Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.2000, Qupperneq 13
HVAÐA SKARTMENNIBAR
BEININ Á HERJÓLFSNESI?
EFTIR ÓLAF PÁLSSQN
Klæðnaðurinn og búrgundahúfan hafa vakið furðu
og talin bera vott um að þar hafi maður úr efnaðri
stétt verið grafinn. Þar fyrir utan er það forvitnilegt að
maður sem ferðast á svo norðlægum slóðum skuli
taka með sér tískuklæðnað frá suðlægum slóðum.
FYRIR jólin kom út markverð bók
eftir Helga Þorláksson sagnfræð-
ing. Fjallar hún um enskíslensk
samskipti á árunum 1580-1630.
Hefur höfundurinn af miklum
dugnaði leitað víða fanga og graf-
ið upp ýmsar heimildir sem ekki
hefur verið til vitneskja um. Segir
þar frá erlendum sæköppum, ræningjum,
kaupskap og auðvitað landsmönnum okkar og
dönskum yfirvöldum. Verður því ekki gerð nein
skil að ráði hér. En þegar víða er farið yfir er
eins gott að gá til veðurs svo að ekki komi íyrir
að lesandinn nemi staðar og velti íyrir sér hvort
hinar skráðu heimildir sem höfundurinn hefur
fyrir sér gefi sanna mynd. Sem lítið dæmi má
nefna að á bls. 164 er talað um að 40 lesta skip
hafi haft 60 manna áhöfn. Þá er sterklega gefið í
skyn að siglingareynsla sem Englendingar
hefðu fengið hér við land hafi ráðið miklu um að
þeim tókst að ná yfirráðum á hafinu úr höndum
keppinautarins spánska.
Greint er frá að þegnar Elísabetar Eng-
landsdrottningar hafi verið djarfir sjóræningj-
ar og þeim var ljóst að einna fyrirhafnar-
minnsta aðferðin við að ræna var að komast yfir
þau skip sem fluttu vaming heim frá öðrum
löndum eða höfum. Þar voru sannkallaðir at-
hafnamenn að verki, studdir af yfirvöldum og
var sjálf drottningin mefra að segja oft vemdari
og jafnvel hluthafi í tiltækjunum. Þar að auki
var greiddur skattur af því sem á land kom og
vom teknar skýrslur af ræningjunum til þess
að hægt væri að meta verðgildi þess sem aflað
var. í þeim er veraldlegi fengurinn oft sundur-
liðaður og sumsstaðar er skráð hversu margir
menn hafi verið teknir eins og það er orðað,
herleiddir eða leystir úr haldi. I bókinni er lítið
fjallað um þann þáttinn að Englendingar vora
þrælaveiðarar og seldu mannaumingja mann-
sali. Hvergi er þess heldur getið að við ránin
hafi stimpingar átt sér stað eða blóðdropi fallið.
Við þekkjum vel þann gang mála frá Tyrkja-
ráninu, en þar hafa enskir líklega verið með í
ráðum. Bókin segir því ekki alla söguna.
Frá alda öðli hefur þrælahald verið við lýði
hjá þeim þjóðum sem máttú sin mikils. Sigur-
vegarar í styrjöldum hertóku þá sem eitthvað
orkuðu í óvinalandinu og hnepptu þá í þrældóm.
Öll þau stórhrikalegu mannvirki úr fortíðinni
sem við lítum nú á dögum eru unnin af þræla-
höndum. Vora þeir pískaðir áfram og þegar það
dugði ekki beið gálginn þeirra eða þá krossfest-
ingin. Segja má að vöðvaaflið hafi verið orkan
sem fyrir hendi var þar til gufuaflið var beislað.
Einnig voru aðrir ræningjar að verki sem
Húfur eins og hér sjást voru nefndar búrgundahúfur. Ein slík fannst á Herjólfsnesi.
rændu fólki og flutti það nauðugt á markað þar
sem það var selt eins og hver annar fénaður.
Var það mjög arðsamur atvinnuvegur til dæmis
við Miðjarðarhafið og á vesturströnd Afríku. Á
stórveldistimum Portúgals blómgaðist þræla-
verslunin framan af og þá var helst fólk af arab-
ískum upprana sem gekk kaupum og sölum. En
árið 1442 náði Hendrik prins tökum á fyrstu
blökku þrælunum og tveim áram síðar hófust
flutningar á þeim frá ströndum Vestur-Afríku
vestur yfir hafið til Ameríku. í hálfa öld stóðu
Portúgalar næstum einir að þeim flutningum.
Mikil þörf var fyrir vinnuafl á ekranum vestan
hafs meðal annars vegna þess að Spánverjarnir
þar höfðu leikið indíánana þar grátt eins og
kunnugt er. Þegar aðrar Vestur-Evrópuþjóðir
sáu hve arðvænlegir þessir flutningar voru
bragðu þeir sér í leikinn. Spánveijar árið 1517,
Englendingar 1553, Frakkar 1624 og þar á eftir
komu Hollendingar og Danir.
Þar sem konungar Danmerkur á íslandi áttu
hlut að máli er ekki úr vegi að minnast stuttlega
á þá starfsemi. Hún var fólgin í hinni svokölluðu
þríhyrningssiglingu sem hófst á stjórnarárum
Kristjáns 5. Lagt var frá Kaupmannahöfn með
gnægð af áfengi, púðri og tinnubyssum og alls-
konar glingri. Siglt var til Kristjánsborgarvirk-
isins sem stóð á vesturströnd Afríku þar sem nú
er ríkið Ghana. Að ströndinni var stefnt lestum
af kolsvörtu fólki úr myrkviðum Afríku sem var
boðið til sölu. Fyrir varninginn sem skipin
fluttu var greitt með þrælum, fílabeini og gulli.
Síðan var haldið þvert yfir hafið með viðkomu á
eyjunum vestur af álfunni alla leið til eyja í
Vestur-Indíum sem Danir höfðu komist yffr.
Þar vora þrælamir boðnir upp á þrælamarkaði.
Þegar skipin höfðu verið rýmd vora þau hlaðin
ýmsum gersemum nýlendunnar og þó einkum
miklu magni af sykurreyri sem var síðar unninn
í Kaupmannahöfn og var hann undirstaða mik-
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 22. JÚLÍ 2000 1 9