Tíminn - 17.03.1967, Blaðsíða 35

Tíminn - 17.03.1967, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 17. marz 1967. 35 TÍMINN fréttum til þesg a3 skrifa sérstakt frétta yfirlit vikunnar í blaðið á súnnu dögum. Benda þeir fáu þættir hans, sem þegar eru komnir, til þess, að þarna sé alveg brotið upp á nýju efni, sem eigi eftir að verðá blöpamQhnum ærin og dtöéfl er , til vin bans' 'li%ur ætíð m til birtihgar. þótt-líti Oddur Ólafsson Fréttir og verkstjórn ' að sjálfsögðu vítt út fyrir Eddu- hús eftir efni í viðtöl sín, og Jón HeLgason vinnur mikið af sínu efni heima eins og fyrr er greint, er ekki um að ræða neina fasta vinnu í sjálfri skrifstofu Sunnu dagsblaðsins, nema þegar umbrot blaðsins er framundan, en biaðið er gjarnan brotið um á miðvikudög um. Blaðamenn á aðalblaðinu sj'álfu eru 8 að tölu. Elztur þeirra í starfi er Hallur Símonarson, sem hefur með efnisumsjón að gera á innsíðum blaðsins og annast um- brot á þeim. Hann vinnur í ná- inni samvinnu við ritstjóra annans vegar og auglýsingastjóra hins vegar, og vill nú stundum brenna við að illilega sé þrýst að hon- um frá báðum hliðum, þegar aug- lýsingar kalla eftir plássi í blað- inu og greinar geta ekki beðið birtingar. Mæðir þetta oft mjög á umbrotsmanni innsíðna, en Hall ur hefir alltaf verið ákaflega lipur í sínu starfi og tekizt að koma þessum tveim stríðandi hlutum blaðsins saman, árekstralítið. Hal'l- ur mætir raunar oftast skömmu fvrir hádegi og reynir að gera sér grein fyrir stöðunni meðan að ró- legt er í hádegistímanum, en hef- ur sáðan samband við ritstjóra um kl. 1.30 ef eitthvað sérstakt er. Annar blaðamaður, sem vinnur ekki beint hinn reglulega vinnu- tíma blaðamanna er Alfreð Þor- steinsson, sem skrifar íþróttasíðu Tímans og auk þess þáttinn „Á vítateig“. k Alfreð sér alveg um sínar síðu sjálfur, skrifar hana og brýturliana um og aflar henni efnis, en Hallur Símonarson skrif ar þó alltaf öðru hverju eitthvað á íþróttasíðuna enda gamall rit- stjóri hennar og með kunnustu ííþróttafréttariturum landsins. Al- freð er mjög duglegur í sínu starfi fær blaðamaður og tekst að gera íþróttafréttir sínar athyglis verðar og eftirsótt lesefni. Það er Indriði G. Þorsteinsson, sem heldur ritstjórnarfundina kl. 1.30 á daginn. Vegna þess að hann hefur verkstjórn með höndum á blaðinu, liggja flestir þræðir á gegnum hendur hans, þannig að þau atriði, sem ekki fara beint til Halls frá þeim Þórarni og Andrési Kristjánssyni til birtingar á innsíðum, koma til hans til úrlausnar. Hann hefur einnig að staðaldri samráð við Hall um hvaða efni þarf að sitja í fyrir- rúmi þennan og þennan daginn á innsíðum. Hins vegar er Hallur það gamall og reyndur starfsmað ur, að þetta út af fyrir sig mæðir ekki svo mjög á ritstjóra. Rit- stjórnarfundinn eftir hádegið sitja ásamt Indriða, blaðamennirnir Fríða Björnsdóttir, Elías S. Jóns- Tómas Karlsson son, Kári Jónasson, Guðrún Egil- son og Oddur Ólafsson. Þarna er verkefnum skipt niður á blaða menn eftir föngum, en Fríða Björnsdóttir, sem hefur lengi ver ið eins konar hægri hönd ritstjóra í fréttunum, skrifar niður lista yfir það fréttaefni, sem til með- ferðar er tekið á hverjum degi, og merkir jafnframt við hvert ein stakt atriði hvaða blaðamaður hafi með það að gera. Viðfangsefnin fara yfirleitt ékki’ út af þessum lista, fýrr en þeim er lokið, en það þýðir að ýms mál, sem lengi eru á döfinni, geta verið lengi á listanum jafnvel þótt fréttir sé ekki að hafa af þeim á hverjum degi. Friða Björnsdóttir gegnir því eiginlega hlutverki fréttastjóra með þessari skýrslugerð sinni, en hún annast ýmsa fyrirgreiðslu í fjarveru ritstjóra og tekur jafn- framt ákvarðanir um hvað gera skuli varðandi einstaka fréttir, sf eittihvað kemur snögglega upp á, sem þarf að taka afstöðu til og ritstjóri er ekki viðlátinn. Þá skrif ar hún fréttir mjög almenn. ,.is og grípur yfirleitt inn í þar sem iþörf er á sama tíma og aðrir blaða menn hafa reynt að kynna sér sér- ’staklgga ákveðinn sérsvið í frétta- 'flutningi. Elías S. Jónsson skrifar einnig •almennar fréttir, en hefur einkum kynnt sér verkalýðsmál og mál ýmissa samtaka í atvinnulífinu og lendir það þvi oftast á hans herð um að fjalla um kaup og kjör og framleiðslu, iðnað og ýmislegt fleira. Gott dæmi um þetta er iþáttur hans Launþegaspjall, sem ‘birtist alltaf á sunnudögum, og nú síðast fréttaflutningur hans af •vandamálum hraðfrystiiðnaðarinss •sem einna mest var fjallað um í Tímanum. Þótt Kári Jónasson sé mjög al- 'hliða blaðamaður hefir svo æxlast til eins og með Elías að hann hefur •einnig lagt sig nokkuð eftir sér- sviðum, einkum þeim er snerta um ferð og lögreglumál. Hann íiefur nú í nokkur ár verið lögreglufréttá ritari Timáns, en lögreglufréttír eru alltaf rnikill póstúr í blaða- mennsku, og þá hefur hann haft með vegi og bíla og flugvélar og flugvelli að gera og allt er lýtur að þess háttar umferð, og svo er 'hann eins konar útvörður blaðs- ins, búinn myndavélum og talstöðv arbíl, og endaði meira að segja eina ferðina með því að aka jeppa sínum upp á hæstu bungu Langjök uls, sem frægt er orðið, þótt það hafi nú ekki verið með í dag skránni í það skiptið. Kári hefir farið víða um land fyrir blaðið og hefur sem sagt til þess hinn bezta útbúnað, því að hægt er að hafa símasamband við hann, hvar og •hvenær sem er. Guðrún Egilson er yngsti blaða maður í starfi á Tímanum, en hef- ur nú þegar getið sér gott orð fyr ir viðtöl sín, en hún er afkastamik ill og duglegur blaðamaður, og 'hafa viðtöl hennar verið skemmti- leg og frásagnir hennar ýmsar vak- ið athygli, eins og t. d. greinamar um ferð hennar með Baltika, en 'þótt hún væri í fríi frá blaðinu £ þeirri ferð, skrifaði hún greinarn- ■ar samkvæmt sérstökum r' við blaðið. Þá hefur Guðrún að mestu tekið við því að skrifa sjón varpsgagnrýni eða sjónvarpsfrétt- ir. Tíminn hefir lagt mikla á- herzlu á það, að fylgjast vel með 'öllu, sem gerist í sjónvarpinu og 'hefur ákveðnar meiningar um það, að sjónvarpið sé því aðeins viðun- andi keppinautur, að hægt sé að hafa af því nokkurt gagn, bæði um efni og fréttir. ■ ,Þá réðist Oddur Ólafsson, fyrr- um blaðamaður á Alþýðublaðinu, til Tímans nú um mánaðamótin og 'hugsar Tíminn gott til samstarfs- ins við hann, en Oddur er þekktur af því að vera ötull og duglegur blaðamaður, enda hefur enginn byrjendabragur verið á störfum hans við blaðið, þann stutta tíma, sem hann hefur sinnt störfum sín um hér. Eriendar fréttir skrifar Björn Þ. Guðmundsson, en hann var stundum á Tímanum á háskóla- árum sínum. Nú vinnur hann í Borgardómi, og skýzt til okkar á kvöldin til að gegna þessu starfi, s.m stundum getur orðið nokkuð umfangsmikið, þegar mikið er að gerast erlendis. En Björn nýtur gamallar reynslu í því að skrifa erlendar fréttir og er oft fljótur að þessu, einnig er hann glöggur á það, sem að mestu máli skiptir hverju sinni í erlendum fréttum, og nú j - TIMINN í DAG vinsælt. Erlendar fréttir frá degi til dags skipa að vísu ekki mikið rúm í Tímanum, en á móti hefur komið á liðnum árum hið ágæta erlenda yfirlit Þórarins Þórarins sonar og nú þessi þáttur Björns „Erlendar fréttir vikunnar." Með þessu tvennu kemur Tíminn eins mikið og hann getur á móts við lesendur, sem hafa áhuga á því, sem er að gerast erlendis hverju sinni, þótt vegna þrengsla í blað inu verði oft að sníða daglegum fréttum nokkuð þröngan stakk. Tíminn hefur alltaf lagt mesta áherzlu á innlendan fréttaflutn- ing í sínum fréttum en reynt eftir föngum að leysa spursmálið um erlendu fréttirnar með yfirlits- greinum sínum. Við fréttaöflun innanlands nýtur Tíminn ágæts stuðnings áhuga manna og velunnarra víða um land, sem eru fréttaritarar Tím þeir munu vera nær 130 dag. Er þetta mikill mann afli, sem þarna kemur til liðs við blaðið og stendur blaðið að sjálfsögðu í mikilli þakkarskuld við þessa sjálfboðaliða. Þeir hafa alltaf unnið blaðinu eftir mætti án þess að ætlast til að nokkuð kæmi í staðinn. Það er fyrst og fremst vegna þessara manna, sem Tíminn hefur alla jafna verið í fremstu röð blaða hérlendis hvað innlendan fréttaflutning snertir. Eftir því sem blöðin hafa stækk að og umsvifin hafa orðið meiri í þjóðfélaginu, hefur orðið erfiðara að hafa gamla lagið á starfsháttum ritstjórnar, sæn-yár í því fólgið, að tveir eða þrir fréttamenn sátu við daglangt að ná inn fréttum án þess að nokkuð sérstakt skipu lag væri haft á vinnu þeirra. Vinnu tími þeirra varð því oft langur og fréttaflutningur þeirra vildi stund um verða nokkuð handahófskennd ur, en með því skipulagi, sem nú er haft á, að halda ritstjómar- fundi daglega með blaðamönnum, þar sem lögð er niður fyrir sér dagskráin fyrir daginn í eins stór um dráttum og hægt er að gera kl. 1,30 að deginum, er síður hætta á því að nokkur augljós mál verði útundan. Segja má að munurinn sé fólginn í því, að áður fyrr var beðið eftir að fréttin bærist til blaðsins, en nú er setzt á rökstóla á ákveðnum tíma og reynt að skipuleggja fréttasóknina. Að sjálfsögðu kemur ekki fram nein -mynd af væntanlegum á ritstjómarfundi, veitir starfa strax og vegna efni fyrir : sé að gerast. Alfreö Þorsteinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.