Tíminn - 17.03.1967, Blaðsíða 59

Tíminn - 17.03.1967, Blaðsíða 59
FOSTUDAGUR 17. marz 1967. TÍMINN 5‘ Bókhald og auglýsingar TIMINN í DAG ur er mikill starfsmaður, hraðvirk ur og vinsæll í starfi, þótt stund um þrengi hann all óþyrmilega að blaðamönnum með auglýsingum sínum. Steingrímur er maður, sem notfærir sér vel, að Tíminn er ann Ingibjörg Hallgrímsdóttir að stærsta blað landsins og langt um útbreiddara en önnur blöð, að Morgunblaðinu undanskildu. Þetta skilja auglýsendur og kunna að notfæra sér það, að Tíminn fer víðar um landið en nobkurt ann að blað. Auglýsingaaukningin í Tímanum að undanförnu sannar einmitt þetta, og það eru skemmti legir dagar í lífi Steingríms, þeg ar hann segir okkur blaðamönn um frá því, að einhver auglýsand inn hafi skýrt frá því, að auglýs- ing í Timanum hafi borið mjög góðan árangur. Það er nú þannig með störf að söfnun auglýsinga, eins og önnur störf, að ef að menn vinna ekki að því af lífi og sál, þá verður erfiðið oft til lítils gagns. Og það verður aldrei sagt um Steingrím Gíslason, að hann skorti álhuga á starfi sínu. Ég hefi nú farið fremur fljótt yfir sögu og drepið á alla megin þættina, sem sameinaðir mynda út- gáfu blaðsins. Eg hef dvalið lengst við frásögn af ritstjórninni sjálfri, en þag niá með nokkrum sanni segja, að sé hún í molum, þá fari annað þar eftir. En á stóru blaði eins og Tímanum verður að ríkja fullkomin samvinna milli hinna ýmsu deilda og fullur skilningur á starfi hvers og eins, svo sjálfsagð ur jöfnuður fáist og góður andi ríki innan veggja stofnunarinnar. Það má að sjálfsögðu skrifa langt mál um hinar ýmsu deildir Tím ans og allar hafa þær afrekað miklu og góðu starfi á undanförn um árum, starfi sem oft hefur ver ið unnið af ótrúlegri óeigingirni og hefur þá ekki alltaf verið hugsað um, hve vinnudagurinn hefur orð ið langur. Að líkindum mun hvergi þekkjast, nema á blöðum, sá vinnu andi og það vinnukapp, sem leiðir af sér, að ekki er spurt um vinnu tíma. En þannig er þetta vaxið og Tíminn er engin undantekning. Það er eins og það varði að nokkru lífshamingju fólksins sjálfs, hvort að Timinn gengur vel eða ekki, og það hefur alltaf skipt starfs fólk Tímans meira máli en launin, ef lesendur blaðsins og viðskipta- vinir þess hafa verið þakklátir og ánægðir með það, sem þeir fengu í hendur. IGÞ. VSÁUSmVS/ K-M-l Steingrímur Gíslason Jensína Karlsdóttir, Stefanía Hjartardóttir og Kristín Dýrmundsdóttir. Á rítstjórnarfundi Til gamans og til glöggvunar les- enduni á fýrstu mínútum starfs- dagsins birtist hér á eft- ir afrit af segulbandsupptöku frá einum ritstjórnarfundinum, en nokkuð er nú síðan sá fundur var haldinn. Daginn áður hafði ma. orðið ljóst, að ein af vélum Flug- félags íslands hafði teppzt í Danmarkshavn á Grænlandi. í sambandi við það urðu nokkrar umræður. Elías: Hin blöðin gera lítið úr þessu. Ritstj.: Úr hverju? Elías: Glófaxa-málinu. Þau gera svo lítið úr því, að þau skilja sýni- lega ekki hvað um er að vera þarna. Ritstj.: Nú, er það. Elías: Það er alveg eins og vélin hafi lent á Akureyri. Ritstj.: Heldurðu að þeir verði veðurteppttir lengi í Danmarks- havn? Elías: Það er ómögulegt að segja. Þá vantar skíði. Ritstj.: Er ekki skrúfan brotin? Elías: Jú, þar að auki. Annars hljóta flugmennimir að hafa það gott þarna. Ritstj.: Eskimóar eru frægir fyr- ir gestrisni. Svo er kallað á Hall Símonar son„ vegna greinar, sem hefur borizt. Ritstj.: Hannes Pétursson skáld, hringdi. Hann þarf að koma inn grein á sunnudaginn. Hallur: Nú. Ritstj.: Um Gísla Ólafsson skáld frá Eiríksstöðum. Hallur: Hvernig grein? Ritstj.: Minningargrein. Hallur: Verður hann jarðaður á mánudaginn? Ritstj.: Nei, en Hannes langar mikið til að greinin komi á sunnu daginn. Og það er alltaf fengur að því að fá það, sem Hannes skrifar. Hallur: Það er ekki hægt að lofa neinu. Ritstj.: Nei, ég gerði það heldur ekki. Hitt er annað mál, að það er möguleiki á að taka þetta inn, ekki síður en eitthvað annað, ef við þurfum á annað borð að koma með efni í viðbót. Þetta fer eftir auglýsingamagninu, ekki satt? Hvílir nokkuð fast á okkur á sunnudaginn? Hallur: Nei, það eru bara allir æpandi. Það liggja hjá okkur ein- ar tuttugu til þrjátíu greinar, og allur andskotinn, sem þarf að fara inn. En við sjáum til. Stein- grímur (auglýsingastjórinn) hefur sitt að segja. Ritstj.: Já það er náttúrulega Steingrímur, sem segir síðasta orðið í þessu. En verði opna af- gangs eins og var síðast, þá er ágætt að fá grein eftir Hannes á sunnudegi. Hallur: Já, já. Ritstj.: Mjög gott að fá bæði Hjört Pálsson og Hannes Péturs- son til að skrifa í eitt og sama blaðið. Elías: Þetta fer bara að verða menningarblað. Hallur: Þetta er nú minningar- grein. Ritstj.: Þá mundi kvennasíðan og barnatíminn færast fram um eina opnu í síðari hlutanum, á bls. 15—16 og ýmislegt efni komi í seinni opnuninni. Hallur: Ég skil nú ekki að hægt verði að byggja á því, vegna aug- lýsinganna. Ritstj.: Eg skil það, en ef mögu- leiki opnast þá má færa þessar tvær síður fram um opnu. Hallur: Þetta hefur verið eins og sprenging. Ritstj.: En við gátum haft þetta svona um helgina. Hallur: Ég meina bara síðustu dagana. Þarna var gert nokkurt hlé á meðan Hallur ráðfærði sig við Steingrím auglýsingastjóra. Hallur: Það verður víst heldur rólegt í auglýsingunum núna um helgina. Ritstj.: Má ég þá segja Hannesi, að allt verði í lagi. Hallur: Já, já. Elías: Bát hefur rekið upp í kletta í Keflavík í átta vindetigum. Hannes Pétursson kom með greinina sína. Ritstj.: Það hefur opnast fyrir þig á sunnudaginn. Hannes: Getið þið tekið þetta. Þið gerið mér ákaflega mikinn greiða með þvi. Hér er mynd ai Gísla. Ritstj.: Ég skal fara vel með þessa bók. Hannes: Já, gerðu það. Ég þari' að fá hana aftur. Ritstj.: Heyrðu, og ertu svo þarna með greinina. Hannes: Já, þetta er dálítill stubbur. Ritstj.: Það er allt í lagi. Við erum ánægðir yfir því að fá grein frá þér, gamli minn. Við erum glaðir og reifir yfir þvi að fá grein frá þér um Gisla. Hannes: Gísli hefur ekkert feng ið eftir sig nema nokkrar visur Það hefur enginn skrifað um hann grein. Eg hefði átt að vera búinn að þessu fyrir löngu. Eg þekkti hann vel. Hann var vinur minn. Ritstj.: Þú ert að hugsa um þessa kalla. Hannes: Já, ég ætla að skrifa betur um Gísla seinna. Það er ekki hægt að tina allt til, sem maður man um menn, þegar þeir eru nýlátnir, en sem varpar þó ljósi á þá. Ritstj.: Hannes minn, þetta er þá allt í lagi, og próförkin verðu' til handa þér svona um ellefu leytið í fyrramálið. Kári: Hvaða Gísli er þetta? Ritstj.: Gísli Ólafsson, skáld frá Eiríksstöðum. Elías: Fór nokkur á fundinn um handritahúsið. Ritstj.: Hvaða fundur var það Elías: Útvarpið var með hann Ritstj: Ég veit bara ekkert ur þetta. Var hann boðaður. Kári: Fríða hlýtur að vita um hann. Framhald á bls. 61.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.