Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2000, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 27.05.2000, Qupperneq 7
STÓR ORÐ OG MIKLAR VÆNTINGAR Tónlistarmenn 21. aldar er > Tirskrift tónleika sem halc Jnir verða í Salnum í Kópavogi annað kvöld, sunnudag, kl. 20.30 en tónleikarnir eru liður í dagskró Listahótíðar. MARGRÉT SVEIN- BJÖRNSDÓTTIR heyrði hljóðið í fjórum af tón- listarmönnum framtíðar. m 30 ^pÓNLISTARMENNIRNIR ungu eru á aldrinum 16-22 ára og stunda allir nám við Tónlistarskólann í Reykjav'ík. Ari Þór I Vilhjálmsson leikur á fiðlu, Ámi Bjöm Árnason og Víkingur Heiðar Ólafsson á píanó og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir er mezzósópr- ansöngkona. Samtalið hefst á vangaveltum um yfirskrift- ina „Tónlistarmenn 21. aldar“. „Þetta eru svolít- ið stór orð sem vissulega getur verið erfitt að standa undir,“ segir Guðrún Jóhanna. Félagar hennar taka undir að orðin stóm skapi ákveðnar væntingar. Það þykir Vfldngi raunar ekkert óeðlflegt: „Auðvitað verða alltaf ein- hveijar væntingar til okkar.“ Þau velta fyrir sér MorgunblaðiS/Þorkel! Ámi Björn Árnason, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Ari Þór Vilhjálmsson og Víkingur Heióar Ólafsson hvort betra hefði verið að segja „ungir tónlistar- menn“ en „tónlistarmenn 21. aldar“. „Við emm að koma fram fyrir hönd okkar kynslóðar og því fylgir ábyrgð. Ef við spilum illa, þá getur það orðið til þess að allir ungir listamenn verða dæmdir sem vonlaus kynslóð!" segir Ari Þór. Stefnt ó f ramhaldsnám erlendis Þar sem það er ekki á hverjum degi sem þess- ir fulltrúar ungu kynslóðarinnar koma fram á opinberum tónleikum er við hæfi að grípa niður í efnisskrá þar sem þeir em kynntir stuttlega: Ari Þór Vilhjálmsson fæddist 1981 og er af ís- lensku og mexíkönsku bergi brotinn. Hann hóf tónlistarnám fimm ára gamall samkvæmt Suzuki-aðferðinni en hefur verið nemandi Guð- nýjar Guðmundsdóttur síðan 1996. Ari Þór hyggur á framhaldsnám erlendis eftir eitt ár. Ámi Bjöm Ámason fæddist 1982. Hann hóf píanónám í Nýja tónlistarskólanum hjá Brynju Tryggvadóttur árið 1990. Árið 1993 lærði hann hjá Þorsteini Gauta Sigurðssyni við sama skóla og lærði áfram hjá honum næsta vetur við Tón- listarskólann í Reykjavík. Síðan 1995 hefur hann haldið áfram píanónámi sínu þar hjá Hall- dóri Haraldssyni. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir fæddist árið 1977 í Reykjavík. Hún hóf að sækja einkatíma í söng hjá Rut Magnússon haustið 1996, en að loknu stúdentsprófi 1997 hóf hún söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðslu Rutar og Hrefnu Eggertsdóttur píanóleikara. Guðrún Jóhanna lauk 8. stigi nú í vor og mun hefja framhaldsnám í söng í haust við Guildhall School of Music and Drama í London. Víkingur Heiðar Ólafsson fæddist 1984 og hóf nám í píanóleik fimm ára garnall hjá Erlu Stef- ánsdóttur við Tónmenntaskólann í Reykjavík. 1995 fór hann í Tónlistarskólann í Reykjavík og hefur stundað þar nám síðan hjá Peter Maté. Víkingur hyggur á framhaldsnám erlendis eftir eittár. Á efnisskrá tónleikanna em verk eftir tón- skáldin Brahms, Rachmaninoff, Prokofieff, Bach, Chopin, Wieniawski, Liszt, Grace Willi- ams og Kurt Weill. Aðspurð segja þau að verkin hafi þau valið sjálf en þó í samráði við kennara sína. Allt séu það verk sem þau hafi verið að æfa í vetur. Rjóminn af verkefnum vetrarins, nánar tiltekið. Þeir Ari Þór og Ami Bjöm hefja leikinn á Són- ötuþætti op. posth. fyrir fiðlu og píanó eftir Johannes Brahms. Næst stígur söngkonan Guðrún Jóhanna á svið ásamt Víkingi, sem sest við píanóið, og saman flytja þau ljóðaflokkinn Zigeunerlieder eftir Johannes Brahms. Þá er komið að Árna Bimi, sem leikur á píanó Pre- lúdíu op. 32 nr. 12 eftir Serge Rachmaninoff og Sónötu nr. 7 op. 83 eftir Serge Prokofieff. Eftir hlé leikur Ari Þór Largo úr sónötu op. 3 í C-dúr fyrir einleiksfiðlu eftir Johann Sebasti- an Bach. Vfldngur leikur Noktúmu í c-moll op. 48 nr. 1 og Etýðu í a-moll op. 25 nr. 11 eftir Fryderyk Chopin. Þá leika Ari Þór og Árni Bjöm Polonaise de Concert í D-dúr nr. 4 eftir Henri Wieniawski. Guðrún Jóhanna og Vfldng- ur flytja þrjá dansa: írskt þjóðlag í útsetningu Herbert Hughes: I have a bonnet, en það er polki, Tarantelle eftir Grace Williams og tangó- inn Youkali eftir Kurt Weill. Að lokum leikur Víkingur Mephisto-vals eftir Franz Liszt. Tónleikar eftir tuttugu ár „Við Ari eram búin að ákveða að eftir tuttugu ár ætlum við að flytja saman tvö lög eftir Brahms fyrir rödd og víólu,“ segir Guðrún Jó- hanna þegar talið berst að framtíðinni. Þetta grípur Ámi Bjöm á lofti. „Við verðum að koma með einhverja yfirlýsingu líka,“ segir hann og beinir orðum sínum til Víkings. Þeir era ekki lengi að ákveða hvað þeir vilji spila á tónleikum árið 2020: „Lutoslawski-tilbrigðin,“ segir Ami Bjöm ákveðinn. „Og píanókonsert fyrir tvö pí- anó eftir Mozart," segir Víkingur. „Svo kemur þetta eftir tuttugu ár í Mogganum!" Þau hlæja við tflhugsunina um að eftir tuttugu ár muni þau draga fram úr pússi sínu gulnaðar úrklippur úr Morgunblaðinu þar sem þau boða sameiginlega tónleika árið 2020. „Við vitum að við þurfum tuttugu ára þroska til viðbótar til að takast á við þessi verk,“ segir Guðrún Jóhanna alvarleg. Ámi Björn er ekki á því að þeir Vflringur þurf- um svo langan tíma og mikinn þroska. „Við gæt- um svo sem alveg spilað þetta í sumar," klykkir Víkingur út. TILBRIGÐI UM TILBRIGÐI TONLIST Sígildir diskar BACH / LOUSSIER J.S. Bach: Goldberg-tilbrigðin. Jacques Loussier, píanó; Ben- oit Dunoyer de Segonzac, kontrabassi; André Arpino, tromm- ur.Telarc CD-83479. Upptaka: DDD, París, 19.-29.10.1999. Útgáfuár: 2000. Lengd: 51:44. Verð (12 tónar): 2.100 kr. ÞAÐ skal fúslega viðurkennt að í dálki um sígilda hljómdiska er hér komið út á svolítið grátt svæði. Þeim sem Goldberg- tilbrigði Bachs eru hugleiðsla, ef ekki bænarstund, í dúr og moll, gæti þessi nýjasta afurð franska djasspíanistans og tón- skáldsins Jacques Loussiers m.a.s. virzt grátt gaman, ef þá ekki næsti bær við guðlast. Jafnvel þótt menn sverji af sér að til- heyra settlegri stétt stallsetjara gömlu meistaranna og kunni að hafa haft ánægju af úttektum Loussiers og félaga frá fyrri árum á kannski mesta tónskáldi allra tíma, hljóta þeir a.m.k. að klóra sér í hnakka þegar héramrætt fyrirbrigði blasir við í plöturekka og spyrja hvort Jacques karlinn hafi nú ekki loks reist sér hurð- arás um öxl. Eða hvernig - ef djass er skilgreindur sem e.k. til- brigðaform - sé með góðu móti hægt að gera tilbrigði um til- brigði? Það þarf náttúrulega ekki að taka fram við þá sem fyrir vita, að Goldberg-tilbrigði Bachs standa sem ein stórbrotnasta tón- smíð barokktímans í þeii-ri grein. Endanleg og fullkomin röð varíasjóna um 16 takta „aríu“, gerð af meistarahöndum, sem engu ætti að vera við að bæta. Sómakær fagurtónkeri hefði eflaust flýtt sér að gleyma því að hafa nokkurn tíma rekið augun í diskinn. En ég gat einhverra hluta vegna ekki á mér setið. Forvitnipúkinn vaknaði og heimt- aði að kanna hvort uppátæki Loussier tríósins ætti sér máls- bætur, ellegar hvort mætti áhyggjulaust afskrifa það fyrir fullt og allt sem skringilegan óþarfa. Niðurstaðan varð eins konar hvorki né. Bach-unnendur gætu með fullum rétti kvartað undan of litlu af Bach. Djassunnendur undan of litlu af djassi. Með þeim formerkjum virðist útkoman hvorki fugl né fiskur. Meðan Loussier sleppir annars vegar iðu- lega úr framnótum (einkum í milliröddum) eða beinlínis breytir og prjónar við frá eigin brjósti, stundum að viðbættum for- eða millispilum, er „djass“-útfærsla triósins á hinn bóginn oftast miklu bundnari nóteraða upphafinu en hæfa þykir frjálsum spuna. Sem sagt: ekkert væri auðveldara en finna afurðinni flest til foráttu, hvort sem er frá sjónarhóli unnenda sígildrar tónlistar eða djassins. En ekki ætla ég samt að ganga í þann klögukór. Það er nefni- lega fleha til í henni veröld en svart og hvítt, og margur tónhst- arannandinn á okkar skræpóttu ofreitistímum lætur ekki draga sig svo glatt í dilka - þó að dagskrárstjóram Ríkisútvarpsins þyki greinilega útilokað að sömu hlustendur geti haft áhuga á þáttaröðunum Hlustaðu ef þú þorir! og Byltingu Bítlanna kl. 13 á sunnudögum. Og þeir era líka margir sem hafa áhuga bæði á klassík og djassi. Þeirra á meðal Bach-fíklar á við undirritaðan sem þekkja, virða og elska Goldberg-tilbrigðin í túlkun hljóm- borðssnillinga eins og Rosalyn Tureck (sbr. Fram, fram, fylk- ing..., SD 10.4.1999). Með þeirri viðkynningu í bakhöfðinu gerðist það undarlega að maður fór smám saman að hafa lúmskt gaman að djössun franska tríósins. Þrátt fyrir sáralitlar viðbætur umfram hryn- sveit kontrabassa og trommusetts (fjölbreyttur sláttur Arpinos er reyndar með því músíkalskasta sem maður hefur heyrt úr eldhúsáhaldadeildinni) hættu úrsleppingar og einfaldanir Loussiers furðufljótt að ergja. Maður vissi til hvers væri vísað, hvernig það ætti að vera, og framlag tríósins gat því notið sín sem ofurlítið frí og afslöppun frá hefðbundinni andakt - með út- úrdúram í ýmsar stíláttir, eins og bí-bopp (7. tilbr.), debussýska raddsamstígni (9.), gleiðgenga rölt-sveiflu (13.) og sömbu/vals- blending (23.). Þótt sumt hafi lukkazt miðlungi vel, eins og hálfklúðurslegu niðurlögin í 10. og 22. tilbrigði, dauf útfærslan á hinu raunai’ ódjassandi tremóló-tilbrigði (nr. 28), að maður tali nú ekki um hvað kontrapunktur í kanonunum níu (nr. 3, 6, 9,12,15,18, 21, 24 og 27) fór fyrir lítið þar sem önnur keðjuröddin var ýmist hunzuð að hluta eða með öllu, gegndi furðu hvað eyrun gátu sætt sig við, þegar hlustandinn slakaði aðeins á klónni og gaf spiluram lausan tauminn. Það greiddi mjög fyrir meðtöku að Loussier er tær og snyrtilegur píanisti (að vísu vottaði aðeins fyrir smástirðleika í fingrafimustu tilbrigðunum, og lái honum enginn sem séð hefur nóturnar), og ekki gældi síður upptöku- hljómurinn við eyran, því hljóðritunin er með afbrigðum skýr og falleg. Þó hvarfli seint að manni að láta Loussier-diskinn í hendur nýgræðingi sem fyrstu kynningu á meistaraverki Bachs, ætti samt ekki útiloka að hann geti kveikt löngun óinnvígðra til að nálgast hina óspjölluðu frumgerð, líkt og teiknimyndimar í „Sí- gildum sögum“ kváðu á sínum tíma hafa beint athygli fjölda unglinga að góðum bókmenntum. Sagt án ábyrgðar. En um- fram allt - ef hlustandinn kemst í gott skap, eins og ég gerði, þá getur þeim frönsku ekki verið alls varnað. CHERUBINI Luigi Cherubini: Strengjakvartettar nr. 2 í C-dúr (1829) og 5 í F-dúr (1835). Hausmusik London (Monica Huggett, Pavlo Beznosiuk, fíðlur: Roger Chase, víóla; Richard Lester, selló.) cpo 999 464-2. Upptaka: DDD, Þýzkalandi, 6/1997. Útgáfuár: 2000. Lengd: 54:54. Verð (12 tónar): 1.300 kr. LÍKT og Louis Spohr, sem tónskáld á borð við Brahms mat mikils, hefur dómur sögunnar óneitanlega leikið Luigi Cherab- ini (1760-1842) hart. Frá því er hann var einn virtasti óperu- og kórverkahöfundur samtímans og talinn fremsti tónsmiður álf- unnar af engum lakari en Beethoven, urðu örlög hans að hníga í raðir smámeistara, og er nú aðallega þekktur fyrir Sálumessu sína frá 1836. Hann bjó meirihluta starfsævinnar í París, þar sem hann sýndi undraverða aðlögunarhæfni. Fyrst með því að semja óperar í sönnum byltingaranda (meðal fyrirmynda að hetjustfl Beethovens og Fidelio), síðar með því að verða rektor hins nýstofnaða tónlistarháskóla 1822 á ríkisstjórnaráram Loð- víks 18. Cherabini var fjrst og fremst söngverkahöfundur. Hann samdi aðeins eina sinfóníu og sneri sér fyrst að kammergrein- inni þegar óperar hans komust úr móð á efri áram. Af strengja- kvartettum samdi hann alls sjö, og er nr. 2 endurvinnsla úr sin- fóníunni, en hinir sjálfstæðar framsmíðar. Ekki verður þeim jafnað til vínarklassísku hápunkta tóngreinarinnar eftir Haydn, Mozart og Beethoven; m.a. vegna þess hvað vínarkvartettinn náði seint útbreiðslu í Frakklandi, þar sem upphaflegt dívertí- mentó-einkennið greinarinnar lifði lengur eftir. En sönghæfni þeirra og hugmyndagnótt standa fyrir sínu, þó að annáluð kontrapunktkunnátta höfundar (hann samdi vinsæla kennslu- bók um þau fræði) fái furðulítið rými í fremur hómófónískum rithætti 2. og 5. kvartettsins. Öðru fremur er það þó hinn svellsópandi flutningur Haus- musik-fjórmenninganna sem ber diskinn uppi. Hópurinn var fyrstur til að leika rómantíska strengjakvartetta á upphafleg hljóðfæri, og hágæðahljómur hans, samstilling og eldfjörug snerpa í myrraangandi nálægðarhljóðritun cpo leiðir helzt hug- ann að endurholdguðum Esterházy kvartetti í banastuði. Ríkarður Ö. Pálsson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 27. MAÍ 2000 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.