. Þetta væri ekki slæmt fólk en það hefði lent utangarðs í þjóðfélaginu, þetta væri athvarf þess og lögreglan vildi hafa þennan stað opinn fyrir það, því stund- um þyrfti hún að tala við einhvern úr hópn- um og þá væri gott að geta gengið að honum á vísum stað. Stundum þyrfti eitthvað af fólkinu að taka bfl og æki hann því umyrða- laust. Fyrir kæmi að það ætti ekki fyrir far- gjaldinu og þá lofaði það að borga skuldina næst þegar það eignaðist peninga. Ög oftast stæði það við orð sín. Því segi ég þessa sögu hér að ég hef heyrt að loka eigi Keisaranum. Nágrannar hafi kvartað undan því að gestir hans eigi til að kasta af sér vatni upp við húsveggi þegar þeir séu þarna á ráfi í annarlegu ástandi og hafi jafnvel hagað sér ósiðlega á húströpp- um. Það minnir mig á að Pétur heitinn Eggerz sendiráðsfulltrúi sagði frá því í minningabók sinni að verulegur þáttm’ í starfi sendir- áðsfólks hefði verið að fara í hreinsun með rúmdýnur og rúmföt sem næturgestir send- iráðsins höfðu gert bæði þykkt og þunnt í, þegar þeir skjögruðu þar inn fullir og skriðu upp í rúm til að sofa. Ekki voi’u það Keisa- rans menn. Eg efast ekki um að umgengni þessa ut- angarðsfólks hafi stundum ekld verið sem best og hreinlegust. En einhvers staðar verða vondir að vera, sagði eigandi kráar- innar í sjónvarpsviðtali. Og hann taldi ven'i drullusokka finnast utan Keisarans en innan hans. Það tel ég líka. Hvað um menn, ef menn skyldi kalla, sem auðgast af því að flytja inn og selja eiturlyf, raka saman pen- ingum með því að leiða ungt fólk út í örlög sem stundum eru ven’i en dauðinn? Eru þeir betri þjóðfélagsþegnar en Keisarans menn? Eða mannskepnur sem misnota börn, sín eða annarra, og valda þeim óbæt- anlegu tjóni? Ég segi nei og aftur nei. Þeir eru hundraðfalt verri drullusokkar en Keisarans menn og þó njóta margir þeirra virðingar í samfélaginu og viðurlög sem á þá eru lögð, ef þeim er ekki sleppt með áminn- ingu, eru svo lítil að maður kafroðnar við að heyra urn þau. Þó eru þeir stórglæpamenn sem suma hverja væri réttast að hneppa í nauðungarvinnu ævilangt. En við höfum frásögur af mönnum fyrr á tíð sem mig grunai’ að hafi sumir hverjir átt sitthvað sameiginlegt með Keisarans mönn- um. Þeir áttu heima í Gyðingalandi hinu forna og fylgdu leiðtoga sem ekki veigi’aði sér við að umgangast skækjur og toll- heimtumenn, enda var hann ofsóttur af fína fólkinu og að lokum píndm’ og drepinn. Ut- angarðsmenn þem-a tíma löðuðust að hon- um, því að hann var mildur og kærleiksríkur og fljótur tfl að fyrirgefa og ég get ímyndað mér að þeh’ menn hefðu verið velkomnari á Keisaranum en fínum veitingastöðum í fé- lagsskap auðmanna. Man nú enginn eftir sögunni um ríka manninn og Lasarus? Eða sögunni um hórseku konuna? Eða: Á því munu allir þekkja að þér ei-uð mínir læri- sveinar, ef þér berið elsku hver til annars? En hvers vegna er ég að fjölyrða um þetta nú? Af því að mér rennur til rifja ef mann- eskjum sem þurfa á hjálp að halda er fleygt út í kuldann, nú í vetrarbyrjun. Er ekki hægt að vísa þeim á einhvern stað þai’ sem þeir geta hist og - já, jafnvel di’ukkið saman, úr því að Keisaranum verður lokað? Við get- um ekki gerbreytt þessu fólki með óskinni einni og ekki heldur skipað því að lifa eins og allur almenningur. En við megum ekki níð- ast á þeim smæstu af þeim smáu. Ef við vflj- um teljast kristið fólk getum við ekki verið þekkt fyrir annað en fara eftir orðum Meist- ara okkar: Það aflt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér. TORFI ÓLAFSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 6. NÓVEMBER 1999 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.