Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2000, Qupperneq 17
Listakonurnar sjö sem verk eiga á sýningunni Tíminn ogtrúin.
TÍMINN og trúin, Farandsýning sjö lista-
kvenna, verður opnuð í Grensáskirkju
sunnudaginn 15. október að lokinni messu.
Upphaflega var efnt til sýningarinnar í til-
efni kristintöku-hátíðarhaldanna síðastlið-
ið ár.
Verkin hafa öll skírskotun til yfir-
skriftarinnar og eru byggð á víðtækri
könnun á táknmáli og sögu kristninnar og
hinum ýmsu þáttum trúarinnar.
Listakonurnar sem eiga verk á sýning-
unni eru Alda Ármanna Sveinsdóttir, mál-
MorgunblaðiS/Árni Sæberg
Edda, Ólafía og Rósa ásamt
Maríu leikstjóra.
Leikfélaq íslands
Æfa
Sýnda
veiði
ÆFINGAR eru hafnar hjá Leikfélagi ís-
lands á leikritinu Sýnd veiði... eftir
Michele Lowe. Leikritið verður frumsýnt
í Iðnó 26. október.
Fern hjón í amerískum smábæ hafa
hist einu sinni í mánuði í 18 ár og borðað
saman kvöldverð. Eftir matinn æfa karl-
arnir golf í borðstofunni. Eiginkonurnar
ganga frá í eldhúsinu, setja matarafganga
í box, spjalla um barnauppeldi og nýjustu
tískuna yfir sérríglasi. En hversu vel
þekkjast þær? Hverjar eru þessar konur?
Hvað gera þær t.d. þegar þær standa
frammi fyrir því að bjarga eiginmönnum
sínum úr bráðum lífsháska? Hvað gerir
Molly? Hvernig bregst Debra við? Hvað
finnst Nicky? Hvar er Sarah? Hvað varð
um eftirréttinn? Hvenær gerist þetta?
1929? - eða 1973? Hver er Chez Paul?
Leikarar eru Edda Björgvinsdóttir,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Rósa Guðný
Þórsdóttir. Þýðing: Karl Agúst Ulfsson,
leikstjóri: María Sigurðardóttir, leik-
mynd: Björn Björnsson, tónlist: Ragn-
hildur Gísladóttir, lýsing: Halldór Örn
Óskarsson og sýningarstjóri: Guðjón
Davíð Karlsson.
Farandsýning
sjö listakvenna
verk, Auður Ólafsdóttir, málverk, Gerður
Guðmundsdóttir, silkiþrykk/blönduð
tækni, Guðflnna Anna Hjálmarsdóttir,
grafík/blönduð tækni, Kristín Arngríms-
dóttir, þurrkrít og bókverk, Soffía Árna-
dóttir, leturlist/glerverk og Þórey (Æja)
Magnúsdóttir, skúlptúr.
Sýningin hefur verið á ferðinni í kring
um landið, og verið komið fyrir í kirkjum
og safnaðarheimilum, síðasti sýningarstað-
ur er Landakirkja í Vestmannaeyjum þar
verður sýninginn opnuð á allraheilagra
messu fyrstu hclgina í nóvember á þessu
ári.
Sýningin er opin virka daga frá kl. 8-lft
og kringum messutíma á sunnudögum.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 29. októ-
ber.
ÞRJÁR SÝNINGAR OPNAÐAR í GERÐARSAFNI
SKÖPUN HEIMSINS OG .
GEGNSÆITILVERUNNAR
Þrjár sýningar verða
opnaðar í Listasafni
Kópavogs í dag kl. 15.
Listamennirnir eru Jenný
Guðmundsdóttir,
Valgerður Hauksdóttir
og fvar Valgarðsson.
í AUSTURSAL safnsins opnar Jenný Guð-
mundsdóttir myndlistarmaður sýningu sem
ber yfirskriftina „Sköpun heimsins, í nafni
Guðs, föður sonar og heilags anda“ og eru
form myndflatarins og texti við myndirnar
sótt í Biblíuna.
Jörðin er stjarna í stjörnukerfi himin-
geimsins og er myndflöturinn, Davíðsstjarn-
an, samsett úr tveim jafnhliða þríhyrningum
og vísar annar niður. Verkin eru unnin á
pappír með blandaðri tækni, akríl, vatnslit,
olíukrít o.fl. og eru verkin öll unnin sem
stjörnur og innrömmuð í stjörnuforminu.
Sexhyrnda stjarnan, Davíðsstjarnan, sam-
anstendur af tveim jafnhliða þríhyrningum,
tákni heilagrar þrenningar: Föðurnum,
skapara himins og jarðar, syninum Jesú
Kristi og heilögum anda. Annar þríhyrning-
urinn vísar upp til himins en hinn niður til
jarðar, Guðs birtingar á jörðu, fæðingar
frelsarans og upprisu Krists.
Jenný Guðmundsdóttir er útskrifuð frá
grafíkdeild MHÍ árið 1978 og stundaði hún
framhaldsnám í grafík við Konsthögskolan í
Stokkhólmi 1979-91. Jenný hefur aðallega
unnið í grafík og tekið þátt í sýningum hér
heima og erlendis. A sýningunni í Gerðar-
safni fer Jenný nýja leið í myndsköpun sinni
hvað varðar tækni og útfærslu.
„Púls" í vestursal
í vestursal safnsins opnar Valgerður
Hauksdóttir sýningu á 33 myndverkum sem
öll eru unnin á þessu ári með blandaðri
tækni og „collage“ tækni á handgerðan jap-
an-pappír. Sýningin samanstendur af 8
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ívar Valgarðsson, Valgerður Hauksdóttir og Jenný Guðmundsdóttir.
V-.
myndröðum sem saman mynda eina heild og
nefnist „Púls“. Verkin fjalla um hrynjandi
og samspil ólíkra þátta tilverunnar og gegn-
sæi hennar, um hin fingerðu mörk milli lífs
og dauða, milli efnis og andefnis og um feg-
urðina í hinni eilífu hringrás.
Valgerður hefur unnið sem myndlistar-
maður og kennt myndlist síðastliðin 20 ár.
Hún lauk M.F.A. gráðu í myndlist frá Uni-
versity of Illinois 1983 og B.A. gráðu frá
University of New Mexico 1981. Frá 1984
hefur Valgerður starfað við Myndlista- og
handíðaskóla íslands og síðar Listaháskóla
Islands við kennslu og stjórnunarstörf, m.a.
sem skorarstjóri og aðstoðarskólastjóri.
Jafnframt hefur hún kennt og átt í sam-
starfi við ýmsa erlenda háskóla.
Myndlistarverk Valgerðar í opinberri eigu
er að finna í Listasafni Islands, Listasafni
A.S.Í., Kjarvalsstöðum - Listasafni Reykja-
víkur, Norræna Húsinu, Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar, Alvar
Alto Museum, Finnlandi, Södertálje Konst-
hall, Svíþjóð, The Art Museum of Grado and
Catania, Ítalíu, ásamt fjölda stofnana á ís-
landi, Evrópu og Bandaríkjunum.
Sýning Valgerðar í Gerðarsafni er tíunda
einkasýning hennar en jafnframt hefur hún
tekið þátt í yfir 50 samsýningum f Evrópu,
Afríku, Bandaríkjunum og Asíu.
Hjarnhvítt-hrímhvítt-beinhvitt
Á neðri hæð safnsins opnar ívar Val-
garðsson sýningu sem hann nefnir Hjarn-
hvítt-hrímhvítt-beinhvítt. Þetta er 14.
einkasýning ívars og hún samanstendur af
þremur þrískiptum verkum sem saman
mynda eina heild, auk boðskorts. Þau eru
gerð úr innanhússmálningu með nöfn og eðli
litanna í huga og skírskotun þeirra til um-
hverfis okkar.
Sýningarnar standa til og með sunnudeg-
inum 29. október og eru opnar alla daga
nema mánudaga frá 11-17.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 14. OKTÓBER 2000 1 7