Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2000, Side 2
Listakonan Róska „bar suðrið með sér“.
Eitt af verkum Rósku.
Yfirlitssýning helguð Rósku í Nýlistasafninu
„SÍFELLD UPPREISN í LIF-
ANDI PÓESÍU OG PÓLITÍK "
YFIRLITSSÝNING helguð lífi og starfí
listakonunnar Rósku verður opnuð í dag í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Róska hét réttu nafni Ragnhildur Oskars-
dóttir og fæddist 1940 í Reykjavík. Sjálf
sagðist hún vera fædd 1946 og gat framvís-
að fölsuðu vegabréfi sínu upp á það. „Hún
tilheyrði þeirri kynslóð róttækra, evrópskra
listamanna sem vildi afmá mörkin milli lífs
og listar og barðist gegn listasnobbi
borgarastéttarinnar, pólitísku andvaraleysi
almennings og áróðursvél atvinnustjórn-
málamanna. Hún var listmálari, Ijósmynd-
ari, Ijósmyndafyrirsæta, kvikmyndaleik-
stjóri en umfram allt uppreisnarmaður;
rauði þráðurinn í lífi hennar var „sífelld
uppreisn í lifandi póesíu og pólitík", segir
Hjálmar Sveinsson sýningarstjóri.
„Hún bjó í Róm stærstan hluta ævi sinnar
en á Islandi fékk líf hennar ævintýralegan
blæ vegna persónutöfra hennar, listrænna
hæfileika og pólitískrar róttækni. Engu að
síður snerist líf hennar í harmleik vegna
þungbærs sjúkdóms sem hún átti við að
stríða frá unga aldri, auk þess sem hún og
maðurinn hennar Manrico viiltust af leið í
móðu vímuefnanna," segir Hjálmar enn-
fremur.
Útlit hennar bar suðrið með sér
„Utlit hennar bar suðrið með sér,“ skrifar
Guðbergur Bergsson í bók sem fylgir sýn-
ingunni, „og um leið varð lífið í Reykjavík
fyrir suma eins og sykursoðnir ávextir í
ávaxtaköku. Hárið, brosið, hvað eina í fari
Rósku var einhvern veginn sjálfsagt,
áhyggjulaust, fagurt og hæfileikarnir ótví-
ræðir.“
Róska vakti fyrst athygli með sýningu
sinni á málverkum og teikningum í Casa
Nova 1967 og með Súper-þvottavélinni sem
hún tyllti sama ár upp á Skólavörðuholt og
breytti í skotpall fyrir eldflaugar. Sama ár
gerðist hún meðlimur í SÚM og sagði í hisp-
urslausu blaðaviðtali að sér þætti ekki mikið
varið í Fagurlistaskólann í Róm, þar sem
hún hafði verið við nám, en lét þess jafn-
framt getið að sér virtist ekki auðvelt að lifa
listamannslífi í Reykjavík vegna þess að all-
ir væru þar „þvældir í peningakerfinu".
Tveimur árum síðar, þegar Róska hafði
stigið sitt pólitíska skref til fulls, með verk-
um sínum á SÚM III, skrifaði ritari FÍM
blaðagrein sem hófst með þessum orðum:
„Hingað er komin fokill stelpa frá Róm.“
Á sýningunni í Nýlistasafninu verða sýnd
málverk og teikningar eftir Rósku, ljós-
myndir og pólitískir skúlptúrarar, vegg-
spjöld og pólitísk barátturit. Einnig verða
sýndar kvikmyndir eftir Rósku sem aldrei
áður hafa verið sýndar á Islandi.
Vegleg bók fylgir sýningunni með fjölda
mynda, greinum eftir Guðberg Bergsson,
Ólaf Gíslason, Birnu Þórðardóttur og fleiri;
einnig eru þar viðtöl við Einar Má Guð-
mundsson og Hrein Friðfinnsson, grein um
súrrealismann eftir Rósku og umræður um
pólitíska list.
Útgefendur Nýlistasafnið og Mál og
Menning; Sýningin er styrkt af Reykjavík,
menningarborg Evrópu.
Sýningin stendur til 19. nóvember og
verður opin aila daga nema mánudaga frá
klukkan 14 til 18. Fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga verður einnig opið fram eftir
kvöldi á pólitísku kaffihúsi sem hefur verið
komið upp í salarkynnum Nýlistasafnsins í
tilefni sýningarinnar.
SONGVA-
SJÓÐUR FÍL
ÚTHLUTAR
STYRKJUM
ÚTHLUTUN úr Söngvarasjóði FÍL hefur
farið fram. Markmið sjóðsins er að styrkja
unga efnilega söngvara til framhaldsnáms
og er úthlutað árlega þremur styrkjum.
Styrkþegar í ár eru þeir Jóhann Frið-
geir Valdimarsson, Jónas Þór Jónasson og
Benedikt Ingólfsson og fékk hver þeirra
150.000 kr. í sinn hlut.
I úthlutunarnefnd sjóðsins eru þau Stef-
án Arngríinsson, Ingvcldur G. Ólafsson og
Hrönn Hafliðadóttir.
Morgunblaðið/ Kristinn
Stefán Arngrímsson, Valborg Stefánsdóttir, sem veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Jónasar Þórs
Jónassonar, Hugrún Hólmgeirsdóttir, sem veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Benedikts Ingólfs-
sonar, og Jóhann Friðgeir Valdimarsson.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Árbæjarsafn: „Saga Reykjavíkur - frá býli
til borgar" í húsinu Lækjargötu 4. Sýningin
er unnin í samvinnu við Reykjavík - menn-
ingarborg Evrópu árið 2000.
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýning.
Til 15. maí.
Ásmundarsafn: Sýning á verkum Ásmund-
ar Sveinssonar. Til 1. nóv. Verk í eigu safns-
ins.
Café Mílanó: Myndlistarsýning Hólmfríðar
Dóru Sigurðardóttur. Til 31. okt.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Dominique
Ambroise sýnir olíumálverk í Baksalnum.
Til 22. okt.
Gallerí Geysir, Hinu húsinu, Ingólfstorgi:
Geðveik list. Til 21. okt.
Gallerí Reykjavík: Hollenski listamaðurinn
Gerard Groot sýnir olíumálverk. Til 27. okt.
Gallerí Sævars Karls: Málverkasýning Sig-
urðar Árna Sigurðssonar. Til 20. okt.
Gerðarsafn: 1 austursal sýnir Jenný Guð-
mundsdóttir. I vestursal sýnir Valgerður
Hauksdóttir. Á neðri hæð safnsins opnar
ívar Valgarðsson sýningu. Til 29. okt.
Gerðuberg: Yfirlitssýning á verkum
Bjarna Þórs Þorvaldssonar „Thor“. Til 29.
okt.
Hafnarborg: Málverk eftir Þorbjörgu
Höskuldsdóttur. Til 16. okt. Norræn skart-
gripasýning. Til 16. okt.
Hallgrímskirkja: Myndlistarsýning Erlu
Þórarinsdóttur. Til 27. nóv.
i8, Ingólfsstræti 8: Sýning á verkum hoi-
lenska listamannsins Douwe Jan Bakker.
Til 22. okt.
Jera gallerí: Myndlistarsýning Margrétar
Elíasdóttur. Til 15. okt.
Kjarvalsstaðir: Austursalur: Jóhannes S.
Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni.
Listasafn Akureyrar: Tvær margmiðlunar-
sýningar og Steina Vasulka. Til 22. okt.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur: Helga
Magnúsdóttir sýnir. Til 22. okt.
Listasafn ASI - Gryfja: Gréta Mjöll
Bjarnadóttir sýnir. Til 22. okt.
Listasafn Einars Jónssonar: Höggmynda-
garðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Yfiriitssýning á verkum
Þórarins B. Þorlákssonar. Til 26. nóv.
Listasafn Keykjavíkur, Hafnarhúsinu: ca-
fe9.net. Til 31. okt. Jörgen Nash og Draka-
bygget. Til 22. okt. Gangurinn - 20 ára af-
mælissýning. Til 22. okt.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin verk
eftir Sigurjón Olafsson.
MAN-sýningarsalur, Skólavörðustíg 14:
Eyjólfur Einarsson sýnir málverk. Til 29.
okt.
Mokkakaffi: Kathleen Schultz. Til 22. okt.
Norræna húsið: í nágrenni - Min hem-
bygd. Til 18. okt.
Nýlistasafnið: Róska - líf og starf. Til 19.
nóv.
Skálholtskirkja: Sýning á teikningum Kat-
rínar Briem. Til 30. nóv.
Stöðlakot: Guðmundur W. Vilhjálmsson.
Pastel- og vatnslitamyndir. Til 15. okt.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: Lista yfir
fyrirhugaðar og yfirstandandi mynd-
listarsýningar í öllum helstu sýningarsölum
má finna á slóðinni www.umm.is undir
Fréttir.
TÓNLIST
Mánudagur
Salurinn, Kópavogi: Tíbrá - píanótónleikar
með bandaríska píanóleikaranum Christ-
opher Czaja Sager. Hann mun leika verk
eftir J.S. Bach, Debussy, Alexandre Scráb-
ine og Chopin. Kl. 20.
LEIKLIST
Iðnó: Stjömur á morgunhimni, sun. 15. okt.
Tilvist - Dansieikhús með ekka, laug. 14.
okt.
Þjóðleikhúsið: Draumur á Jónsmessunótt.,
fös. 20. okt.
Glanni Glæpur. Einnig sýnt kl. 17 sun. 15.
okt.
Horfðu reiður um öxl, laug. 14. okt., fim. 19.
okt.
Kirsuberjagarðurinn, laug. 14. okt., miðv.
18. okt., fim. 19. okt.
Borgarleikhúsið: Kysstu mig Kata, sun. 15.
okt. lau. 21. okt.
Lér konungur, laug. 14. okt., fös. 20. okt.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysingamir,
laug. 14. okt., fim. 19. okt., fös. 20. okt
Loftkastalinn: Á sama tíma að ári, sun. 15.
okt., fös. 20. okt.
Kafilleikhúsið: Háaloft, þri. 17. okt.,
Stormur og Ormur, lau. 14. og sun. 15. okt.
íslenska óperan: Hellisbúinn, fös. 20. okt.
Stúlkan í vitanum, sun. 15. okt.
Möguleikliúsið: Lóma, sun. 15. okt., mán.
16. okt., sun. 22. okt.
Snuðra og Tuðra. sun. 15. okt.
Völuspá, laug. 16-24 leikferð.
Tjarnarbíó: Með fullri reisn, laug. 14. okt.,
fös. 20. okt.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl.
16 á miðvikudögum merktar: Morgunblað-
ið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík.
Myndsendir: 569 1222. Netfang: menning-
@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 14. OKTÓBER 2000