Tíminn - 17.03.1967, Síða 43
FÖSTUDAGUR 17. marz 1967.
TÍMJNN
v ' <\
&. ' ' i
■ j í
:
. ...
j\
Afgreiðsla og dreifing
afbragðsgóðu nesti sínu og kaffi
í krús.
Handsetjararnir hafa þann
starfa að brjóta um blaðið, sem
kallað er, það er að segja setja
upp fyrirsagnir og auglýsingar og
Sigurður Brynjólfsson
raða efninu inn í blaðið eftir fyrir
sögn blaðamanns. Þetta er einnig
œrin og uppiihaldslítill starfi, þarna
þarf að hafa þúsund smáatriði í
huga og au£a á hverjum fingri ef
vel á ag fara í umbroti, og hand-
setjarar Timans spara sér enga
fyrirhöfn til að tryggja það að
Tíminn líti sem bezt út. Með
nýrir prentunaraðferð bættist svo
við þennan starfa að þrykkja
hverja letursíðu í pappamót, sem
svo fer fram í steypugerðina, þar
Signý Ólafsdóttir
sem síðan er steypt eftir pappa-
mótinu áður en hún er látin inn
í prentvélina sjálfa. Þetta hefur
verið kallað að prega en mundi
kannski vera réttara að kalla að
fergja, en jafnframt umbrotinu ann
ast þeir Gestur G. Árnason, Örn
Einarsson og Sigurður Fossan,
fergjunina. Um afköst prentsmiðj-
unnar geta þeir svo dæmt, sem
hafa Tímann annars vegar, oft í
24 siðum, auk Sunnudagsblaðs, en
hins vegar aðeins þrjár setjara-
vélar. Það verður að kallast lítil
prentsmiðja, sem ekki er búin
fleiri vélum en þetta.
Eins og fyrr segir kemur blaðið
út upp úr miðnætti og fer það
beint úr prentvélinni yfir í af-
greiðsluna, þar sem hópur fólks
tekur við því og pakkar því til
sendingar á hina ýmsu staði úti
á landi og á sölustaði, og til út-
burðar hér í bænum. Þar er í
fyrirrúmi Sigurður Brynjólfsson
afgreiðslumaður, sem hefur um-
sjón með því að blaðið komist sem
fyrst til kaupenda og sem snurðu-
lausast. Er það ærinn starfi og
kostar mikið skipulag, að haga
dreifingu blaðsins þannig, að
allir megi við una. Upplag Tím
ans er nú hæst 18.300 eintök, á
sunnudögum, og selst gjarnan upp
í þeim eintakafjölda. Þegar haft
er í huga, að stór hluti af upp-
laginu fer til kaupenda út um
land, sem vilja fá blaðið sitt sem
fyrst, sést að afgreiðsla getur orð
ið snúningasöm þegar reynt er
að koma blaðinu með fyrstu ferð
á hvern stað, en ekki látið duga
að strjálar póstferðir ráði því,
hvenær blaðið kemst til kaup
enda. Tíminn hefur á að skipa um
50 umboðsmönnum víða um land
og þeir gera líka sínar kröfur til
þess að blaðið berist þeim fljótt og
vel. Sjö manns vinna við afgreiðsl
una og útkeyrsluna, fyrir utan Sig
urð. Signý Ólafsdóttir vinnur við
stenslun og hefur unnig á af-
greiðslunni á annan áratug, en
við pökkunina vinna Gunnhildur
Kristinsdóttir, Magnea Alberts-
dóttir, Unnur Sigursteinsdóttir og
Sigvaldi Kristjánsson. Bílstjóri
hjá afgreiðslunni er Guðjón Svein
björnsson, en við afgreiðsluna á
daginn vinnur Kristin Dýrmunds
dóttir. Það er næturstarf að vinna
Unnið við pökkun, taliS frá vinstri: Magnea Albertsdóttir, GuSrún Thor
arensen og Unnur Sigursteinsdóttir.
við pökkunina og oft taka af-
greiðslustörfin það langan tíma á
nóttunni, að þeir, sem síðastir eru
til ag hætta, mæta þeim sem komn
ir eru til vinnu við blaðið kl.
að morgni.
Þegar Tíminn fékk húsnæði í
Bankastræti, fluttist hin daglega
afgreiðsla þangað, framkvæmda-
stjórnin og auglýsingadeildin.
Framkvæmdastjóri blaðsins er
Kristján Benediktsson, en sex
manns vinna við ýms störf á skrif
stofu hans. Það eru þau Gunn-
laugu-r Sigvaldason, féhirðir, Ingi-
björg Hallgrímsdóttir, Gunnar
Jónsson, Guðmundur Jónatansson,
inn'heimtumaður, Jótoann Björns-
son, innheimtumaður og Silja
Kristjánsdóttir simastúka. Þá er
rétt að telja þarna með
sendla, en þeir eru: Stefanía
Hjartardóttir, Ólafur
Baldur Gylfason, Örn
og Ólafur Hafsteinsson. '
Fjármáladeildin hefur eðlilega í
mörg horn að líta og fram-
kvæmdastjórnin er mikið og eril-
samt starf á blaði, sem baðar ekki
í rósum fjárihagslega, En þag má
vera til marks um framkvæmda-
stjórann og starf hans, að hagur
blaðsins hefur stórbatnað upp á
síðkastið og verður vonandi fram
hald á því. Að sjálfsögðu hefur
framkvæmdastjórinn afskipti af
öllu því, sem viðkemur rekstri
blaðsins og vinnur í náinni sam-
vinnu við ritstjórnina, auglýsinga
deildina og áfgreiðsluna. Öann er
sá maðurinn sem alls staðar er
með í ráðum og hefur manna
mesta yfirsýn yfir allan gang hinna
ýmsu deilda.
Þótt auglýsingadeildin sé nefnd
hér síðust, þá er það ekki vegna
þess að hún skili lökustu starfi á
blaðinu. Þvert á móti mun auglýs
ingadeildin vera sá hluti blaðs
ins, er ágætustu starfi skilar og
þó vinna þar aðeins tvær mann-
eskjur, Steingrímur Gíslason, aug-
lýsingastjóri og Jensína Karls-
dóttir, skrifstofustúlka. Steingrím
ur Gíslason hefur nú verið auglýs
ingastjóri hjá Tímanum í rúm
tvö ár og á þeim tíma hefur auglýs
ingamagnið í blaðinu aukizt stór-
lega. Við auglýsingastarfið nýtur
hann mikilsverðs stuðnings fram
kvæmdastjórans, sem hefur rétti
lega lagt mikla áherzlu á það, að
afla blaðinu auglýsinga. Steingrím
Gunnar Jónsson
Hilmar Ingason
Hópur barna, sem bera Tímann út til kaupenda i Reykjavik.
TÍMINN
í DAG