Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.2000, Qupperneq 10
ARKITEKTÚR - UMHVERFI
Eldborg rís upp úr svo úfnu hrauni að yfir það er illfært. í baksýn sést í orkuver Hitaveitu Suðurnesja
Forsalurinn í Eldborg en þaðan er farið með lyftu niður í Gjána. Sveigður, hallandi veggur, húðaður með ýms-
um steintegundum, setur mikinn svip á forsalinn og hann nær einnig út úr húsinu.
Gjáin í Eldborg. Þessi gjá, hluti af sprungusvæði Reykjanessins, var fyrir þar sem húsið stendur og nú er hún
nýtt á áhrifamikinn hátt. Jarðfræðiupplýsingar eru hér veittar með margmiðlunartækni.
IffflHmWTr ~T3§igHHK+ I f u t
ELDBORG VIÐ
SVARTSENGI
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ OG
AAARGMIÐLUN JARÐFRÆÐIUPPLYSINGA
Göngustigur og bílastæði austan við Eldborg. Garður hlaðinn úr hraungrjóti
tengir fallega saman umhverfið og mannvirkin.
GREIN OG LJÓSMYNDIR:
GÍSLI SIGURÐSSON
ALLIR þekkja Bláa lónið sem
nú er ásamt með Geysi og
Gullfossi fjölsóttasti ferða-
mannastaður landsins. Ekki
er hins vegar víst að allir
þekki þá sögu, að uppruna-
lega Bláa lónið varð til í
tengslum við orkuver Hita-
veitu Suðurnesja í Svartsengi, sem er undar-
legt örnefni þar sem ekkert er að sjá annað
en úfið Illahraunið. Það rann á Sturlungaöld
og er liklega yngsta jarðmyndun á Reykja-
nesskaga.
Tilkomumiklir og myndrænir gufubólstrar
minna vegfarendur á þessum slóðum á orku-
verið, en fæstir vita að þar er eitthvað annað
og meira. Fólk kemur af fjöllum þegar
minnst er á Eldborg, þjónustumiðstöð og
miðlun jarðfræðiþekkingar, sem þar hefur
risið af metnaði og glæsibrag, enda segja
sumir í gamni að þetta sé bezt varðveitta
leyndarmálið á Suðurnesjum.
Með þessu greinarkorni og myndunum
sem fylgja er ætlunin að svipta hulunni af
framtakinu og gera lýðum ljóst, að Eldborg
er öllum opin og að það er ómaksins virði á
leið í Bláa lónið eða til Grindavikur að gera
stuttan stanz til þess að fræðast um landið
okkar og ekki siður til þess að sjá fram-
úrskarandi hönnun, utanhúss sem innan.
Vegna þess að þarna er ekkert skilti sem vís-
ar veginn er vert að taka fram að ekið er
framhjá afleggjaranum að Bláa lóninu, ef
komið er norðan að. En þegar komið er lítið
eitt framhjá orkuverinu í Svartsengi er ann-
ar afleggjari til hægri og rúmgott bflastæði
við húsið. Ennþá hefur ekki gefizt tími til að
setja upp skilti með nafni stöðvarinnar, en
verður trúlega gert innan tíðar.
Eldborg hefur tvenns konar tilgang. Ann-
ars vegar að þjóna starfsmönnum orkuvers-
ins með setustofu, eldhúsi og mötuneyti, en
50-60 manns borða þar að jafnaði og aðstað-
an leyfir að sú tala fari upp í 100.
Hins vegar er kynningar- og móttökuhluti.
Þúsundir gesta koma á ári hverju í Svarts-
engi til að kynna sér starfsemi Hitaveitu
Suðurnesja; einnig ferðamenn, skólanemar,
fjölskyldufólk og sérfræðingar á ýmsum
sviðum. Tfmabært þótti að skapa aðstöðu til
að taka vel á móti gestum og jafnframt að
veita þeim innsýn í undur fslenzkrar nátt-
úru, sem hér eru allt um kring. Þessi undur
birtast meðal annars í áhrifamiklum and-
stæðum, þar sem mætast kraftar úr iðrum
Iandsins; eldstöðvar, hraun, gróður og vatn.
Þessi tvenns konar tilgangur Eldborgar
hefur náðst með góðu móti. Starfsmanna-
hlutinn er í beinum tengslum við orkuverið,
en móttöku- og kynningarhlutinn í framhaldi
af aðalinngangi við bflastæði. Þar er komið
inn í forsal, en auk hans eru til hliðar tveir
ráðstefnusalir og fundarsalur. Mötuneytissal
starfsmanna er síðan hægt að tengja hinum
sölunum.
Frábær hönnun á stóru og smáu
Þegar byggingin hafði verið ákveðin fór
fram samkeppni meðal arkitekta og bárust
43 tillögur. Fyrir valinu varð tillaga arki-
tektanna Gfsla Sæmundssonar og Ragnars
Ólafssonar og nær verk þeirra ekki aðeins
til þess sem sjá má innanhúss, heldur einnig
til hönnunar umhverfis húsið. Lfkt og við
Bláa lónið er úfin ásýnd hraunsins látin
halda sér ósnortin upp að húsinu. Eitt
margra fallegra smáatriða er lækjarsytra í
hraunhellustokki, sem fellur f sveig meðfram
hraunbrúninni við bflastæðið og gengur í
samband við sveigðan vegg sem skagar út úr
húsinu og nær inn í forsalinn. Þessi veggur
og annar samskonar fyrir enda salarins
mynda hrjúfa andstæðu við önnur bygging-
arefni, enda hefur verið sprautað á þá
hrafntinnu, snasa og hraunmulningi. Þessi
áferð rímar vel við úfið apalhraun sunnan
við húsið og samskonar áferð er í þriðja lagi
á keilumynduðu útskoti út úr ráðstcfnusal.
í forsal eru þrír upplýsingaskjáir og hægt
að smella á margvíslegar upplýsingar um
jarðfræði, svo og Hitaveitu Suðurnesja. Þar
er á borði upphleypt kort af Reykjan-
csskaga, en um útlit forsalarins vísast nánar
til myndarinnar sem hér fylgir.
Gjáin í Eldborg
I forsalnum er aðeins forsmekkur þeirrar
miðlunar sem sjá má f kjallaranum og sá
kjallari er ekkert venjulegur, heldur mikil-
fengleg hraunsprunga sem þar var fyrir og
er hluti af sprungusvæðinu norðaustur eftir ►
Samspil byggingarefna og góða hönnun ber hvarvetna fyrir augu við Eldborg.
Góð hönnun og fallegur frágangur. Við hraunkantinn hjá bílastæðinu hefur
verið búin til lækjarsytra í hraunhellustokki. Reykingamönnum hefur fundizt
tilvalið að fleygja þar stubbunum sinum.
+
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 22. JÚLÍ 2000
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 22. JÚLÍ 2000 1 lv