Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2000, Blaðsíða 11
Aðkoman að Vitanum er um þröngt stræti.
Aðkoman að framtíðarheimilunum við Glendyke Street.
i
Djörf og framsækin hönnun einkennirframtíðarheimilin.
'ol • r —1 1 7
liu 1 0^5
Rúllustigar flytja fótk milli hæða.
semi miðstöðvarinnar sem er tileinkuð þeirri
sannfæringu að byggingarlist og hönnun séu
nauðsynlegir þættir nútímamenningar. Reynt
er að vekja áhuga sem flestra og hvetja þá til
þátttöku.
Aðkoman að byggingunni er um þröngt stræti
en skyndilega blasir nútímalegur stál- og gler-
inngangurinn við gestum. Þegai' inn í forsalinn
er komið liggur leiðin að nillustiga sem tengir
saman hæðirnar sex sem hýsir hina fjölbreyti-
legu starfsemi miðstöðvarinnar. Fjórir sýning-
arsalir eru fyrir tímabundnar sýningar og einn
salur er sérstaklega tileinkaður arkitektinum
Charles Rennie Mackintosh. Hann starfaði í
Glasgow um aldamótin 1900 og er af mörgum
talinn vera einn merkasti ai-kitekt Breta fyrr og
síðar. Hér geta gestir fræðst um verk hans og er
m.a. boðið upp á námskeið, fyrirlestra, sýningar,
svo og skoðunarferðir til Mackintosh bygginga í
Glasgow og nágrenni.
Sérstaka athygli vekur að heil hæð í húsinu er
ætluð börnum og unglingum. Þar er að fínna
leikumhverfi þar sem börn geta fræðst, skoðað
og rannsakað byggingar og borgarumhverfi.
Sýningarsalur tileinkaður arkitektinum Charles Rennie Mackintosh.
Reynir þar á ímyndunarafl þeirra og sköpunar-
gleði. Þar eru jafnframt vinnustofur með alls
kyns tæknibúnaði svo og upplýsingamiðstöð,
þar sem er að finna bækur, tímarit, vídeóspólur
og geisladiska með efni um arkitektúr, hönnun,
listir, umhverfismál og nútímalifnaðarhætti.
Sérstakt gallerí er fyi-ir framsækna hönnuði þar
sem sýndar eru frumgerðir af áhugaverðum vör-
um til fjöldaframleiðslu. Hér er áherslan á hug-
myndavinnu og vöruþróun. Á efstu hæðinni er
hönnunarverslun svo og veitingastaður þar sem
gestum er boðið upp á veitingar og er allt hrá-
efnið lífrænt ræktað. Þaðan er stutt upp í út-
sýnisturn þar sem gestir geta virt fyrir sér borg-
ina.
Vitinn er spennandi verkefni er vísar veginn
inn í nýja öld þar sem hönnun og hugviti er ætlað
að skipa stóran sess og á eflaust eftir að hafa
áhrif langt út fyrir landsteinanna.
Framtíðarheimilin blása nýju
lífi í miðborg Glasgow
Homes for the future eða framtíðarheimilin er
nýstárlegt íbúðahverfi sem reist hefur verið í
miðborg Glasgow. I fyrsta áfanga eru um 100
íbúðir af ýmsum stærðum og gerðum sem allar
hafa verið hannaðar af hæfustu arkitektum,
bæði innlendum og erlendum. Markmiðið er að
blása nýju lífi í miðborgina með framsækinni
hönnun. Hér eru farnar nýjar leiðir í hönnun
íbúðahverfa með tilliti til breyttra fjölskyldu-
stærða, umhverfis- og orkumála svo og meðsam-
starfi einkaframtaks, arkitekta og hins opin-
bera. Meiri hluti íbúðanna er seldur á hinum
almenna markaði en hluti þeirra er leiguíbúðir í
eigu borgarinnar. í undirbúningi er að byggja
um 300 íbúðir í viðbót sem verða tilbúnar til sölu
eða útleigu á næstu árum.
Framtíðarheimilin mynda þyrpingu um mið-
lægt svæði. Þegar gengið er um svæðið og bygg-
ingarnar skoðaðar vekur strax athygli hin mikla
fjölbreytni bæði í íbúðarstærðum og útliti bygg-
inganna. Hér eru íbúðir fyrir einstaklinga og
fjölskyldur af ólíkun stærðum og gerðum svo og
fyrir fólk með sérþarfir. Hverfið er blanda af
sérbýlis- og sambýlishúsum en hver íbúð hefur
verönd eða stórar svalir. Innra skipulag íbúð-
anna er áhugavert. Þær eru bjartar, sumai- á
fleiri en einni hæð, með stórum útsýnisgluggum.
Lögð er áhersla á að nýta rýmið vel og öllu er
haganlega fyrir komið. Hönnun og efnismeðferð
er nútímaleg og samræmd þó að um mismun- **
andi ai'kitekta og byggingaraðila hafi verið að
ræða. Hér gæti skapast skemmtilegt samfélag
enda hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa og
íbúðirnar seldust allar áður en húsin voru full-
byggð.
Frá stóriðju að
þekkingariðnaði
Umræðan um atvinnumál og stóriðju á íslandi
á sér hliðstæðu í Skotlandi þar sem tekist er á
um mismunandi leiðir. Glasgow hefur langa
reynslu af stóriðju og framleiðsluiðnaði, allt frá
dögum iðnbyltingarinnar í Bretlandi. Glas-
gowbúai- hafa með þessu átaki markað sér mjög
ákveðna stefnu við aldarlok og hafa valið að
hverfa frá einhæfni stóriðjunnar að fjölbreyti-
leika þekkingariðnaðarins þar sem hönnun og
hugvit eru í öndvegi.
f
Höfundarnir eru arkitektar.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. MARS 2000 1 1 '