Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2000, Blaðsíða 10
Horft yfir svæði framtíöarheimilanna. Ljósmyndir/David churchill
GLASGOW EFLD MEÐ
ARKITEKTÚR OG HÖNNUN
EFTIR DENNIS JÓHANNESSON OG HJÖRDÍSI SIGURGÍSLADÓTTUR
Glasgow hefur tekið stakkaskiptum síðan hún var
Menningarborg Evrópu 1990 og síðan útnefnd borg
arkitektúrs og hönnunar 1999, Árangurinn hefur ekki
l( átið á sér standa. Menningarstarfsemi n blómstrar,
fjöldi ferðamanna hefur margfaldast og borgin hefur
nú mikið aðdráttarafl fyrir fjárfesta.
Glasgow var tilnefnd arki-
tektúr- og hönnunarborg
Bretlands árið 1999. Af því
tilefni var haldin kraftmik-
il heilsárshátíð þar sem
boðið var upp á um 300
viðburði svo sem alls kyns
sýningar, fyrirlestra,
skoðunarferðir og átaksverkefni til að bæta um-
hverfíð. Miklum fjármunum var varið til þessa
verkefnis og vekur það nokkra athygli að hluti
þeirra kom úr þjóðarlottói Breta. Reynt var að
höfða til sem flestra og virkja borgarbúa til þátt-
töku í þessari miklu arkitektúr- og hönnunar-
hátíð. Grunnhugsunin í þessu átaki er sú að um-
hverfismál, arkitektúr og hönnun komi öllum við
og að samvinna við vel upplýsta og áhugasama
borgarbúa sé forsenda góðs árangurs. Lang-
tímamarkmiðið er að skapa umhverfi þar sem
skilningur á arkitektúr og gildi góðrar hönnunar
verði einkennandi fyrir íbúana, viðskiptalífið og
menninguna.
Þessi þróun hófst reyndar fyrir allmörgum ár-
um og fékk byr undir báða vængi þegar Glasgow
var tilnefnd Menningarborg Evrópu árið 1990.
Tekið var til í borginni, gamlar glæsibyggingar
voru hreinsaðar, torg og stræti endurhönnuð og
vandaðar nýbyggingar reistar. Stefnt er að því
að skipa þessari kraftmiklu og litríku borg veg-
legan sess meðal annarra menningarborga
Evrópu. Árangurinn hefur ekki látið á sér
standa. Menningarstarfsemin blómstrar, fjöldi
ferðamanna hefur margfaldast og borgin hefur
nú mikið aðdráttarafl fyrir fjárfesta.
Höfundar þessarar blaðagreinar flugu til
Glasgow með Flugleiðum síðastliðið haust til að
kynna sér þetta merka átak. Þegar til Glasgow
var komið nutu þeir ágætrar fyrirgreiðslu kynn-
ingarfulltrúa átaksins Glasgow 1999 sem lagði
m.a. til kynningarefni og leigubíl til afnota. Af
þeim fjölda áhugaverðra viðburða sem í boði
voru, vöktu tveii’ sérstaka athygli greinarhöf-
unda. Þeir voru The Lighthouse eða Vitinn, mið-
stöð borgaskipulags, arkitektúrs og hönnunar í
Skotlandi, svo og Homes for the Future eða
framtíðarheimilin sem byggð hafa verið í mið-
borg Glasgow. Bæði þessi verkefni eru til fram-
búðar og munu væntanlega hafa áhrif um ókom-
in ár. Mörg önnur áhugaverð verkefni voru á
dagskrá Glasgow 1999 sem of langt mál yrði hér
upp að telja. Það er álit greinarhöfunda að vel
hafi til tekist, sérstaklega með langtímaverkefn-
in sem að ofan er getið.
Vitinn vísar veginn inn í 21. öldina
The Lighthouse eða Vitanum hefur verið
komið fyrir í nýstárlegum húsakynnum í mið-
borg Glasgow. Eitt hundrað ára gömul stein-
bygging eftir skoska arkitektinn Charles Renn-
ie Mackintosh var endurgerð og við hana reist
létt viðbygging úr stáli og gleri. Glasgow-arki-
tektunum Page og Park tókst sérlega vel að
tengja saman gamalt og nýtt þannig að úr varð
spennandi húsnæði fyrir hina fjölbreyttu starf-
Áhugavert samspil forma og byggingarefna.
Bogadregnar svalir við Glendyke Street.
H
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. MARS 2000