Tíminn - 17.03.1967, Síða 8
8
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 17. marz 1967.
lÍIÍlÍlll!
en sérstakur auglýsingastjóri var
ráðinn snemma árs 1948, Áskell
Einartson, og gegndi hann því
starfi til 1956. Hjálmtýr Péturs-
son tók síðan við framkvæmda-
stjórn blaðsins og annaðist hana
nokkur missiri. Afgreiðslumaður
blaðsins var Eiríkur Erlendsson,
og gegndi hann því starfi mörg
ár. Á undan Eiríki höfðu verið
afgreiðslumenn blaðsins um
skemmri eða lengri tíma Gunnlaug
ur Pétursson, Arnaldur Jónsson,
sem var einnig blaðamaður við
Tímann um skeið, Þórður Þor-
steinsson og Torfi Torfason.
Tíminn vann sér á næstu árum
mjög gott álit sem innlent frétta-
blað. Hann réð sér fréttaritara
þá þegar í öllum bæjum og kaup-
túnum landsins og mjög mörgum
sveitarhreppum, og hafði næstu
árin um eða yfir hundrað inn-
lenda fréttaritara. Var þetta sjálf-
boðaliðsstarf lesenda Tímans og
stuðningsmanna honum alveg ó-
metanlegt, og hefur svo verið æ
síðan og fær Tíminn varla full-
þakkað það, og forráðamenn blaðs-
ins hrfa oft fundið til þess, að
þessa mikilvægu hjálp skuli ekki
hafa verið unnt að launa sem vert
væri.
í febrúar 1948 réðst Andrés
Kristjánsson blaðamaður að Tím-
anum og hefur starfað við blaðið
síðan.
Tíminn var með svipuðu sniði
næstu árin, en efldist þó að ýmsu
leyti, fréttaflutningur batnaði,
nýir iþættir koiiiu til, ög úbreiðslan
fór vaxandi smátt og smátt. Hall-
ur Símonarson réðst til blaðsins
árið 1950 og ritaði fyrst og fremst
um íþróttir, bridge og skák í blað
ið, en vann auk þess algeng blaða
mannastörf. Annaðist Hallur síðan
íþróttasíðu í blaðinu mörg ár, en
á síðustu árum hefur hann eink-
um unnið að umsjón með umbroti
blaðsir.s. Jókst fjölbreytnj blaðsins
að mun við þætti hans.
Indriði G. Þorsteinsson réðst
blaðamaður að Tímanum í apríl
1951 og starfaði þar síðan, nema
nokkur misseri, sem hann var við
Alþýðublaðið. Hann skrifaði fram
an af einkum fréttir.
Sigurjón Guðmundsson hefur
lengi verið mikill stuðningsmaður
Timans, bæði átt lengi sæti í blað
stjórn og verið gjaldkeri flokksíns
og því látið mál blaðsins mjög
til sín taka. Hann var framkvæmda
stjóri blaðsins frá 1951 þangað til
Guðni Þórðarson tók við 1957.
Skömmu eftir að Tíminn varð
dagblað, fékk hann þýzkan fjar-
ritara og samdi við norsku frétta-
stofuna NTB um not frétta henn-
ar. Var það erlend fréttalind
blaðsins um hríð, en síðan hefur
tækni þessi batnað að mun, enda
annast Landsíminn móttöku fyrir
öH blöðin með tækjum, sem hann
leigir þeim.
f júlí 1953 hvarf Jón Helgason
frá Tímanum, og gerðist litlu síðar
ritstjóri Frjálsrar þjóðar.
Síðla árs 1954 keypti Tíminn
þýzka myndamótavél. Var þetta
alveg sjálfvirk vél, tæknileg ný-
ung, sem var að ryðja sér til
rúms. Aður höfðu myndamót í
blaðið verið gerð úr málmi með
tækjum hins gamalþróaða iðnað-
ar, sem að miklu leyti var hand-
verk. Nýja vélin gerði myndamót
úr plasti. Þessi vél og síðari þróun
hefur gerbreytt myndamótagerð-
inni fyrir blaðið. Hún var miklu
fljótvirkari og mótin urðu til
muna ódýrari og unnt að vinna
þau svö áð segja í ritstjórnarskrif
stofum blaðsins. Myndamótin
Hann skrifaði einkum um stjórn-
mál ásamt Þórarni Þórarinssyni,
en einnig töluvert um bækur og
ýmis almenn mál. Hann hefur
og fyrr og síðar sent Tímanum
margar greinar um ýmis efni.
Guðmundur Tryggvason var
framkvæmdastjóri blaðsins þessi
ár.
Hinr. 7. nóv. 1947 verða enn
VIGFUS GUÐMUNDSSON
nokkrum sinnum forsjárm. blaðsins
þáttaskil í sögu Tímans, og lík-
lega hin mikilvægustu, er hann
var gerður að dagblaði, eins og
að hafði verið stefnt hin síðari ár.
Prentsmiðjan Edda hafði þá feng
ið nýjan og aukin vélakost miðað
an við það að geta unnið dagblað.
f ávarpsorðum blaðstjórnar Tím-
ans er gerð nokkur grein fyrir
þessu skrefi og segir svo meðal
annars:
„Á síðasta flokksþingi var sam-
ykkt svohljóðandi ályktun:
„Flokksþingið ákveður, að Tím-
anum verði breytt í dagblað á
næsta ári eða strax og tæknileg-
ar ástæður leyfa“.
Flokksþinginu var ljóst að mikið
átak þyrfti til þess að standast
aukinn kostnað vegna þessara
breytinga á blaðakostinum.
Ákváðu menn á á flokksþinginu,
að ný fjársöfnun skyldi fara fram
meðal flokksmanna um land allt
og annarra, sem stuðla vildu að
blaðaútgáfu flokksins. Bundust
menn jafnframt samtökum á
flokksþinginu um að styðja þessa
nýju söfnun.
Að fjársöfnuninni hefur verið
unnið af miklu fjöri og áhuga. í
dag kemur fram árangur þessa
starfs. Tíminn kemur nú út
í nýjum búningi — átta siðu dag-
blað.
Þórarinn Þórarinsson var einn
ritstjóri blaðsins enn um sinn,
en Jón Helgason varð fréttarit-
stjóri, enda hafði hann haft stjórn
fréttastarfsins með höndum und-
anfarin missiri.
Htð nýja dagblað var allfjöl-
breytt að efni. Miklu meiri áherzla
var nú lögð í fréttir og myndir
en áður, uppsetning þeirra með
dagblaðssniði og bæði forsíða og
baksíða lagðar undir þetta efni.
Á innsíðum blaðsins héldust ýmsir
þættir, sem áður höfðu verið í blað-
inu, en nýir bættust við, til dæmis
dagbók" með stuttum daglegum
fréttum og ýmissi vitneskju um
almenna þjónustu sem hverjum
lesenda er nauðsynlegt að geta
gengið að á vísum stað. Bætt var
við feitletruðum smágreinadálki
ritstjórnar um landsmál og dægur
mál. Auglýsingar jukust að sjálf-
sögðu verulega.
Vigfús Guðmundsson var fram
kvæmdastióri Tímans fyrsta miss-
irið eftir dagblaðsstofnunina og
annaðist einnig auglýsingasöfnun,
Fyrsta blað Tímans, er hann kom út i breyttu formi þrisvar í viku 1938
voru fyrst í stað nokkru venri
en gömlu málmmótin, og varð
myndaprentun ekki eins góð, en
þessi tækni fór sífellt batnandi á
næstu árum. Nú á Tíminn þrjár
myndamótavélar af þessari gerð
og ýmis önnur hjálpartæki. Áskell
Einarsson, auglýsingastjóri blaðs
ins, beitti sér mjög fyrir þessum
vélakaupum, en Guðjón Einarsson,
prentari tók fljótlega að sér þenn
an þátt í gerð blaðsins, kynnti sér
þessar vélar miög vel og hefur
nú í áratug veitt myndamótagerð
og Ijósmyndastofu Tímans for-
stöðu. Á Tíminn nú góð Ijósmynda
tæki, góðar myndamótavélar og,
mikið myndamótasafn vel skipu
lagt, filmusafn og Ijósmyndasafn.
Hefur tilkoma myndamótavélanna
stórbætt aðstöðu blaðsins. Á und-
Framhaid á bls. 11.
GUÐMUNDUR TRYGGVASON
framkv.stjóri á árunum eftir 1940
GUÐNI ÞÓRÐARSON
blaðamaður og framkvæmdastjóri
eirikur ERLENDSSON
lengi afgreiðslumaður.
Prentsmiðjuhús Eddu. Lindargötu 9a, þar sem Timinn hefur og hefur
lengi haft aðsetur.
«*•
ríminn stækkar ^*:^
ékemur út i fleirí eintökum
n nokkurt annað isl. blað
•fni htnj (Mj rrrnn rinibr>r<ur«
h«fi ta"
am tiknbtnn.im
málannkkar aunrta i
ák mrflnmál háhá h
viöavangi
Jctn B. Waag
Urt«n»«
Vcröiir styrjöld afstýrt?
Á MILU VIKUBLAÐS OG OAGBLAÐS