Tíminn - 17.03.1967, Blaðsíða 39

Tíminn - 17.03.1967, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 17. marz 1967. TÍMINN Efnið og uppsetningin TÍMINN í DAG ina er jafnóðum skrifað á þennan lista. Um það leyti dagsins, sem þessi fundur er haldinn á póstur að vera kominn til blaðsins, og er þá litið yfir hann af ritstjóra. Einnig hefur þá borizt hin dag- lega sending af fréttamyndum frá Politikens Pressefoto í Kaupmanna höfn. Þaer eru einnig skoðaðar af ritstjóra jafnóðum. Sumt af þeim er valið í þáttinn „í spegli Tím- ans“, annað fe’- til íþróttafrétta- ritarans, og þriðji flokkurinn fer í mannamyndasafnið. Þess utan er svo stór flokkur, sem eru hin- ar almennu fréttamyndir af ýms um atburðum, óeirðum og slys- förum. Flestar þessara mynda koma aldrei fyrir augu lesenda Tímans, enda væri ógjörningur að birta þær allar. Umslögin sem koma eru gjarnan þykk, en mikið hagræði er að því að fá þetta myndasafn inn á hverjum degi, og í gegnum það er hægt að fylgj ast með mörgu, sem er að gerast á erlendum vettvangi. Þegar líð- ur á daginn hefur ritstjórnarfull trúinn, Tómas Karlsson, oft sam- band við ritstjórn blaðsins frá A1 þingi og tilkynnir hvort um eitt- hvað fréttnæmt efni er að ræða þaðan, sem ætla þarf pláss fyrir á útsíðum. En eins og áður seg- ir hefur hann með þingfréttirnar að gera og hefur gjarnan eina síðu í blaðinu á hverjum degi undir þær meðan þing stendur. Aðstaða öll í Alþingi hefir nú verið stórbætt fyrir blaðamenn og hefir það stórlega auðveldað afköst og vinnubrögð, sem þýðir að efni á þingsíðu liggur oft fyrir til setningar skömmu eftir að fulltrúinn er kominn aftur inn á blaðið og þingfundum er lokið. Tíminn fær erlendar fréttir sendar inn á hverjum degi frá NTB og koma þær á fjarritara, sem alltaf er í gangi. Kl. 6 á dag inn er Björn Þ. Guðmundsson mættur og skýrir þá ritstjóra frá því, hvað helzt er í fréttum á erlendum vettvangi, og ræða þeir síðan um það, hvað beri að taka af því og hverju hægt verður að koma inn í blaðið. Um það leyti er umbroti á efni í innsíðum að ljúka. Hallur Símonarson snýr sér þá að því, að gera sér grein fyrir því, hvað helzt þurfi að koma inn í blaðið hinn daginn. En áður en hann fer á kvöldin hefir hann lagt niður til setningar töluvert af því efni sem á að koma, til að setning geti hafizt strax að morgni í prentsmiðjunni. Á tímanum milli 6 og 7 að kvöld inu er svo annar ritstjórnarfund- ur haldinn og er þar eingöngu fjallað um fréttir. Fríða Björns- dóttir, sem hefir haft umsjón með fréttaöfluninni yfir dagiím, snýr sér þá til ritstjóra með listann yf- ir þær fréttir, sem aflað hefir verið og þau setjast siðan á rök- stóla og raða þessum fréttum nið ur á þær þrjár síður í blaðinu, sem fréttir flytja, en það er 1. 2. og 16. síða. Jafnframt taka þau ákvarðanir um myndir og mynda stærðir og útlit blaðsins í stór um drátum. Þegar þessum fundi er lokið fara þau hvort í sínu lagi að gera sér grein fyrir upp- setningu á þeim fréttasíðum, sem þau hafa umsjón með. Ritstjóri tekur alla jafna að sér að sjá um uppsetningu á forsíðu, en Fríða sér hins vegar um umbrotið og teikningu á 16- síðu og 2. Teikningu á þessum síðum á að vera lokið um 8,30 og tekst oft- ast að halda þeirri áætlun. Fyrsta Þegar , ritstjórnrarfundurinn hefst rhafa blaðaménn litið í . blöð in til aé'átta sig á því hvernig þau hafi fjallað um hina ýmsu atburði, sem voru fréttaefni daginn áður. Of langt mál yrði að tína hér allt það til, sem kemur fram á ritstjórnarfundi. Á fundinum er gerður listi yfir það, sem blaða- menn telja fréttnæmt og ritstjóri óskar eftir að tekið sé til meðferð ar. Á þennan lista fara einnig önn- ur fyrirmæli um verk, sem þarf að vinna og komið hefur fram ósk um á öðrum stöðum. Hins vegar á listinn, sem gerður er á fundunum eftir að breytast nokkuð, þegar líður á daginn, en Björn Guðmundsson Jón Orn Marinósson Bjarghildur Stefánsdóttir :; .'k. ^ ^ , vi í ÍM s ^ s r ; [.'Jljívv < v. - '•S ■■ X- X , ^ ........... !1! Kolbrún Óðinsdóttir og Þórey Þórðardóttir. síðan niður í .prentsmiðju að kvöldinu er 2. síða, næst kemur 16. síða eða baksíðan, og síðust niður er forsíða. Kl. 8,30 að kvöldi eru blaðamenn búnir með Geir Aðils. flest sín verk, starfsdegi þeirra er lokið og þá hljóðnar yfirleitt um á ritstjórninni. Einn blaðamað ur er þó alltaf eftir, sá sem tekur vaktina það kvöldið. Hefur hann yfirumsjón með umbroti í prent smiðju þangað til blaðið er full- Mið til prentunar um kl. 11.00. Vaktmaður hefur ýmsum störfum að gegna, öðrum en þeim að sjá um .umbrotið, því hann hefur síð astur manna á blaðinu samband við ýrnsar stofnanir þar sem frétta getur verið að vænta. Fer hann í því efni eftir ákveðnum lista, sem gerður hefur verið og hringir í þessar stofnanir frá kl. 10.00 til 10,30. Eftir það hefur blaðið eigin lega ekkert skipulegt samband við umheiminn út fyrir ritstjórnarskrif stofurnar, og einúm og hálfum tíma síðar fer hraðpressan af stað, sem prentar blaðið. Nú gerist það einstaka sinnum að vaktmaður fær veður af stór um atburðum þegar hann gerir athugun sína samkvæmt kvöldlist- anum. Blaðið er þá að vísu nær fullbúið, frágengið og uppteiknað af hendi ritstjórnar. En þá gerist það, að vaktmaður hefir samband við ritstjóra og þeir ákvarða síð an í sameiningu hvað gera skuli, hverju ryðja skuli út fyrir hinni nýju frétt, og sé um stóratburði að ræða, kallar ritstjóri saman blaðamenn að nýju er síðan mæta á ritstjórninni eins fljótt og þeir geta. Er þá starfið skipulagt varð andi þessa einu frétt og reynt að koma henni frá eins fljótt og mögu legt er og inn í blaðið, en prent arar og afgreiðslufólk verður að bíða á meðan. Stundum er sá háttur hafður á, ef sýnilegt er að það ætlar að líða eitthvað á nótt- ina, áður en fréttin fæst öll inn, að hluti af upplaginu er prentaður og síðan stanzað og seinna skotið inn hinni nýju frétt, en sem betur fer heyra svona hlutir til undan- tekninga og yfirleitt kemur blaðið út á nokkurn veginn sama tíma, eins og skipulag þess og áætlun þess um útkomu segir til um. Fyrir utan það sem blaðamenn Tímans, fastráðnir, skrifa í blaðið, rita nokkrir fasta þætti í Tímann. Margir þessara þátta eru gamlir í hettunni en aðrir nýrri, en þeir eru allir miðaðlr við ákveðið efni. Ingólfur Davíðsson hefir lengi skrifað þáttinn „Gróður og garð ar“. Þá hefur Guðmundur Þorláks- son einnig lengi séð um.þáttinn „Hestar og menn“. Friðrik Ólafs- son hefur löngum skrifað um skák í Tímann og frú Unnur Arnórsdótt ir ritar um tónlist. Séra Árelíus Nielsson hefur lengi skrifað kirkju þátt fyrir blaðið á sunnudögum, og Jónas Jónsson hefur nú um skeið skrifað þáttinn um landbún aðarmál. Og nú nýverið var bætt við nokkrum þáttum, sem birtast í blaðinu á sunnudögum. Þar má nefna „Barnatímann", sem Kristín Pétursdóttir sér um, þáttinn „Með á nótunum“, sem Benedikt Viggós son skrifar og „Bókmenntaspjall“, sem Hjörtur Pálsson skrifar. Þær frú Sigríður Thorlacíus og frú Jóhanna Kristjónsdóttir hafa lagt blaðinu til og leggja því til ýmis konar efni, einkum við- töl, Þýðingar fyrir blaðið hefur Gunnlaugur Pétursson einkum ann ast. Þá hefur blaðið á að skipa sérstökum fréttariturum í tveim borgum erlendis. í Kaupmanna- höfn annast Geir Aðils fréttaþjón ustuna fyrir Tímann, og er nú Þessi mynd er tekin í Myndagerð Tímans. Starfsfólkið 'stendur við myndagerðarvélarnar þrjár, talið frá vinsti, Róbert, Björk og Guðmundur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.